Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 37

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 37
FRÆÐSLUMAL Heilsdagsskólinn er næst að- alinngangi og er innangengt úr anddyri að þessu rými. Þetta staðarval auðveldar foreldrum að koma með og sækja börn sín í hann og þurfa því ekki að fara langar leiðir um skóla- bygginguna. Heilsdagsskólinn er í beinum tengslum við tón- listarstofu sem gefur mögu- leika á samnýtingu eins og t.d. tónlistarkennslu í samvinnu við einhverja tónlistarskóla. Rými heilsdagsskóla hefur verið brotið upp og er óreglulegt í laginu til aðgreiningar frá venjubundnu ferhyrndu munstri skólastofunnar. Hátíðar- og matsalur er eins konar aðaltorg í „gatnaskipu- lagi“ skólans. Salurinn er í góðum tengslum við hús- stjómarkennslu sem og tónlistarstofu vegna samnýtingar hljóðfæra o.fl. Eldhús og afgreiðsla er hinum megin við götuna gegnt salnum þannig að það nýtist öllu félags- rýminu enda takmarkast salurinn í raun ekki við hið af- lokanlega rými. Hann er stækkanlegur út á götuna og getur þá í vissum tilvikum tekið allt að 450 manns í sæti. Aflokaður rúmar hann að öllu jöfnu um 180 manns við borð á matmálstímum, en um 270 manns í sætaröðum. Gert er ráð fyrir að tómstundarými og setustofa nem- enda verði hluti af götulífinu en einnig að hluta til á svölum framan við stofumar og yfir anddyrum. Lagnir, tœknirými o.fl. Höfundar hafa lagt ríka áherslu á að skapa einfaldar og skýrar lagnaleiðir. Leitast var við að koma hreinlæt- isaðstöðu, salemum og ræstingu fyrir með það að leiðar- ljósi. Gangamir tengjast lagnarými í kjallara, þar sem inn- taksklefi og loftræsikerfi verður valinn staður ásamt ræstimiðstöð skólans. Með útveggjum beggja bygginganna verði ofnalagnir sem og raflagnastokkur. Öll loft verða niðurtekin með hljóðdeyfandi kerfisloftum. Millirými ofan kerfislofta verður nýtt til þess að þvera leiðir milli lagnastokks og útveggja. Tæknirými, s.s. inntaksklefi fyrir vatn og hita, er í kjallara. Þaðan eru lagnir með vatn, heitt og kalt, raf- magn svo og loftræsing til beggja álmanna um lagna- stokk sem er undir hluta bygginganna. Frá tæknirými utan á austurhlið eru strompar sem þjóna sem út- og inn- loftunarstokkar fyrir loftræsikerfi byggingarinnar. Sorpgeymslu er valinn staður við aðalaðkomu akandi umferðar og því þurfa sorpbílar ekki að fara um skóla- lóðina við sorphirðu og skapa þannig óþarfa hættu á skólalóðinni. Ytra yfirbragð Byggingunni er, líkt og áður sagði, skipt í tvo sjálf- stæða hluta, austur- og vesturálmu. Byggingarnar eru báðar staðsteyptar, einangraðar og klæddar að utan. Önnur með hefðbundnu íslensku bárustáli en hin með ís- lensku múrkerfi. Þök bygginganna eru einhalla því sem næst flöt þök. Álmumar tvær fá þannig hvor sitt yfir- bragð en tengjast með léttu vænglaga milliþaki sem „svífur“ yfir götunni milli byggingaálmanna tveggja. Undir þessum svífandi væng eru aðalinngangar bygging- arinnar og höfuðrými, „gatan“. Lokaorð Hönnunar- og byggingaferlið hefur verið undir stjóm byggingadeildar Reykjavíkurborgar. Umsjónarmaður er Sighvatur Amarsson tæknifræðingur og daglegur eftir- litsmaður Lárus Ragnarsson húsasmíðameistari. Hönn- uðir eru Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf., sem séð hefur um hönnun burðarþols, lagna og loftræsingar, en raflagnahönnun hefur verið í höndum Rafteiknistofu Thómasar Kaaber. Lóðahönnun er í höndum Landslags- arkitekta R.V. og Þ.H. Höfundar hafa leitast við að halda utan um heildar- stærð skólans vegna kostnaðarhámarksins sem sett var í upphafi, en viðhalda þó rýmisgæðum með tilliti til upp- haflegrar hugmyndar. Leitað hefur verið bestu hugsan- legra lausna hvað varðar byggingartæknilegar útfærslur með tilliti til upphaflegrar hugmyndar og kostnaðar, í góðri samvinnu við byggingadeild Reykjavíkurborgar og aðra hönnuði byggingarinnar. 1 63

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.