Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 66

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 66
FERÐAMÁL Deborah J. Robinson ferðamálafulltrúi Skagafjarðar Deborah Júlía Robinson hefur verið ráðin ferðamálafulltrúi Skagafjarðar frá 1. mars sl. Hún er ráðin hjá hér- aðsnefnd Skag- firðinga en að héraðsnefndinni standa allir hreppar Skagafjarðar svo og Sauðárkrókskaupstaður. Deborah er fædd 11. janúar 1962 í Suður-Afríku og ólst þar upp. Móðir hennar sem nú er látin var fasteignasali og faðir hennar humal- bóndi og er enn á lífi. Arið 1979 lauk hún námi í menntaskóla, var árið 1980 skiptinemi í Texas í Bandaríkjunum og lauk árið 1982 nárni í almanna- tengslum frá Tækniháskólanum í Höfðaborg í Suður-Afríku. Deborah starfaði á árinu 1985 sem sölumaður og auglýsingastjóri Vandaðir kassar utan um sorpið úr gegnvarinni furu. Henta líka utan um plasttunnur. Verð á einföldum 18.000 kr. og tvöföldum 26.000 kr. Upplýsingar i síma 464 2267 við sérhæft tímarit fyrir hótel- og veitingahúsarekstur. A árinu 1987 ferðaðist hún m.a. til Israels, Eng- lands, Skotlands og loks lá leið hennar til Islands. Starfaði hún m.a. við fiskvinnslu hjá Hjálmi hf. á Flateyri árið 1987, kenndi ensku við grunnskólann á Flateyri 1989-1990 og við gagnfræðaskólann á Sauðár- króki 1991. Einnig kenndi hún fjöl- miðlun og íþróttir. Jafnframt stund- aði hún nám í íslensku við Bréfa- skólann og síðar við öldungadeild Menntaskólans á ísafirði. Á árunum 1992-1994 starfaði hún sjálfstætt við einkakennslu í ensku fyrir framhaldsskólanemend- ur og fullorðna og vann við þýðing- ar m.a. fyrir Hestasport hf„ Bókaút- gáfuna á Hofi og Byggðasafnið í Glaumbæ. Árið 1994 stofnaði hún eigið fyrirtæki, PR-stofuna - al- mannatengsl, og hefur starfað við það síðan. Helstu verkefni fyrirtæk- isins voru þýðingar, erlend sam- skipti. frétta- og gagnasöfnun, markaðsráðgjöf og samning frétta- tilkynninga og fréttabréfa. PR-stof- an aðstoðaði einnig við framkvæmd og kennslu við Útflutningsskólann sem starfræktur var á Sauðárkróki sumarið 1996. Þá vann Deborah sem sölustjóri hjá Hestasporti hf. á Sauðárkróki frá nóvember 1995 til 1. febrúar 1996 og hjá Hótel Áningu á Sauðárkróki í þrjá mánuði sumarið 1996. Hún hefur starfað í stjóm Ferða- málafélags Skagafjarðar og Siglu- fjarðar og í stjóm Ferðasmiðju ehf. Síðastliðinn vetur stundaði hún nám í svæðisleiðsögn við Farskóla Norðurlands vestra og útskrifaðist sl. vor sem svæðisleiðsögumaður. Deborah er gift Rögnvaldi Guð- mundssyni, framkvæmdastjóra Ele- ments ehf. á Sauðárkróki, og eiga þau tvær dætur. Ferðamálafulltrúi Skagafjarðar er til húsa í Stjórnsýsluhúsinu að Skagfirðingabraut 17-21 á Sauðár- króki. Símanúmer þar er 453 6440, bréfasími 459 6280 og netfang skagferd@krokur.is. Dorotbee Katrin Lubecki ferðamálafulltrúi Vestfjarða við starfi því sem Anna Margrét Guðjónsdóttir gegndi fram á mitt sumar 1995. Dorothee er fædd í Berlín í Þýskalandi árið 1963 og alin upp í Koblenz í Rínardal. Hún lauk stúdentsprófi árið 1982 og kom í ársdvöl til Islands sem skiptinemi sama sumar. Arin 1984-1987 nain hún bók- menntafræði og vann í bókabúðum í Koblenz og Kaupmannahöfn. Árið 1988 hóf hún nám í um- hverfis- og skipulagsfræðum í Berlín og lauk Diploms-prófi vorið 1996. Lokaritgerð hennar fjallar um þróunannöguleika og framtíðarhorl'- ur á Ströndum og var unnin með að- stoð Trausta Valssonar, dósents við Háskóla Islands. Með námi starfaði Dorothee í tvö ár á tæknistofu í Berlín, tók þátt í rannsóknarverkefni um svæðisþró- un („regional development") í þró- unarlöndum og vann verkefni um þróun grænnar ferðamennsku við Baikalvatn í Síberíu. Undanfarin átta ár hefur hún dvalist talsvert á íslandi og m.a. starfað við leiðsögn fyrir erlenda ferðamenn. Dorothee Katrin er ógift. Ferðamálafulltrúinn hefur aðsetur hjá Atvinnuþróunarfélagi Vest- fjarða, Hafnarstræti 1, 400 Isafjörð- ur. Símanúmer þar er 456-4780, bréfasími 456-3508 og netfang: dorolu@snerpa.is. 1 92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.