Sveitarstjórnarmál - 01.03.1999, Page 33
BYGGÐAMÁL
85-++
80-84
75-79
70-74
65-69
60-64
55-59
50-54
45-49
40-44
35-39
30-34
25-29
20-24
15-19
10-14
05-09
00-04
i i
Konur J: Karlar
r
i
II p
T LT
1 i
r n
rr !■
, i ,[ 1 W
i i L 1
I , 1
1 1 -i
1 L 1 1
, t L
i i
i
300
200
100 0 100
Fluttir á 1000 íbúa I hverjum aldursflokki
200
30
3. mynd. Kyn- og aldursbundin flutningatíðni 1996.
ið fram hérlendis í búsetukönnun
Stefáns Olafssonar prófessors. Fram
kemur í rannsókninni að áhugi
landsbyggðarfólks á nútímalegum
lífsháttum, til dæmis fjölbreyttum
atvinnutækifærum, ríkulegum að-
gangi að verslun og þjónustu, fjöl-
þættri aðstöðu til menningameyslu
og afþreyingar, góðum húsnæðis-
aðstæðum og samgöngum, skiptir
miklu máli fyrir val á búsetustað.
Staðarval fyrírtækja
Búsetuval hins starfsmenntaða
vinnuafls ræður oft miklu um stað-
arval fyrirtækja. Bætt lífsgæði eru
því liður í eflingu atvinnuþróunar.
Hér hefur höfuðborgarsvæðið for-
skot á landsbyggðina og er þar ef-
laust að leita ýmissa orsaka fólks-
flutninga þangað. Það em því eink-
um tveir meginþættir sem leggja ber
áherslu á við þróunarstarf í því
skyni að stuðla að jafnvægi í byggð-
um landsins:
Þarfir fyrirtœkja:
• Staðbundnir þættir: framboð á
húsnæði og/eða lóðum til ný-
bygginga, orkuframboð, gæði
gatnakerfis, veitukerfa o.þ.h.
• Samgöngur: á landsbyggðinni
einkum aðgangur að stofnvega-
kerfi, flugvölluni, höfnum og
fjarskiptakerfúm.
• Rekstrarþættir: aðgangur að fjár-
magni, þjónustu og starfsmennt-
uðu vinnuafli.
• Samskiptaþættir: nálægð eða
tengsl við fyrirtæki með svipaða
starfsemi, nálægð við þjónustu-
fyrirtæki.
• Þekking: aðgangur að rannsókn-
arstofhunum og háskólum.
• Stjómunarumhverfi: velviljuð og
virk opinber stjómvöld og emb-
ættismenn, skýr lög og reglur,
skýr skipulagsákvæði sem taka
tillit til þarfa fyrirtækjanna.
• Ytri ímynd: gott umhverfi, heim-
ilisfang á vel metnum stað/-
svæði/hverfi, götunafn sem
hljómar vel o.fl.
Þarfir íbúa:
• Umhverfisgæði: útsýni, aðgang-
ur að ósnortinni náttúm, snyrti-
legt og ömggt umhverfi laust við
hávaða og mengun.
• Félagsleg gæði: atvinna (fyrir
bæði hjónin ef við á), efnahags-
legt, félagslegt og líkamlegt ör-
yggi, framboð á góðu, vel stað-
settu og hagkvæmu húsnæði,
góðar verslanir og þjónusta, dag-
vistun, góðir grunnskólar, að-
gangur að menntaskólum og/eða
ljölbrautaskólum, möguleikar á
framhaldsmenntun eftir stúdents-
próf.
• Samgöngur: ömggar og þægileg-
ar samgöngur innanbæjar og við
aðra landshluta, aðgangur að al-
menningssamgöngum (ef við á).
• Menning og afþreying: aðlaðandi
umhverfi, gott framboð á menn-
ingu og afþreyingu, aðstaða til
íþróttaiðkana og útivistar.
Þessir þættir em samverkandi og
því dugar ekki að leysa einungis
þarfir fyrirtækjanna án þess að líta
til þarfa íbúanna. Fyrirtækin flytja
þangað sem hæfúr starfskraftur fæst
og fólk flytur þangað sem gott er að
búa og góða vinnu er að hafa. Svo
einfalt er það dæmi.
Aukin tengsl við lands-
byggóina
Hingað til hefúr starfsemi Þróun-
arsviðsins einkum miðað að gerð
langtímaáætlana, upplýsingavinnslu
og ýmsum athugunum. Með nýjar
aðstæður í huga mun Þróunarsviðið
nú reyna að tengjast beint öllum að-
ilum sem á einhvem hátt geta haft
áhrif á þróun byggðar. Þróunarstarf-
ið verður aukið og farið inn á nýjar
brautir. Áhersla verður lögð á sam-
starf við atvinnuþróunarfélög á
landsbyggðinni. Til að auðvelda
þessi samskipti hefur Byggðastofn-
un tekið á leigu svonefnda Byggða-
brú sem er myndfundabúnaður. Á
Byggðabrúnni halda Þróunarsviðið
og atvinnuþróunarfélögin lands-
fúndi tvisvar í mánuði. Þar em rædd
ýmis samstarfsmál og miðlað
reynslu milli félaganna. Þróunar-
sviðið stýrir Byggðabrúnni og veitir
félögunum faglega aðstoð. Lögð er
áhersla á eigið ffamtak á svæðunum
og að nýta sem best staðbundnar að-
stæður, þekkingu, hugmyndir og
möguleika. Unnið verður að þróun
innlendra samstarfsverkefna á þessu
sviði og einnig að þátttöku í fjöl-
þjóðlegum verkefnum, einkum inn-
an ramma Norðurlandasamstarfs og
Evrópusambandsins.
Auk þessa er fyrirhugað samstarf
við ferðamálafulltrúa, en með bætt-
um samgöngum ætti ferðamanna-
straumur að geta aukist víða um
27