Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 7

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 7
F U LLTR ÚARÁÐSF U N DI R Viö boröiö sitja, taliö frá vinstri, bæjarfulltrúarnir Ingvar Ingvarsson og Guöbjartur Hannesson á Akranesi og Pórir Jónsson, hreppsnefndarmaöur í Reykholtsdalshreppi, þrír af fimm fulltrúum Vesturlands, og þeir Magnús Reynir Guömundsson, varabæjar- fulltrúi í ísafjaröarbæ, og Jón Guömundsson, bæjarfulltrúi í Vesturbyggö, tveir af fimm fulltrúum Vestfiröinga í fulltrúaráöinu. Skýrslu stjórnar sambandsins var dreift prentaðri á fundinum og er fá- anleg á skrifstofu sambandsins. Birgir L. Blöndal, aðstoðarfram- kvæmdastjóri sambandsins, kynnti ársreikning þess fyrir árið 1996 og tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 1997. Var hvorttveggja samþykkt síðar á fundinum eftir umfjöllun í fjárhagsnefnd fundarins. Samvinna sveitarfélaga og skógræktarfélaga Sigríður Jensdóttir, bæjarfulltrúi á Selfossi, flutti erindi um samvinnu sveitarfélaga og skógræktarfélaga. Hún lagði fram skýrslu nefndar sem skipuð var af Skógræktarfélagi ís- lands og Sambandi íslenskra sveitar- félaga með niðurstöðum í sjö liðum. Jafnframt útskýrði hún drög að álykt- un fulltrúaráðsfundarins um aukið samstarf um skógrækt. I umræðu í kjölfar ræðu Sigríðar tók Björn Árnason, fv. bæjarverk- fræðingur í Hafnarfirði og fulltrúi í samstarfsnefndinni, til máls og vakti m.a. athygli á 7. lið í niðurstöðum nefndarinnar, sem teknar voru upp í ályktun fundarins og fjallaði um lagalega hlið málsins vegna nýrra sam- keppnislaga. Félagslega íbúöakerfiö Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri Höfðahrepps, flutti erindi um félagslegar íbúðir og kynnti skýrslu starfshóps er fjallað hafði um málið. Hann nefndi meðal annars að eignamyndun í hinu félagslega íbúðakerfi væri afar treg og þess vegna m.a. stæðu nú margar íbúðir í þessu kerfí auðar og óseljanlegar vítt og breitt um land. Meðal ann- arra atriða er Magnús nefndi úr skýrslu nefndarinnar voru hugmyndir um að losa sveitarfélög undan kaup- skyldu íbúða og að leyfa að selja íbúðir þessar á frjáls- um markaði. Húsaleigubótakerfiö Lára Bjömsdóttir, félagsmálastjóri í Reykjavík, flutti framsöguerindi um húsaleigubótakerfið. Hún lýsti í stuttu máli tilurð núverandi húsaleigubótakerfis, gerði grein fyrir þeirri gagnrýni sem komið hefði fram á það og lýsti síðan tillögum starfshóps sem félagsmálaráð- herra skipaði til þess að vinna að endurskoðun laga um húsaleigubætur. Framsöguerindi Láru birtist í heild í 2. tbl. Sveitarstjómarmála. Rekstrarfyrirkomulag sérskólanna Sigurjón Pétursson, deildarstjóri grunnskóladeildar sambandsins, skýrði frá starfi vinnuhóps sem þá vann að gerð tillagna um fyrirkomulag þess að flytja fjármuni, sem ætlaðir eru til kennslu fatlaðra nemenda, til viðkom- andi lögheimilissveitarfélags. Málefni Tölvuþjónustu sveitarfélaga Bjami Júlíusson tölvunarfræðingur fjallaði um tölvu- og upplýsingamál sambandsins í erindi sínu og þarfir sveitarfélaganna í tölvumálum. Taldi hann þurfa að efla tölvuþjónustu við sveitarfélög á ýmsan hátt. Lagði hann til að farin yrði svokölluð rammasamningsleið sem sveit- arfélögin hefðu val um að taka. I umræðum gerði Logi Kristjánsson grein fyrir verk- efnum Tölvuþjónustu sveitarfélaga og hvatti til þess að fljótlega yrði tekin ákvörðun um nýskipan málefna henn- ar og hvemig lagt væri til að samvinnu sveitarstjóma í tölvumálum yrði hagað. Lífeyrissjóósmál sveitarfélaga Karl Bjömsson, bæjarstjóri á Selfossi, kynnti skýrslu starfshóps sem unnið hafði að athugun á stöðu sveitarfé- laga vegna breytinga á lífeyrissjóðsmálum. Framsöguræða Karls er birt sem grein annars staðar í þessu tölublaði. Ályktun um lífeyrissjóösmál Inga Jóna Þórðardóttir borgarfulltrúi gerði grein fyrir tillögu lífeyrissjóðsnefndar fundarins að ályktun um líf- eyrissjóðsmál. Tillaga nefndarinnar að ályktun fundarins um það efni 1 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.