Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 26
FRÆÐSLUMAL
Grunnskólabyggingar
Guðrún S. Hilmisdóttir verkfrœðingur, Sambandi
íslenskra sveitarfélaga
Með lögum um verkaskipti ríkis
og sveitarfélaga frá árinu 1989 yfír-
tóku sveitarfélögin byggingar
grunnskólamannvirkja l. janúar
1990. 1. mynd sýnir súlurit af ár-
legri heildarfjárfestingu í grunn-
skólamannvirkjum árin 1985-1995
reiknað til verðlags í janúar 1997.
Tölumar eru unnar upp úr skýrslum
Hagstofu Islands um sveitarsjóðs-
reikninga og sýna að eignfærð og
gjaldfærð fjárfesting til grunnskóla-
bygginga hefur hækkað frá því að
vera um 1,3 milljarðar króna á ári í
tæplega 1,9 milljarða króna á ári.
Ekki er talinn með stofnkostnaður
sveitarfélaganna vegna byggingar
íþróttamannvirkja.
settra grunnskóla í landinu. Sam-
kvæmt upplýsingum menntamála-
ráðuneytisins voru samtals 70
grunnskólar tvísettir skólaárið
1995-1996 og komu það skólaár
376 bekkjardeildir til kennslu í skól-
ana eftir hádegi. Þannig mætti
álykta að í skólana vanti a.m.k. 376
almennar kennslustofur til þess að
allir skólar væru einsetnir. En þar
sem víða er einnig kennt í lausum
kennslustofum, þ.e. í timburhúsum
sem standa á skólalóð hinna ýmsu
skóla, vantar fleiri stofur í skólana
en nemur fjölda bekkjardeilda sem
kennt er eftir hádegi. Til dæmis var
þetta sama skólaár kennt í samtals
72 lausum kennslustofum í grunn-
1. mynd. Eignfærð og gjaldfærö fjárfesting i grunnskólamannvirkjum árin 1985-1995.
Grunnskólar, rýmisþörf
Þrátt fyrir þessi auknu framlög til
byggingar grunnskólamannvirkja á
síðustu árum er enn mikið verk
óunnið og það sýnir t.d. fjöldi tví-
skólunum í Reykjavík, og þar af
voru 8 við Fossvogsskóla í Reykja-
vík sem er einsettur skóli.
Það þarf að byggja annað hús-
næði en almennar kennslustofur til
að grunnskólarnir verði fullbúnir
svo sem könnun sambandsins sum-
arið 1995 urn skólarými sýndi.
Spurt var hvort kennslurými, stjóm-
unarrými, félags- og samkomurými
og íþróttarými væri nægilegt í við-
komandi skóla. Svör bárust um 136
grunnskóla og er niðurstaðan af
þeim svörum sem bárust eftirfar-
andi:
70% vantar kennslurými
50% vantar stjórnunarrými
43% vantar rými fyrir félags- og
samkomuaðstöðu, snyrt-
ingu, geymslur o.þ.h.
28% vantar íþróttarými
Það vekur athygli að 70% skól-
anna sem svara vantar kennslurými
en aðeins 28% skólanna vantar rými
til íþróttakennslu.
Framkvæmdaáform
sveitarfélaga um einsetn•
ingu grunnskólans
Samkvæmt 3. grein laga um
grunnskóla nr. 66/1995 skal hver
grunnskóli vera einsetinn, en í
ákvæði til bráðabirgða segir að ein-
setningarákvæðið skuli að fullu
komið til framkvæmda að sex árum
liðnum frá gildistöku laganna.
Samkvæmt 2. grein samkomulags
ríkis og sveitarfélaga frá 4. mars
1996 tryggir ríkið framgang laga-
áforma um einsetningu grunnskól-
ans með því að ríkissjóður verji á
árunum 1997-2001 allt að 265
milljónuin króna á ári til þess að
styrkja framkvæmdir við grunn-
skólabyggingar. Til viðbótar leggur
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fram í
sama skyni 135 milljónir króna á ári
1 52