Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Qupperneq 19
FULLTRÚARÁÐSFUNDIR
Störf fundarins
Fundurinn hófst með því, aö for-
maður sambandsins, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, kynnti drög að ályktun,
sem stjórn sambandsins hafði orðið
ásátt um að leggja fyrir fundinn.
Birgir Þórðarson, oddviti Eyja-
fjarðarsveitar, fuíltrúi sambandsins
í nefndinni um skiptingu landsins í
sveitarfélög, kynnti síðan starfs-
hætti nefndarinnar, en hún haföi
beitt sér fyrir fundum með flestöllum
sveitarstjórnum landsins, þar sem
hún kynnti hugmyndir sínar. Jafn-
framt geröi hann grein fyrir reynslu
sinni af sameiningu þriggja hreppa
f Eyjafirði í Eyjafjarðarsveit, sem
fram fór 1. janúar 1991.
Sigfús Jónsson, formaður
nefndarinnar, lýsti niöurstöðum
nefndarinnar og þeim þremur til-
lögum, sem nefndin setur fram í
áliti sínu. Taldi Sigfús, aö hugar-
farsbreyting ætti sér stað í landinu
um þessar mundir að því er varð-
aði æskilega stærð sveitarfélaga
til þess að takast á við þau verk-
efni, sem bíða úrlausnar.
Margir fundarmanna tóku til
máls og fluttu sumir hverjir tillögur
um breytingar á því uppkasti aö
ályktun fundarins, sem fyrir lá. Voru
þær ábendingar teknar til greina.
Þá voru á fundinum kynntar nokkr-
ar ályktanir, sem sveitarstjórnir
víöa um land höfðu gert um máliö.
Ennfremur ályktun, sem nýlega
hafði verið gerð um málið á aðal-
fundi Samtaka sveitarfélaga í
Vesturlandskjördæmi.
Þráinn Jónsson, oddviti Fella-
hrepps, bar fram viðaukatillögu við
drög þau að ályktun, sem fyrir
fundinn voru lögð, og var henni í
samráði við flutningsmann vísað til
stjórnar sambandsins.
Máltíb í Perlunni
Að fundi loknum bauð borgar-
stjórn Reykjavíkur fundarmönnum
til máltíðar í hinu nýja veitingahúsi,
Perlunni, sem reist hefur veriö ofan
á hitaveitugeymum á Öskjuhlíð, og
munu flestir fundarmanna þá hafa
komið þangað í fyrsta skipti.
Forseti borgarstjórnar, Magnús
L. Sveinsson, lýsti Perlunni fyrir
gestum, en formaður sambands-
ins, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
þakkaði boðið af hálfu sam-
bandsins.
Þessi fundur fulltrúaráðsins, var
aukafundur og hinn 47. í tölusettri
röð fulltrúaráðsfunda.
Formaður sambandsins, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, stýröi
fundinum, en ritari var Guömundur
H. Siguröson, hreppsnefndarmað-
ur í Hvammstangahreppi. Honum
til aöstoðar var Unnar Stefánsson.
Sarnafil er PVC-þakdúkur og er lagður á þök og þaksvalir bæði
sem efsta lag og undir farg, t.d. torf eða hellur, oft í staðinn fyrir
bárujám eða pappa.
Sarnafil þakdúkurinn er lagður í milljónum fermetra árlega á Norð-
urlöndum. Hér á landi undanfarinn áratug í tugum þúsunda fer-
metra.
Vinna við dúkinn er framkvæmd af iðnaðarmönnum Fagtúns hf.
sem hafa unnið samfellt við frágang hans mörg undanfarin ár, allt
árið sumar sem vetur. Framleiðandi Samafil-þakdúksins Protan í
Noregi og Fagtún hf. gefa 10 ára ábyrgð á dúknum og frágangi
hans og fær húseigandi ábyrgðarskírteini í hendur því til staðfest-
ingar.
Nokkur hús með Sarnafil-þökum:
Húnavallaskóli, íþróttahús Álftamýraskóla, Húsmæöraskólinn á Laugarvatni, Iðn-
aðarmannahús v/Hallveigarstig, K-bygging Landspítala, KÁ Selfossi, Suður-
landsbraut 30, Skipholt 50, Stjómsýsluhús Isafirði, Flugturn Egilsstöðum, KS
Sauðárkróki, Dvalarheimili Siglufirði, Þjóðarbókhlaða, Isgeymsla Vopnafirði,
Njarðvíkurkirkja og fjöldi húsa um allt land.
265