Sveitarstjórnarmál - 01.08.2000, Blaðsíða 21
HAFNAMAL
Frá ársfundi hafnasambandsins. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Jón Halldór Guð-
mundsson, hafnarnefndarmaður á Seyðisfirði, og hafnarstjórarnir Óskar Friðriksson á
Seyðisfirði, Sigurþór Hreggviðsson á Eskifirði og Rúnar Sigurjónsson á Reyðarfirði.
við afgreiðslu þessara skipa, t.d.
veiðarfærasala, viðgerðaraðila o.fl.
Ennffemur almennt um stefnu rikis-
stjórnarinnar varðandi ofangreint
mál.
I lokaorðum sinum gat sjávarút-
vegsráðherra þess að hann hefði
ráðið Baldur Guðlaugsson hæsta-
réttarlögmann til þess að athuga lög
og reglur um bann við komum er-
lendra fiskiskipa til íslands og skila
mati á núverandi lögum og fram-
kvæmd og leggja fram tillögur til
breytinga, annars vegar á lögum og
reglugerð og hins vegar á vinnuregl-
um við meðhöndlun umsókna um
undanþágur frá gildandi lögum.
Ályktanir ársfundarins
Að tillögu allsheijamefndar gerði
ársfúndurinn þijár ályktanir:
Jöfnun á flutningskostnaði oh'uvara
Fundurinn beindi því til stjómar
hafnasambandsins að hún fylgi eftir
framkominni tillögu um breytingu á
lögum um jöfnun á flutningskostn-
aði olíuvara.
Flutningsleiðir framtíðar
I annarri ályktun var tekið undir
efni í 4. kafla í skýrslu stjómar HS
um flutningaleiðir framtíðar og
fagnað yfírlýsingu samgönguráð-
herra um samræmda flutningaáætl-
un og samgönguáætlun.
Upplýsingar um aflaverðmæti
Þá var lagt til að stjóm HS ítreki
við Fiskistofu fyrri loforð um skil
upplýsinga um aflaverðmæti. Talið
var eðlilegt að hafnirnar önnuðust
skráningu á endanlegri vigt á físki
sem fluttur er á erlenda fiskmarkaði
og talið nauðsynlegt að ýmsar lag-
færingar verði gerðar á hugbúnaðin-
um LÓÐSINN II til hagræðingar
fyrir hafnimar. Ársfúndurinn lagði
til við stjóm HS að kallað verði eftir
athugasemdum frá höfnunum um
þau atriði sem lagfæra þarf við
Lóðsinn II.
Fjármál
Að tillögu fjárhags- og gjald-
skrámefndar fundarins var ársreikn-
ingur HS fýrir starfsárið I. septem-
ber 1998 til 31. ágúst 1999 sam-
þykktur svo og tillaga um árgjöld og
fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 1.
september 1999 til 31. ágúst 2000.
Einnig var lagt til að stjóm HS at-
hugi möguleika á breytingu á út-
reikningi árgjalda þannig að þau
taki meira mið af tekjum hafna.
Stjórn HS var veitt heimild til að
greiða af eigin fé hugsanlegt þróun-
argjald fyrir Lóðsinn II fyrir starfs-
árið 1999-2000 og samþykkt var
tillaga stjórnar um 5% hækkun
gjaldskrár.
Fundurinn lýsti stuðningi við til-
lögu nefndar um framtiðarskipan
hafnamála er lýtur að afnámi undan-
þágna í gjaldskrám hafna og vænti
þess að nauðsynlegar breytingar
verði gerðar fyrir ákvörðun um
næstu gjaldskrá.
Ennffemur að endurskoðuð verði
vörugjaldaflokkun gjaldskrárinnar
þannig að stofn til álagningar vöm-
gjalds verði skýrari.
Samþykkt var tillaga frá Sand-
gerðishöfn að fela HS að vinna að
því að hlutaðeigandi stjórnvöld
heimili (tryggi) höfnum landsins að-
gang að vigtar- og verðmætaskýrsl-
um fiskkaupenda til Fiskistofú.
Þeim tilmælum var beint til
stjómar HS að nefnd verði falið að
móta tillögur til stjómarinnar um út-
reikninga á aflagjaldi.
Loks var því beint til stjómar HS
að gera tillögur um gjaldtöku tengda
farþegum á útsýnis- og skemmti-
ferðaskipum.
Umhverfis- og mengunarmál
Að tillögu umhverfís- og meng-
unamefndar var samþykkt svofelld
ályktun:
I fyrsta lagi:
Margar hafnir hafa lent í vanda
vegna langleguskipa sem liggja
óskráð við bryggju í reiðuleysi og
án þess að greidd séu hafnargjöld.
Mengunarhætta getur skapast í
höfnum, hætta er á að skip sökkvi,
hafnargjöld eru ekki greidd, tekin
eru dýrmæt viðlegupláss sem nýst
gætu mun betur og hafnarsjóðum er
sköpuð fyrirhöfn og kostnaður, jafn-
vel verulegur, ef það lendir loks á
þeim að farga skipunum. Ofl og tíð-
um ganga skip kaupum og sölum,
jafnvel eftir afskráningu, í sumum
tilvikum að því er virðist til að kom-
ast hjá því að greiða lögboðin gjöld
og sinna öðrum skyldum eigenda.
Nauðsynleg úrræði hafna virðist
skorta eins og sumar hafnir hafa
rekið sig á. Auk þess virðist verka-
skipting stjórnvalda og einstakra
1 47