SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Side 21

SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Side 21
4. desember 2011 21 irfarandi byrjun á grein Þórðar Ingvars- sonar, ritstjóra vefs Vantrúar og stjórn- armeðlims félagsins, sem birt var á bloggsíðu hans um Sigurbjörn Einarsson biskup, í tilefni af því að eitt ár var liðið frá andláti Sigurbjörns: „Sirka 1 ár liðið … frá því að þessi frathaus, prumpuhali, rugludallur, geðstirða gamalmenni, sér- legur aðdáandi hinna myrku miðalda og baráttumaður fyrir endurupptöku þeirra helgu daga, óskammfeilin karlremba, trúarbulla, andlegi ofbeldisseggur, for- dómafulli drullusokkur og siðblindi síkó- pati féll frá.“ Greinin heldur áfram í svip- uðum stíl og síðan tekur við leikrit þar sem hann bætir við Karli Sigurbjörnssyni, syni hans og núverandi biskupi, og sam- bandið milli þeirra er gert kynferðislegt og öll verður þessi grein ógeðfelldari og ógeðfelldari. Þá tala nokkrir af for- ystumönnum Vantrúar um þá sem boða börnum kristna trú sem barnaníðinga. Þannig talar Matthías um prestastéttina eins og hún leggur sig sem „barnaníð- inga“ í grein sinni Berjum presta sem birt var á bloggvef hans Örvitanum 26. júlí 2005. Barnaníðs-ásakanir þeirra ná víðar en til prestastéttarinnar, þannig skrifar Þórður Ingvarsson í greininni Gráðugir barnaníðingar þann 19. september árið 2007 um þá sem ætla að einkavæða Orku- veituna: „Þessir fégráðugu kónar, þessir óforskömmuðu barnaníðingar...ég hef órökstuddan grun að þeir riðlast á börn- um.“ Þórður sakar líka Pál Magnússon út- varpsstjóra og Þórhall Gunnarsson þáver- andi dagskrárstjóra RÚV um að reka barnavændishring í grein sinni Frétta- og dagskrárstjóri útvarpsins frá 2007 og segir í annarri grein um Ómar Valdimars- son, upplýsingafulltrúa Impregilo: „Ómar þú ert barnaníðingur“. Vantrúarfélagar Þegar talað er við Vantrúarfélaga eru þeir mjög ósáttir við að efni af innra vef félags- ins þar sem þeir spjölluðu saman um tak- tík í baráttu sinni gegn Bjarna hafi verið lekið út. Aðgang að spjallinu á innra vefn- um hafa meira en 200 manns en þeir vilja meina að þar sé spjallað í hálfkæringi. Matthías Ásgeirsson er einn stofnenda Vantrúar og fyrrverandi formaður þess. Hann viðurkennir að stundum skrifi þeir og tali harkalega. En það hafi verið meira um það áður fyrr. Þegar honum er bent á skrif Þórðar Ingvarssonar, sem er núver- andi ritstjóri vefsíðu Vantrúar, um fyrr- verandi biskup Íslands, Sigurbjörn Ein- arsson, þá segist Matthías sammála því að þar sé farið yfir strikið en bendir á að hún hafi ekki fengist birt á síðu Vantrúar. „Þórður birti þetta á eigin bloggsíðu og við ráðum því ekki hvað fólk gerir á eigin bloggi, það er ekki í nafni Vantrúar.“ Aðspurður um eigin notkun á orði einsog barnaníðingar þegar hann er að tala um prestastéttina í heild í einum pistli sínum segir hann að í fyrsta lagi þurfi að skilja á milli þess hvenær menn eru sagðir kynferðislegir barnaníðingar og barnaníðingar hugans. „Einnig þess hvenær verið er að segja hlutina í hálf- kæringi og hvenær í alvöru. En þessi grein var skrifuð í reiði og ég held að þetta sé eina dæmið um að ég noti þetta orð um prestastéttina. En getur þú skilið hug- arheim föður sem á tvær dætur á leikskóla sem eru teknar úr hópnum meðan prest- urinn kennir hinum börnunum að biðja bænir? Föður sem gefst upp og lætur dæt- ur sínar frekar sitja undir trúboði heldur en að vera hafðar útundan. Ég skal bara játa það að ég var algjörlega brjálaður og ég fékk stundum útrás á blogginu mínu. Það má vel vera að ég megi skammast mín fyrir sumt af því, en annað stend ég bara algjörlega við. Þegar ég las síðan grein þar sem prestur talaði um að börn væru „heppilega trúgjörn“ þá sá ég rautt og skrifaði þessa grein. En hefur þú séð það sem prestar hafa kallað okkur Vantrúarfélaga? Ég veit um í það minnsta eitt dæmi þarsem séra Þór- hallur Heimisson kallar okkur níðinga.“ Aðspurður hvað honum finnist um það að samtökin hafi lýst yfir heilögu stríði gegn stundakennara í háskólanum, svarar hann strax: „Þú gerir þér grein fyrir því að tal um „heilagt stríð“ var djók – er það ekki? Það var hlæjandi broskarl og allt með athugasemdinni. Á að nota það gegn fólki að það slái á létta strengi í einka- samræðum?“ Blaðamaður Morgunblaðsins bendir á að þótt það hafi verið settur broskarl fyrir aftan setninguna þá fylgdi í kjölfarið eitt- hvað sem margir myndu líkja við stríð; greinar og komment á netinu sem skipta hundruðum blaðsíðna þar sem er ráðist mjög harkalega á Bjarna sem er ekki með neinn hóp í kringum sig og á ekki mögu- leika á að bera hönd fyrir höfuð sér í þessu flóði. Matthías er ekki tilbúinn til að sam- þykkja þetta. „Ég er ekki með nákvæma tölu yfir þetta, en ég held að það hafi ekki birst nema 30 – 40 greinar frá vantrúar- félögum um þetta mál. Og þetta mál skiptir okkur verulegu máli. Að okkar mati tók hann orð okkar úr samhengi þegar hann vitnaði í okkur í glærum sín- um og hann kynnir okkur sem orðljóta fylgismenn Dawkins sem leggja trúmenn í einelti og kynda undir kynþáttahatri og ofbeldi. Þetta er ekki eitthvað sem við sættum okkur við,“ segir Matthías. Fullyrðingar um að ekkert stríð hafi verið háð gegn stundakennaranum verð- ur að skoða í því ljósi að Bjarni sjálfur hef- ur safnað um hundrað greinum sem sam- tals eru yfir sjö hundruð blaðsíður þar sem aðalefnið er gagnrýni á hann eða að hann kemur til umfjöllunar. Síðasta greinin birtist á eyjan.is í fyrradag og virðist ekkert lát á þessu. Morgunblaðið/Golli Þórður Ingvarsson Óli Gneisti Sóleyjarson Reynir Harðarson ’ Þá tala nokkrir af forystumönnum Vantrúar um þá sem boða börnum kristna trú sem barnaníðinga. Matthías Ásgeirsson Baldvin Zarioh

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.