Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 6

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 6
FULLTRÚARÁÐSFUNDIR vera og eru nauðsynlegt öryggisnet fyrir þá sem missa vinnu tímabundið eða finna ekki störf.“ Páll ræddi frumvarp til laga um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstakl- inga, sem var til afgreiðslu á Alþingi, um endurskipulagningu Húsnæðisstofnunar, fé- lagsíbúðakerfið, mótun opinberrar fjöl- skyldustefnu, endurskoðun jafnréttisáætlun- ar, komu ilóttafólks hingað til lands, endur- skoðun sveitarstjómarlaganna, skýrslu um skuldir heimilanna og breytingar á tekju- stofnalögum til að leysa viðkvæm deilumál sumarhúsaeigenda og sveitarfélaga. Loks hvatti ráðherrann sveitarfélög til þess að draga úr framkvæmdum á næsta ári vegna mikillar þenslu í ár vegna stórframkvæmda og að eiga heldur framkvæmdir til góða þegar dragi úr stóriðjuþenslunni 1999. Guörún Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavikur, flytur ávarp sitt. stjórnar Hornafjarðarbæjar, fyrri daginn, og Steinunn Hjartardóttir, forseti bæjarstjórnar Sauðárkróksbæjar, síðari fundardaginn, og með þeim Unnar Stefánsson, rit- stjóri Sveitarstjórnarmála. Á fundinum störfuðu fjórar nefndir, fjárhagsnefnd, allsherjarnefnd, húsnæðismálanefnd og lífeyrissjóðs- nefnd. Ávarp félagsmálaráðherra Páll Pétursson félagsmálaráðherra vék í ávarpi sínu að verkefnaflutningi til sveitarfélaga og sagði níu reynslu- sveitarfélög hafa tekið við verkefn- um nú þegar og fleiri samningar um verkefnaflutning væru á döfinni. Húsaleigubætur hefðu sannað gildi sitt og stefnt væri að því að bæta það kerfi í samvinnu við sveitarfélögin. Hann skýrði frá fyrirhuguðum flutn- ingi á maléfnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga, sem áður hefur verið skýrt frá í Sveitarstjómarmálum, lög- um um vinnumarkaðsaðgerðir og lögum urn atvinnuleysistryggingar, sem öðlast gildi 1. júlí í ár og taldi þar um að ræða mjög mikilvœga lagasetningu. ,,Eg tel alveg óhjá- kvæmilegt að taka atvinnuleysis- vandann föstum tökum og reyna að aðstoða fólk við að losna úr viðjum langtímaatvinnuleysis,“ sagði ráð- herra. „Atvinnuleysisbætur eiga að Skýrsla um starfsemina, ársreikningur og tillaga að fjár- hagsáætlun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson flutti skýrslu um starf sambandsins á liðnu ári. Hann gerði rækilega grein fyrir flutningi alls rekstrarkostnaðar grunnskólans til sveitar- félaganna, sameiningu sveitarfélaga, málefnum fatlaðra, endurskoðun húsaleigubótakerfisins, lífeyrissjóðsmálum sveitarfélaga, endurskoðun á lögum um félagslega íbúðakerfið, málefnum Innheimtustofnunar sveitarfélaga og áfomium ríkisstjómarinnar um aðild sveitarfélaganna að skattalækkunum sem hún hafði boðið í tengslum við gerð kjarasamninga. Prír bæjarfulltrúar frá Akureyri, þau Sigriður Stefánsdóttir, Sigfríöur Porsteinsdóttir, fulltrúi stjórnar EYPINGS á fundinum, og Gísli Bragi Hjartarson. Meö þeim lengst til hægri á myndinni er Hjalti Jóhannesson, framkvæmdastjóri EYPINGS. 1 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.