Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 11

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 11
FULLTRUARAÐSFUNDIR verði tekinn til endurskoðunar og hlutverk hans end- urmetið. • Lagt er til að felld verði niður 0,75% þóknun til tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins af nýjum fé- lagslegum íbúðum. Sveitarfélögum verði falið það verkefni sem tæknideildin hefur séð um. • Lagt er til að breyting verði gerð á 40., 41. og 42. gr. reglugerðar um félagslegar íbúðir og Byggingarsjóð verkamanna nr. 375/1996, varðandi bílskýli eða bíl- skúr er fylgir félagslegri íbúð. • Lagt er til að afborgunarhlutur í húsaleigu vegna kaupleiguíbúðar nýtist leigjanda sem greiðsla breytist leiga í kaup. Þetta gerist sjálfkrafa hafi afborgunar- hlutur náð 10% af uppreiknuðu kaupverði viðkom- andi íbúðar. • Jafnframt er lagt til að lánstími vegna 90% hlutar í kaupleiguíbúð verði 43 ár frá útgáfu afsals fyrir við- komandi íbúð og að vextir áhvílandi láns af kaup- leiguíbúð verði tekjutengdir bæði þegar um kaup og leigu er að ræða. Þannig verði almenn og félagsleg kaupleiga sameinuð í eitt kerfi kaupleiguibúða. • Lagt er til að kaupskylda sveitarfélaga á félagslegum ibúðum verði 5 ár en forkaupsréttur í 30 ár. • Lagt er til að lögum um skyldur sveitarfélaga til að innleysa félagslegar íbúðir á nauðungarsölu verði breytt þannig að innlausnarskyldan sé bundin þeim tíma sem sveitarfélag hefur kaupskyldu á íbúðinni. • Lagt er til að lántakandi í félagslega kerfinu geti val- ið um hvort fyrsta ár sé afborgunarlaust eða ekki með tilliti til greiðslumats. • Lagt er til að sveitarfélögum sem þess óska verði heimilað að hætta að reka félagslegt eignaríbúða- kerfi. I stað félagslegra eignaríbúða á vegum sveitar- félaga verði einstaklingum veitt félagsleg íbúðalán. • Þau sveitarfélög, sem innleiða félagsleg íbúðalán, beri þó áfram að leysa til sín þær íbúðir í núverandi kerfi, sem kaupskylda hvílir á, óski eigandi þess. Þær fbúðir verði síðan seldar á almennum markaði, á markaðsverði. • Við sölu þessara íbúða á almennum markaði verði áhvílandi lán gerð upp miðað við uppgreiðsluvirði þeirra. Verði uppgreiðsluvirðið og eignarhluturinn hærri en söluverð viðkomandi íbúðar ber sveitarfé- lagið og Byggingarsjóður verkamanna skaðann í réttu hlutfalli við eignarhlut. Hjá þessum sveitarfé- lögum verði kaupskyldu af félagslegum eignaríbúð- um aflétt við sölu íbúða út úr núverandi kerfi eða þegar kaupskyldan fellur niður samkvæmt lögum. • Verði félagslegt íbúðalánakerfi innleitt í sveitarfélagi er lagt til að sveitarfélagið selji á almennum markaði þær félagslegu eignaríbúðir, sem eru í eigu þess og ekki hafa selst í núverandi kerfi eða geri þær að fé- lagslegum leiguíbúðum. Viðkomandi íbúðir verði seldar á markaðsverði. Ahvílandi lán verði gerð upp rniðað við uppgreiðsluvirði. • Lagt er til að sveitarfélög reki áfram félagslegar leigu- íbúðir. • Lagt er til að vaxtabætur verði greiddar af félagsleg- um lánum til einstaklinga og þær renni til Byggingar- sjóðs verkamanna til lækkunar á greiðslubyrði við- komandi lántakanda. Fulltrúaráðið leggur til að stjóm Sambands íslenskra sveitarfélaga beiti sér fyrir: • að átak verði gert í að efla hinn almenna fasteigna- markað á landsbyggðinni. • að náið samráð verði haft við Samband íslenskra sveitarfélaga urn þá endurskoðun sem nú fer fram á starfsemi Húsnæðisstofnunar ríkisins og að Samband íslenskra sveitarfélaga tilnefni fulltrúa í stjóm Hús- næðisstofnunar. • að unnið verði markvisst að því að stuðningur hins opinbera við öflun íbúðarhúsnæðis verði með tvenn- um hætti, annars vegar með húsaleigubótum og hins vegar með vaxtabótum. • að auknir fjármunir verði veittir til Byggingarsjóðs verkamanna með það að markmiði að hann geti stað- ið við skuldbindingar sínar gagnvart félagslega íbúða- kerfinu. Húsaleigubótakerfiö Alyktun fundarins um um húsaleigubótakerfið var svofelld: Fulltrúaráðið minnir á að sveitarstjórnarmenn hafa mjög skiptar skoðanir á lögum um húsaleigubætur og framkvæmd húsaleigubótakerfisins. Mörg sveitarfélög hafa af þeim sökum ekki tekið upp greiðslu húsaleigu- bóta og þess í stað lagt til að ríkið tæki að öllu leyti við húsaleigubótakerfinu sem jafnframt yrði aðlagað vaxta- bótakerfi ríkisins. Þrátt fyrir það búa um 65% þjóðarinn- ar í þeim sveitarfélögum sem greiða húsaleigubætur. Reynsla þeirra sveitarfélaga af greiðslu húsaleigubót- anna og framkvæmd kerfisins er svo góð að flest þeirra leggja eindregið til að sveitarfélögin annist það verkefni áfram. Fulltrúaráðið telur að forsenda þess að öll sveitarfélög taki upp greiðslu húsaleigubóta sé að samkomulag náist milli ríkis og sveitarfélaga um grundvallaruppstokkun á kerfinu og fjárhagshlið þess. í því sambandi vísast til samantektar fulltrúa sambandsins í nefnd félagsmálaráð- herra um framtíðarfyrirkomulag húsaleigubóta. Fulltrúaráðið leggur til að starfshópur, sem félags- málaráðherra skipaði 17. maí 1996 til að gera tillögur um framtíð húsaleigubótakerfisins, semji frumvarp til laga um nýtt húsaleigubótakerfi, þar sem eftirfarandi megin- atriði verði höfð að leiðarljósi: • Ríkissjóður leggi fjármuni til húsaleigubótakerfisins sem samsvari því að öll sveitarfélög greiddu húsa- leigubætur samkvæmt núgildandi kerfi með hækkun á tekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. 1 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.