Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 4

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 4
FORUSTUGREIN Umhverfismál í sveitarfélögunum Umhverfismálin eru víðtækur málaflokkur sem snertir flesta þætti mannlífsins. Sífellt eykst áhugi og skilningur almennings á mikilvægi umhverfisvemdar og æ fleiri gera sér Ijóst að dagleg umgengni þeirra skiptir máli um vernd náttúrunnar. Með samþykkt Dagskrár 21 á Ríó-ráðstefnunni skuld- bundu ríkisstjómir 181 nkis sig til að setja fram áætlanir um sjálfbæra þróun í viðkomandi ríki og hefur ríkis- stjóm íslands samþykkt slíka framkvæmdaáætlun í um- hverfismálum með hliðsjón af samþykkt ráðstefnunnar. Þróun mála hefur orðið sú að úrlausnir í umhverfis- málum em meðal brýnustu verkefna á alþjóðavettvangi. Þjóðum heims er að verða æ ljósara að hreint umhverfi og óspillt náttúra séu hin verðmætustu lífsgæði sem hverri þjóð beri að varðveita og styrkja fyrir komandi kynslóðir. Náttúruvernd er víðfeðmur málaflokkur og umhverfismál í víðari skilningi eru alþjóðleg og þekkja ekki landamæri. Þessi staðreynd og reynsla þjóðanna á sviði umhverfismála knýr þær til náins og vaxandi sam- starfs á svo fjölmörgum sviðum um þessar mundir. fslendingar hafa mikilla hagsmuna að gæta varðandi virka framkvæmd umhverfis- og náttúruvemdar. Imynd landsins út á við er hrein og óspillt náttúra og á þeim grunni er unnið að markaðssetningu matvælavinnslunn- ar og ferðaþjónustunnar. Bætt umgengni við landið og hafið er því ein mikilvægasta forsenda þess að styrkja stöðu matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu í landinu. Sveitarfélögin hafa á undanfömum árurn unnið með markvissum hætti að umhverfismálum og lagt mikla fjármuni í framkvæmdir á því sviði, ekki síst vegna sorp- og fráveitumála. Með margvíslegum aðgerðum hafa þau sýnt og sannað að þau taka hlutverk sitt í um- hverfismálum alvarlega og kappkosta að rækja skyldur sínar. Það eru fyrst og fremst sveitarfélögin, atvinnulífið og félagasamtök en ekki ríkið sem leggja fjármuni til umhverfisúrbóta. Árangur í umhverfismálum veltur m.a. á fjárhagslegri getu sveitarfélaganna en byggist ekki ein- göngu á hertum reglum sem ríkisvaldið setur og hafa aðallega í för með sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélög- in og atvinnulífið. Þeirri staðreynd mega yfirvöld um- hverfismála á íslandi ekki gleyma. í samræmi við samþykkt Ríó-ráðstefnunnar er mikil- vægt að öll sveitarfélög skipuleggi vinnu við gerð áætl- ana um umhverfismál, svokallaðar „Staðardagskrár 21“, en flest þeirra vandamála sem vikið er að í Dagskrá 21 eiga rætur í staðbundinni starfsemi, sem eðlilegast er að staðbundið stjórnvald eins og sveitarstjórnirnar hafi frumkvæði um að leysa. Sveitarfélögin standa næst því fólki er umhverfismálin varða með beinum hætti og þau eiga auðveldast með að veita almenningi fræðslu um markmið og nauðsyn sjálfbærrar þróunar og skipuleggja aðgerðir. Á ráðstefnu um umhverfismál í sveitarfélögunum, sem Samband íslenskra sveitarfélaga, umhverfisráðuneytið, Norræna ráðherranefndin og Egilsstaðabær héldu á Eg- ilsstöðum 9.-10. júní sl„ var fjallað um vinnu sveitarfé- laganna að umhverfismálum og gerð umhverfisáætlana í sveitarfélögunum. í Egilsstaðabæ hefur verið unnið að gerð umhverfisáætlunar með hliðsjón af þeirri stefnu- mörkun sem fram kemur í „Staðardagskrá 21". Viðleitni sveitarfélaganna til að vinna að úrbótum í umhverfismálum og áætlanagerð í samræmi við „Staðar- dagskrá 21“ þarf að njóta stuðnings umhverfisyfirvalda og skilningur þarf að vera á því að aðstæður sveitarfélag- anna eru ntisjafnar bæði af fjárhagslegum og landfræði- legum ástæðum. Samband íslenskra sveitarfélaga og um- hverfisráðuneytið hafa að undanfömu átt gott samstarf um ýmsar aðgerðir í umhverfismálum sem í framtíðinni munu skila betri árangri í umhverfis- og náttúruvemd og sameiginlegt verkefni þessara aðila er að kynna og auð- velda sveitarfélögunum umrædda áætlanagerð. Til þess að betri árangur náist í umhverfis- og náttúm- vernd þurfa allir aðilar að leggjast á eitt, sveitarfélög, ríki, félagasamtök og almenningur. Meginmarkmiðið er að efla vitund fólks um nauðsyn umhverfis- og náttúm- vemdar og hvetja til þátttöku þess í aðgerðum þar að lút- andi þar sem henni verður við komið. Hlutverk stjóm- valda er einnig mikilvægt hvað varðar upplýsingamiðlun og fræðslu til almennings um alla þætti umhverfismála. Öllu skiptir þó að almenningur hafi ekki á tilfinning- unni að vera einungis áhorfandi eða þolandi í umhverfis- verndarmálum, miklu fremur þarf tilfinning hins al- menna borgara að vera sú að hann geti með markvissu starfi og aðgerðum á þessum vettvangi ráðið miklu um umhverfi sitt í nútíð og framtíð. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 1 30

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.