Sveitarstjórnarmál - 01.08.2000, Síða 8
AFMÆLI
Á hafnarsvæðinu. Fiskverkun
GPG og Rækjuvinnsla Fiskiðju-
samlags Húsavíkur.
intýralegan vöxt hvalaskoðunar hæst og er nú svo kom-
ið að Húsavík er höfúðborg hvalaskoðunar í Evrópu en
á sl. ári fóru tæplega 20 þúsund manns í hvalaskoðun
héðan og er allt sem bendir til þess að það met verði
slegið í ár. Þá er einnig vert að geta þess frumkvöðla-
starfs sem unnið hefur verið hjá Hvalamiðstöðinni á
Húsavík, þar sem áhersla er á að sýna og fræða fólk um
hvalina sem hluta lífríkisins og samskipti hans og
manns í áranna rás. Hefúr starfið vakið slíka athygli að
forstöðumaður safnsins, Ásbjöm Björgvinsson, hefur
hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir starf sitt, nú síð-
ast viðurkenningu Umhverfisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna - Global 500 Award.
Miklar vonir em bundnar
við að endurreisn harðvið-
arvinnslunnar muni skila
vemlegum árangri á næstu
ámm, en nú þegar em um
30 störf í þeim iðnaði og
hann því þegar orðinn mik-
ilvægur hluti vinnumarkað-
arins hér. Um er að ræða
samstarf erlendra og inn-
lendra aðila senr að fyrir-
tækinu standa, aðila sem
hafa þekkingu bæði á fram-
leiðsluferlinu sjálfu og
einnig markaðsþekkingu til
að koma framleiðsluvörun-
um á markað en meirihluti
framleiðslunnar, sem er að-
allega gegnheilt parket, fer
á erlendan markað.
ustumiðstöð Þingeyinga og á það bæði við hvað varðar
almenna þjónustu en ekki síður hvað varðar hina opin-
bem. Á þetta við um þjónustu sýsluskrifstofunnar og
heilbrigðisþjónustuna einnig, en heilbrigðisstofnanir í
sýslunni hafa nýverið verið sameinaðar í eina - Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga - sem er með meginstarfsemi
sína á Húsavik en einnig starfsstöðvar í Mývatnssveit og
á Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn. Hefur stofnunin
lagt áherslu á samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir á
landsbyggðinni og einnig verið framarlega í tölvu- og
upplýsingatækninni.
Öldmnarþjónustan er rekin sameiginlega af flestum
sveitarfélögum sýslunnar og óhætt að fúllyrða að vel sé
Opinber þjónusta
Eins og að var vikið hér
að framan er Húsavík þjón-
Hvalamiðstöðin. Athyglisvert safn sem laðar fjölda ferðamanna til Húsavíkur ár hvert. Forstöðu-
maður safnsins, Ásbjörn Björgvinsson, hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir störf sín, nú
síðast Global 500 Award fyrir árið 2000, sem afhent voru á umhverfisdegi Sameinuðu þjóðanna
4. júní sl.
1 34