SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Blaðsíða 31
4. desember 2011 31 Í faðmi fortíðar Í tilefni af 150 ára fæð- ingarafmæli Hannesar Hafstein, skálds og fyrsta ráðherra þjóð- arinnar, verður opið hús í Hannesarholti, Grundarstíg 10, húsinu þar sem Hannes bjó síðustu æviárin, í dag, sunnudag milli kl. 11:30 og 13:30. Starfsemi er ekki hafin í húsinu en eigendur þess hafa metnaðarfull áform á prjónunum. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Ragnar Axelsson rax@mbl.is Þegar fólk kemur inn í húsiðbíður þess faðmur fortíðar.Hafa ekki allir gott af því aðrifja upp hvaðan þeir komu til að átta sig á hvert þeir eru að fara?“ segir Ragnheiður J. Jónsdóttir, eigandi Grundarstígs 10, hússins sem Hannes Hafstein, skáld og fyrsti ráðherra þjóð- arinnar, reisti árið 1915 og andaðist í sjö árum síðar. Við stöndum í anddyrinu, iðnaðarmenn eru upp um alla veggi og vart heyrist mannsins mál. Samt fer sjarmi þessa húss ekkert á milli mála – það skín í kvikuna. Ekki hyllir undir að starfsemi hefjist í húsinu, sem er eitt af elstu steinhúsum borgarinnar, en þeg- ar Sunnudagsmoggann ber að garði eru menn í óða önn að fríska upp á það svo unnt verði að taka á móti gestum í dag, sunnudag, milli kl. 11:30 og 13:30 á 150 ára fæðingarafmæli Hannesar Hafstein. „Við gátum ekki látið þetta tækifæri til að bjóða almenningi í bæinn okkur úr greipum ganga,“ segir Ragnheiður sem keypti húsið fyrir fjórum árum ásamt eiginmanni sínum, Arnóri Víkingssyni, og börnum þeirra, undir merkjum félags sem þau kalla 1904. Hugmyndin er að lána húsið síðan til sjálfseignarstofn- unarinnar Hannesarholts, sem sam- kvæmt skipulagsskrá er ætlað að efla já- kvæða, gagnrýna hugsun í íslensku samfélagi, auka skilning á gildi sögunnar fyrir samtímann og framtíðina og hvetja til uppbyggilegrar samræðu um sam- félagsleg málefni. Einnig að hlúa að og skapa rými fyrir uppbyggjandi mannlíf og menningarstarfsemi. „Hannesarholt er non-profit stofnun en vonandi kemur hún til með að standa undir sér með tíð og tíma,“ segir Ragnheiður. Með skýrar hugmyndir Hún segir fjölskylduna hafa skýrar hug- myndir um það sem hún vilji gera í hús- Hjónin Ragnheiður J. Jóns- dóttir og Arnór Víkingsson á loftinu á Grundarstíg 10. Hannes Hafstein

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.