SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Blaðsíða 19
4. desember 2011 19 Á innri vefnum greinir Reynir félögum sínum í Vantrú nákvæmlega frá klukku- tíma löngum fundi sínum með Þórði og segir að hann hafi sagt sér að líkleg nið- urstaða nefndarinnar verði að Bjarni hafi gerst brotlegur að því er fram kemur á innri vef Vantrúar. En þarna var ekki enn búið að hafa samband við Bjarna og ekki enn búið að afla gagna í málinu þótt rannsóknarskylda siðanefndarinnar sé rík. Siðanefndin leggur síðan fram sátta- tillögu sem hún þrýstir á guðfræði- og trúarbragðafræðideild að samþykkja 16. apríl 2010 og er tillagan send á alla aðila málsins nema Bjarna Randver. Í tillög- unni stendur meðal annars: „Þeir við- urkenna og harma að kennsluefnið felur ekki í sér hlutlæga og sanngjarna um- fjöllun um félagið Vantrú, málstað þess og einstaka félagsmenn. Athugasemdir Reynis Harðarsonar og samtaka hans verða teknar til jákvæðrar skoðunar, þegar og ef til þess kemur, að nám- skeiðið verði endurtekið.“ Þegar þessi sáttatillaga spyrst út um háskólann hitt- ast að undirlagi Guðna Elíssonar prófess- ors 23 kennarar og doktorsnemar og 22 þeirra skrifa undir ályktun þar sem vinnubrögð siðanefndarinnar eru gagn- rýnd. Í lok ályktunarinnar stendur: „Að lokum árétta fundarmenn mikilvægi þess að Háskóli Íslands standi vörð um rannsóknafrelsi kennara á tímum þegar ýmsir þrýstihópar, pólitísk samtök, trú- félög og stórfyrirtæki reyna í auknum mæli að stýra því sem sagt er innan veggja hans.“ Þórður Harðarson bregst við yfirlýs- ingunni með því að segja af sér for- mannsembættinu í kærumálinu en hinir nefndarmeðlimirnir sitja áfram. Ekkert samband við Bjarna? Þegar Þórður er spurður hvers vegna ekki hafi verið haft samband við Bjarna Randver svarar hann því þannig til: „Sumir nefndarmenn töldu að kæra Vantrúar beindist að einhverju leyti að guðfræðideildinni auk Bjarna,“ segir Þórður. „Aðalatriðið er samt eftirfar- andi: 23 mars fyrir fyrsta fund nefnd- arinnar lá fyrir bréf frá Pétri Péturssyni, deildarforseta guðfræði- og trúar- bragðafræðideildarinnar. Hann skýrði frá því að hann hefði átt fund með Bjarna Randveri Sigurvinssyni, Hjalta Hugasyni og Einari Sigurbjörnssyni, þar sem ákveðið var að Pétur Pétursson kæmi fram fyrir hönd kæruþolenda. Siðanefnd vann að sjálfsögðu í samræmi við það. Ég vil taka það fram að það er vinnuvenja í nefndinni að leita sátta, ég hafði starfað í henni í þónokkurn tíma og Þorsteinn Vilhjálmsson er líka með mikla reynslu af störfum í nefndinni. Þessi nefnd okkar hafði afgreitt 7 mál án þess að verða fyrir gagnrýni og helmingi þeirra mála hafði lokið með sáttum.“ Það ber að taka fram að nefndarmenn hafa orðið margsaga um hvort þeir hafi skilið það þannig að Bjarni hafi verið kærður eða hvort það hafi verið deildin. Þetta skiptir máli, því ef deildin var kærð en ekki Bjarni mætti réttlæta það að nefndin hefði ekki haft samband við Bjarna. En þetta virðist þó ekki liggja al- veg skýrt fyrir ef marka má orð nefnd- armanna sjálfra. Þorsteinn Vilhjálmsson segir í tölvupósti til blaðamanns Morg- unblaðsins núna á fimmtudaginn: „Kæra Vantrúar til siðanefndar er vissulega skýr að því leyti að það er Bjarni Rand- ver sem er kærður, vegna tiltekins kennsluefnis.“ Hann skrifaði hinsvegar annað í bréfi til rektors í haust, eftir að hafa haft málið á borði sínu í yfir 20 mánuði: „Einnig tel ég ótímabært að fullyrða fyrirfram, án efnismeðferðar málsins, hver eða hverjir séu raunveru- lega kærðir í málinu.“ Þegar honum er bent á þetta misræmi svarar hann: „Þeg- ar ég segi þarna „hverjir séu raunveru- lega kærðir“ meina ég í rauninni „hverj- ir beri ábyrgð“.“ Varðandi það atriði að Pétur hafi kom- ið fram sem fulltrúi Bjarna fyrir siða- nefndinni segir Pétur að það hafi hann aldrei gert. Engu að síður skrifaði hann bréfið sem Þórður vitnar í. Frásögn Bjarna og Péturs er sú að þeir hafi talið kæru Vantrúar léttvæga en Pétri var brugðið í brún er honum var tilkynnt kæran sem lá fyrir hjá siðanefndinni því Þórður hafi litið hana grafalvarlegum augum. Bæði Hjalti og Pétur hafa strax eftir fyrsta samtal við Þórð áhyggjur af því að neikvæð afstaða siðanefndar til Bjarna Randvers Sigurvinssonar verði til þess að erfitt geti reynst að ráða hann til starfa við deildina og því verði að leita sáttar svo ekki komi til efnislegrar með- ferðar hjá nefndinni, eins og Hjalti Hugason ritar í bréfi til Bjarna Randvers hinn 18. mars 2010. Pétur tekur undir þau orð og undrast um leið afstöðu siða- nefndarinnar sem ekki enn hafði kynnt sér málið, en hann skrifar sama dag til Bjarna Randvers: „Mig setur hljóðan og ég spyr sjálfan mig: Gilda aðrar reglur um guðfræðideild en hinar deildir há- skólans? Hvað um sagnfræði og bók- menntir?“ Ekki er hægt að áfrýja úrskurði siða- nefnda háskóla og því geta úrskurðir þeirra gert út af við frama fræðimanna með mjög skjótum hætti. Dæmi um kærur á kennara í trúarbragðafræðum í háskólum nágrannalandanna eru mörg. Frægast eru dæmi Roy Wallis sem var einn af kennismiðum trúarlífsfélags- fræðinnar í rannsóknum á nýtrúarhreyf- ingum. Vísindakirkjan plantaði nemanda undir fölsku flaggi í námskeiði hjá hon- um og upphófust síðan kærur og rógs- herferðir gegn honum. Wallis átti síðar eftir að fremja sjálfsmorð en aðalástæða þess er frekar rakin til skilnaðar hans við konu sína þótt þessi herferð hafi örugg- lega verið lóð á vogarskálarnar. Pétur segir þá Bjarna hafa orðið mjög óttaslegna við það að nefndin hefði áður en hún hefði kynnt sér málið tekið svona neikvæða afstöðu. Bréfið hefði hann rit- að undir þessum þrýstingi án vitundar Bjarna en hann hefði aldrei verið fulltrúi hans á fundum með nefndarmönnum. Um bréfið hefur Bjarni eftirfarandi að segja: „Bréf Péturs Péturssonar frá 23. mars 2010 sem þú tilgreinir fékk ég ekki í hendur fyrr en núna í sumar skömmu áður en ég fór á fund rannsóknarnefndar Háskólaráðs HÍ 30. júní 2011. Það var í stórum skjalabunka sem HÍ hafði afhent lögmanni mínum Ragnari Aðalsteinssyni hrl. Fram að því hafði Pétur árangurs- laust gert dauðaleit að þessu bréfi í fór- um sínum og virðist hann aldrei hafa vistað afrit af því þegar hann prentaði það út á sínum tíma og fór með það til Þórðar Harðarsonar. Hann sýndi mér því aldrei bréfið sem var ekki gert með minni vitund og veitti ég því augljóslega aldrei samþykki mitt fyrir því. Bréf Péturs til siðanefndar HÍ olli mér og ráðgjöfum mínum meðal háskóla- kennara talsverðum heilabrotum þegar siðanefndin tók á síðari stigum málsins að vísa til þess sem mikilvægs skjals í málinu. En á fundi Ragnars Aðalsteins- sonar með siðanefndinni 6. janúar 2011 hafnaði hann vægi slíks skjals með öllu þar sem siðanefndinni hefði borið að hafa samband við hinn kærða strax í upphafi og ekkert slíkt umboð gæti komið frá öðrum en hinum kærða sjálf- um. Það er rangt að Pétur hafi verið val- inn sem fulltrúi minn á þessum meinta fundi 23. mars 2010 enda veitti ég hon- um aldrei slíka heimild. Einar Sig- urbjörnsson hefur staðfest að hann fór aldrei fram. Pétur hefur að sama skapi ítrekað staðfest það skriflega að hann hafi heldur aldrei komið fram sem fulltrúi minn í þessu máli. Hann hefur lýst því yfir að rangur skilningur hafi verið lagður í bréf sitt en hér má einnig árétta að ef siðanefndin hefði nokkurn tímann haft fyrir því að ræða við mig þá hefði sá misskilningur verið leiðréttur. Í einum samræðum mínum við Þórð Harðarson, þegar ég hringdi heim til hans 14. apríl 2010 og hann neitaði að ræða við mig og funda með mér, ítrekaði ég að ég væri algjörlega mótfallinn þeim farvegi sem málið væri komið í.“ Nýr formaður Til formennsku siðanefndarinnar er val- inn Ingvar Sigurgeirsson, prófessor á menntavísindasviði HÍ. Nefndin er síðar meir stækkuð og eru valin inn í hana þau Gerður G. Óskarsdóttir, doktor í mennt- unarfræðum, og Guðmundur Heiðar Frí- mannsson, prófessor í heimspeki. Nefndin er áfram neikvæð gagnvart Bjarna þótt hún virðist eiga erfitt með að átta sig á því hvað Bjarni er kærður fyrir og eru einn nefndarmeðlimur og lög- fræðingur háskólans fengnir til þess að lista kæruna upp. Samræður af innra vef Vantrúar sýna að vantrúarfélagar eru samt vissir um að nefndin haldi sömu stefnu og mörkuð hafði verið undir formennsku Þórðar Harðarsonar enda sitja hinir tveir nefnd- armennirnir áfram allt kærumálið. Á innri vef Vantrúar skrifar Reynir Harð- arson hinn 18. maí 2010: „Ef ný siða- nefnd verður skipuð má segja að hún Morgunblaðið/Kristinn

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.