Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 48

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 48
HERAÐSNEFNDIR Héraðsnefndir Suður- og Norð- ur-Þingeyjarsýslu sameinaðar Sigurður Rúnar Ragnarssonjramkvœmdastjóri Um sl. áramót voru héraðsnefndir Norður-Þingeyjarsýslu og Suður- Þingeyjarsýslu sameinaðar í Hér- aðsnefnd Þingeyinga. Frá og með sama tíma var Sigurður Rúnar Ragnarsson ráðinn framkvæmda- stjóri nefndarinnar. Sigurður var áður sveitarstjóri í Skútustaða- hreppi. Sveitarstjórnir í Þingeyjarsýslum hafa unt langt skeið haft með sér allnokkurt samstarf unt framkvæmd verkefna, bæði lögbundinna og ann- arra. Samstarfssvæðið hefur að mestu afmarkast af Vaðlaheiði í vestri og Langanesi í austri. Með sameiningu héraðsnefnd- anna og ráðningu framkvæmda- stjóra verður samstarfsverkefnunum skapaður einn vettvangur undir hér- aðsnefnd. Sveitarstjórnarmenn binda vonir við að slíkt fyrirkomu- Iag geri stjómun þeirra markvissari og greiði leið til aukins samstarfs. Sveitarfélög í Þingeyjarsýslu hafa nú samstarf um safnamál og fleiri menningarmál, heilbrigðisfulltrúa, byggingarfulltrúa, bamavemdarmál, meðferð sorps, atvinnuþróunarfélag, dvalarheimili aldraðra o.fl. Umræða er hafin um hvernig sveitarfélögin geti best sinnt al- mennri félagsþjónustu. Niðurstaðan af tilraun til samein- ingar sveitarfélaga árið 1993 varð mörgum sveitarstjórnarmönnum vonbrigði. Lærdómurinn af þeirri reynslu er einkum að ekki sé líklegt til árangurs að tillögur ofan frá og stuttur fyrirvari skili árangri. Lík- legra er að reynsla af samstarfi og samvinnu sveitarfélaga geti komið hreyfingu á sameiningarmálin. Þingeyingar hafa nú markað sam- starfsverkefnum sveitarfélaganna vettvang hjá héraðsnefnd. Þaðan getur komið frumkvæði að frekara samstarfi. Akvarðanir um það verða eftir sem áður teknar í hverri sveit- arstjóm. Þannig gæti þvingunarlaust samstarf fært sveitarstjórnum og umbjóðendum þeirra reynslu og þekkingu sem verður innlegg í um- ræður um sameiningu sveitarfélaga í héraðinu. Myndin er tekin á sameiginlegum fundi héraösnefnda Noröur- og Suöur-Þingeyinga, sem haldinn var í júní 1996 á Husavik en lokaákvöröun um sameiningu nefndanna var svo tekin á fundi þeirra sem haldinn var 12. september í Öxi á Kópaskeri. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, i fremri röö, Kristín Kristjánsdóttir, varaoddviti Þórshafnarhrepps, Halldór Kristinsson, sýslumaöur Þingeyjarsýslna, þáverandi framkvæmdastjóri nefnd- anna, Ingunn St. Svavarsdóttir, sveitarstjóri Öxarfjaröarhrepps og þáv. formaöur hér- aösnefndar Noröur-Þingeyjarsýslu, Siguröur Runar Ragnarsson, þáv. sveitarstjóri Skútustaðahrepps og oddviti héraösnefndar Suöur-Þingeyjarsýslu, Helga A. Erlings- dóttir, Landamótsseli, oddviti Ljósavatnshrepps. Standandi í aftari röö eru Skarphéö- inn Sigurösson í Úlfsbæ, oddviti Bárödælahrepps, Kristján Kárason, Ketilsstööum, oddviti Tjörneshrepps, Siguröur Árnason á Þresthólum, hreppsnefndarfulltrúi í Öxar- fjaröarhreppi, Tryggvi Jóhannsson, bæjarfulltrúi í Húsavíkurkaupstaö, Þorgrímur J. Sigurösson, Skógum II, oddviti Reykjahrepps, Dagur Jóhannesson, Haga II, oddvlti Aö- aldælahrepps, Relnhard Reynisson, sveitarstjóri Þórshafnarhrepps, Jón Þórir Óskars- son á lllugastööum, oddviti Hálshrepps, Benóný Arnórsson, Hömrum, oddviti Reyk- dælahrepps, Björn Guðmundsson í Lóni II, oddviti Kelduneshrepps, og Einar Njálsson, bæjarstjóri Húsavikurkaupstaöar. Ljósmyndina tók Siguröur Þétur Björnsson. 1 74
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.