Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Side 49
BÆKUR OG RIT
á skrifstofu sambandsins, Háaleit-
isbraut 11 í Reykjavík, sími 91-
813711, og kostar 1700 krónur
eintakið. Þægilegast er, að greiö-
sla fylgi pöntun.
Árbók sveitar-
félaga 1991
Árbók sveitarfélaga er komin út
f sjöunda sinn. Að vanda hefur
bókin að geyma upplýsingar um
fjárhag og afkomu sveitarfélag-
anna ásamt margs konar saman-
burði á milli þeirra. Leitazt er við að
birta sem nýjastar upplýsingar í
bókinni, og eru þannig bornar
saman tekjur og gjöld sveitarfé-
laganna á árinu 1990. Upplýsing-
ar úr fjármagnsyfirliti, efnahags-
reikningi og lykiltölur eru nú í fyrsta
sinn í bókinni. Er þessari fram-
setningu ætlað að draga fram
skýrari mynd af afkomu og stöðu
sveitarfélaganna.
Af öðru efni I bókinni má nefna
yfirlit um tekjur og gjöld á íbúa í
hverju sveitarfélagi árið 1990, sem
unnið var upp úr ársreikningum
þeirra. Einnig er yfirlit um álögð út-
svör, fasteignaskatta og aðstöðu-
gjöld á árinu 1991 og sundurliðuð
framlög úr Jöfnunarsjóöi sveitarfé-
laga sama ár. Birtar eru álagning-
arreglur og gjaldskrár gatnagerð-
argjalda 1991. Þá eru f ritinu
rækilegar upplýsingar um starf-
semi leikskóla sveitarfélaganna
árið 1990, s.s. gjaldskrá, fjölda
starfsmanna og menntun þeirra,
fjölda barna, rekstrarkostnað leik-
skólanna og endurgreiöslu for-
eldra.
Lúðvík Hjalti Jónsson og Garðar
Jónsson, viðskiptafræðingar á
skrifstofu sambandsins, höfðu veg
og vanda af útgáfu bókarinnar.
Árbókin fæst á skrifstofu sam-
bandsins og kostar 1.500 krónur
hvert eintak.
Þeir, sem vilja fá bókina senda,
geta haft samband við skrifstofuna
og fengið hana senda án burðar-
gjalds, ef greiðsla er send meö
pöntun.
ORfflNKUBA
KEDJUR
Smíöum keöjur samdœgurs eftir óskum hvers
og eins. Eigum einnig keöjur á lager.
Sendum hvert á land sem er.
CAP
G.Á. Pétursson hf
snjókeðjumarkaðurinn
Nútíöinni Faxafeni 14, sími 68 55 80