SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Blaðsíða 44

SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Blaðsíða 44
44 4. desember 2011 Robert Harris - The Fear Index bbbnn Fyrir ekki svo löngu varð skammvinnt verðfall á verðbréfamarkaði í Chicago þegar galli í hugbúnaði varð til þess að rafrænn verðbréfamiðlari gerði mistök. Það er og á margra vitorði en ber ekki oft á góma að slíkir miðlarar, þ.e. tölvuforrit sem vakta markaði allan sólarhringinn og kaupa og selja á millisekúndna hraða, sýsla með stóran, ef ekki stærsta hluta verðbréfaauðs Vesturlanda. Sú stað- reynd er kveikjan að þessari bók. Sagan segir frá sérlunduðum eðlisfræðingi, Alexander Hoffman, sem býr í Sviss þar sem hann rekur vogunarsjóð og byggir á forriti, VIXAL-4, sem keyrir eftir algrími Hoffmans, en er einnig þeim kostum búið að geta breytt algríminu eftir því sem það lærir betur að lesa í markaðinn. VIXAL-4 les þó ekki bara í markaðinn heldur fylgist það með frétt- um á vefnum og heldur úti sinni eigin óttavísitölu, eins og heiti for- ritsins og bókarinnar vísar til, en þvílík vísitala, sem nefnist Volatil- ity Index eða VIX, er verðbréfavísitala í Chicago byggð á viðskiptaveiflum og oft kölluð óttavísitalan. Svo fer, eins og einhverjir hafa eflaust getið sér til, að VIXAL-4 fer að haga sér eins og opinber stofnun; verður mjög upptekið af því að tryggja eigin tilveru og grípur til ýmissa ráða í þeim tilgangi. Bókin er vel skrifuð og fléttan vel útfærð, þó hún sé fullævintýraleg í lokin. Eftir lesturinn er maður líka margs vísari um viðskiptaheiminn og skemmtileg sú staðreynd sem rakin er í bókinni að til þess að spara hundruð milljóna dala hættu bandarísk yfirvöld við byggingu öreindahraðals fyrir nokkrum árum. Afleiðing þess varð að ungir at- vinnulausir eðlisfræðingar fóru að vinna á Wall Street að semja al- grími fyrir afleiðuviðskipti og endaði með því að bandarísk yfirvöld þurftu að snara út milljörðum dala. Tina Fey - Bossypants bbbnn Tina Fey er margverðlaunaður gamanþáttastjóri og handritshöfundur vestan hafs og hefur vakið at- hygli fyrir beitta kímni sem vel er krydduð fárán- leika. Þessi bók hennar er og skemmtilesning, þó sumt sé svo bundið bandarískri menningu að erfitt er fyrir aðra að skilja nema þá sem eru vel heima í henni. Einna merkilegastar þótti mér frásagnir hennar af því hve miklir fordómar eru gagnvart konum í sjónvarpi þar vestan hafs og sérstaklega hvað karlremban var allsráðandi þegar hún kom þar til starfa í sjón- varspþættinum Saturday Night Live í lok tíunda áratugarins. Árni Matthíason arnim@mbl.is Erlendar bækur Innbundin skáld- verk og ljóð 1. Einvígið – Arnaldur Indriðason 2. Brakið – Yrsa Sigurð- ardóttir 3. Málverkið – Ólafur Jó- hann Ólafs- son 4. Jójó – Steinunn Sigurð- ardóttir 5. Hjarta mannsins – Jón Kal- man Stefánsson 6. Konan við 1000° Herborg María – Hallgrímur Helgason 7. Hausaveiðararnir – Jo Nesbø 8. Gestakomur í Sauðlauksdal – Sölvi Björn Sigurðsson 9. Feigð – Stefán Máni 10. Trúir þú á töfra? – Vigdís Grímsdóttir Hand- og fræði– bækur og ævisögur 1. Sagan sem varð að segja – Þor- finnur Óm- arsson 2. Holl ráð Hugos – Hugo Þór- isson 3. Sómamenn og fleira fólk – Bragi Krist- jónsson 4. Jólamatur Nönnu – Nanna Rögnvaldardóttir 5. Ómunatíð – Styrmir Gunn- arsson 6. Ný stjórnarskrá Íslands – Stjórnlagaráð 7. Icesave-samningarnir – Sig- urður Már Jónsson 8. Íslenskir fuglar – Benedikt Gröndal 9. Almanak Háskóla Íslands 2012 – Þorsteinn Sæmunds- son 10. Heilsuréttir Hagkaups – Sól- veig Eiríksdóttir Metsölulisti Eymundsson Lesbókbækur Skannaðu kóðann til að lesa Listinn er byggður á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar, Bóka- búðinni Eskju, Bókabúðinni Hamra- borg, Bókabúðinni Iðu, Bókabúðinni við höfnina Stykkishólmi, Bóksölu- stúdenta, Bónus, Hagkaupum, Kaupási, N1, Office 1, Pennanum- Eymundssyni og Samkaupum. Rann- sóknasetur verslunarinnar annast söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda. Verk rithöfundarins Ayn Rand ætla aðreynast lífseig. Rúmlega hálfri öld eftirað helstu bækur hennar, skáldsög-urnar Uppsprettan (The Fountain- head) og Undirstaðan (Atlas Shrugged), komu út seljast þær í bílförmum. Uppsprettan er nú komin út í íslenskri þýðingu Þorsteins Siglaugssonar og er útgáfa Undirstöðunnar boðuð strax á næsta ári. Alisa Zinovjevna Rosenbaum fæddist í Rúss- landi árið 1905. Hún var 12 ára þegar rússneska byltingin var gerð. Hún fór í háskólann í Petrog- rad og lagði áherslu á sagnfræði. Henni var vísað úr háskóla ásamt fleiri „borgaralegum“ stúd- entum, en fékk síðar að ljúka prófi. Um það leyti tók hún sér nafnið Ayn (borið fram æn) Rand. Árið 1925 fékk hún vegabréfsáritun til að heim- sækja ættingja í Bandaríkjunum og ákvað að setj- ast þar að. Metnaður hennar stóð til þess að skrifa kvikmyndahandrit. Fyrir tilviljun hitti hún leik- stjórann Cecil B. DeMille í Hollywood og fékk hlutverk sem aukaleikari í myndinni King of Kings. Þar hitti hún ungan leikara, Frank O’Con- nor, og giftust þau 1929. Með Uppsprettunni, sem kom út 1943, skapaði Rand sér nafn. Bókin fjallar um arkitektinn How- ard Roark og mun fyrirmyndin hafa verið Frank Lloyd Wright. Roark hefur hreina og ómengaða sýn, slær hvergi af og sveltur frekar en að gera málamiðlanir í verkum sínum. Í Undirstöðunni fjallar hún um iðnjöfra, vís- indamenn og listamenn, sem fara í verkfall og draga sig í hlé til að skapa frjálst hagkerfi til mót- vægis við sósíalískt stjórnarfar. Í Uppsprettunni er sú mynd sem Rand dregur upp af fyrirtækjaheiminum hins vegar ansi frá- hrindandi. Þar eru stjórnendur afætur, sem fleyta rjómann og láta undirmenn sína um alla vinnuna. Hugmyndafræði Rand nefnist objectivismi og hefur verið gefið íslenska heitið hluthyggja. Sam- kvæmt henni er „maðurinn hetjuleg vera og hamingja hans siðferðislegur tilgangur lífs hans“. Á öðrum stað talar hún um „siðferði skynsamrar gæslu eigin hagsmuna“. Hún var trúleysingi og lagði áherslu á rétt einstaklingsins, þar á meðal eignaréttinn, og taldi að laissez-faire eða óheftur kapítalismi væri eina siðferðislega nothæfa kerfið vegna þess að þar væru þau réttindi varin. Rand varð þekkt fyrir fyrirlestra sína. 1951 flutti hún til New York og safnaði um sig aðdáendum. Alan Greenspan, sem síðar varð yfirmaður bandaríska seðlabankans, var meðal þeirra. Einn- ig var í hópnum Nathaniel Branden. Milli Branden og Rand tókst ástarsamband, að sögn með sam- þykki maka þeirra. Branden setti á fót stofnun til að breiða út hugmyndafræði Rand. Þar var rík áhersla lögð á hollustu við orð Rand auk þess, sem sumir fylgismannanna klæddu sig í stíl við persónur í bókum hennar og keyptu sér eins húsgögn og hún. Rand sleit öllu sambandi við Branden þegar hún komst að því 1968 að hann væri í sambandi við aðra konu. Branden lokaði stofnuninni, sem hann hafði helg- að henni, og baðst síðar afsökunar á að hafa „ýtt undir dulúðina í kringum Rand“. Nafn Rand hefur verið áberandi í pólitískri um- ræðu í Bandaríkjunum eftir hrunið 2008. Út- varpsmaðurinn Rush Limbaugh hefur hana í miklum metum. „Ayn Rand skrifaði Atlas yppti öxlum,“ sagði hann í útsendingu. „Framhaldið heitir Atlas gubbaði og við erum í því miðju.“ Í mótmælum teboðshreyfingarinnar má sjá skilti með áletrunum á borð við „Ayn Rand hafði rétt fyrir sér“. Á sumum fundum hreyfingarinnar var byrjað á að lesa upp úr verkum hennar og síðan lýst yfir því að líta bæri á Undirstöðuna sem „aðra sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna“. Ekki er laust við að þarna sé mótsögn. Rand lof- samar fyrirmennin, elítuna, sem er eitur í beinum teboðsliða. Lýðræðið er Rand ekki mikils virði, en teboðshreyfingin vill auka veg grasrótarinnar. Teboðsliðunum finnst þeir hins vegar eiga sam- leið með Rand í gagnrýni sinni á stjórnlaust, bólg- ið og skuldum hlaðið velferðarsamfélag. Rand lést árið 1982. Í dánarbúi hennar voru tæplega 800 þúsund dollarar, sem hún geymdi á bankareikningi í sparisjóði gegnt íbúð sinni í New York. Alan Greenspan var meðal gesta í jarðarför- inni. Á kistunni var tveggja metra krans í laginu eins og dollaramerki. Gary Cooper lék arkítektinn Howard Roark í kvikmynd sem gerð var eftir The Fountainhead 1948. Ayn Rand tók því illa að lokaræða Roarks í dómsalnum var stytt og hét því að vinna aldrei með Warner Brothers framar. Hinar óbifanlegu hetjur Ayn Rand Ayn Rand tefldi fram hinum óbilgjarna hugsjónamanni, sem setur sjálfan sig ofar öðru og gerir ekki málamiðlanir. Verk hennar hafa reynst lífseig og gætir áhrifanna enn. Karl Blöndal kbl@mbl.is Alisa Zinovjevna Rosen- baum, eða bara Ayn Rand.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.