Sveitarstjórnarmál - 01.04.1991, Side 59
HAFNAMÁL
Hafnaáætlun 1991-1994
Hermann Guöjónsson, hafna-
málastjóri, hafði á fundinum fram-
sögu um hafnaáætlun fyrir árin
1991 til 1994, og Eyþór Elíasson,
fjármálastjóri Hafnamálastofnunar,
geröi grein fyrir hafnarfram-
kvæmdum á árinu 1990 og kostn-
aöi við þær. Töldu þeir óviðunandi
aö vinna aö áætlunargerö og
framkvæmdum, þegar mikil óvissa
ríkti um fjárveitingar og þær skorn-
ar niöur, þegar framkvæmdir væru
hafnar. Töldu þeir nauðsynlegt að
tryggja fastan tekjustofn til hafnar-
gerðar.
Lóðsinn
Logi Kristjánsson, forstööumaö-
ur Tölvuþjónustu sveitarfélaga,
kynnti tölvukerfi hafnanna, sem
unnið hefur verið að í samstarfi viö
samgönguráðuneytiö og kallað er
Lóösinn. Meö því tölvukerfi á að
skrá alla umferð um hafnirnar og
allan afla, sem um þærfer. Meö því
er síðan unnt að skrifa út alla
reikninga vegna hafnargjalda. Nú
eru haldin námskeið víða um land
í notkun þessa tölvukerfis.
Stjórn
I stjórn Hafnasambands sveitar-
félaga til eins árs voru kjörnir Sturla
Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkis-
hólmi, sem er formaður, Hannes
Valdimarsson, hafnarstjóri í
Reykjavík, varaformaður, Guð-
mundur Sigurbjörnsson, hafnar-
stjóri á Akureyri, ritari, Þorvaldur
Jóhannsson, bæjarstjóri á Seyðis-
firði, gjaldkeri, og Haraldur L. Har-
aldsson, bæjarstjóri á ísafirði.
Einnig situr í stjórninni Ellert Eiríks-
son, bæjarstjóri í Keflavík, sem á-
heyrnarfulltrúi af hálfu Sambands
íslenzkra sveitarfélga.
Á fyrri degi fundarins voru full-
trúar og gestir boðnir í skoðunar-
ferð um hafnirnar á Suðurnesjum,
Keflavík/Njarövík, Helguvík, Sand-
gerði, Voga og Grindavík, og þágu
kvöldverð í Festi í Grindavík í boði
Hitaveitu Suðurnesja, og í lok
fundarins hafði samgönguráðherra
móttöku, og fundurinn endaði með
sameiginlegum kvöldverði í boöi
Suðurnesjahafna.
NUDDPOTTAR
ÍSLENSKIR OG AMERÍSKIR
í miklu úrvali - Verb frá kr. 75.000/-
Allur búnaður fyrir vatns og loftnudd, auk annara fylgihluta:
*
*
*
*
*
Hreinsitæki og hringrásardælur
Ljós og dælurofar
Yfirbreiðslur
Vatns og loftnudd
Allur fittings og tengihlutar
Við bjóðum einungis AKRYL nuddpotta því AKRYL er eina
varanlega efnið sem stenst íslenska veðráttu og vatn.
10 ára þekking - sala - og þjónusta. Leitið tilboða!
Gerið gæða og verðsamanburð
Opið laugardaga
K.AUÐUNSSON HF.
Sérverslun með hreinlætistæki
Grensásvegi 8 - Simi: 686088
121