Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 34

Morgunblaðið - 03.03.2012, Page 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 ✝ Jón Hilmar Ólafsson fæddist í Reykjavík 29. októ- ber 1935. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 23. febrúar sl. Foreldrar hans voru Ólafur Jóns- son f. 14. október 1899, d. 27. sept- ember 1968 og Jar- þrúður Jónsdóttir f. 6. nóv- ember 1908, d. 2. júlí 1993. Ólafur var sonur hjónanna Jóns Guðmundssonar frá Ánanaust- um í Reykjavík f. 30. október 1860, d. 2. janúar 1947 og Þór- unnar Einarsdóttur f. 6. apríl 1863, d. 30. apríl 1944. Jar- þrúður var dóttir hjónanna Jóns Jónassonar frá Stokkseyri f. 21. júní 1861, d. 11. nóv- ember 1945 og Þóru Þorvarð- ardóttur frá Litlu Sandvík f. 15. nóvember 1877, d. 14. febr- úar 1950. Systkini Jóns eru þau Örn Ólafsson f. 4. apríl 1941 og Þórunn Ólafsdóttir f. 10. októ- ber 1944. Jón kvæntist Rósu Haraldsdóttur frá Seyðisfirði f. 27.6. 1938, þann 25. október 1958. Þeirra börn eru: A) Jar- 1. Sturlaugur Haraldsson f. 3.4. 1991, 2. Rósa Haraldsdóttir f. 20.4. 1993. 3. Helga Kristín Haraldsdóttir f. 13.6. 1998 og 4. Ingunn Rós Haraldsdóttir f. 6.8. 2001. E) Hjördís Þóra Jóns- dóttir f. 12.1. 1966, maki Jó- hannes Kristjánsson f. 24.2. 1965. Þeirra börn eru: 1. Adam Snær Jóhannesson f. 8.8. 1994 og 2. Jarþrúður Ósk Jóhann- esdóttir f. 19.5. 1998. Jón ólst upp í vesturbænum í Reykjavík, gekk í Miðbæjarskólann og tók þátt í íþróttastarfi KR. Hann fór snemma í sveit vestur að Kýrunnarstöðum í Hvamms- sveit og var þar með góðu og gegnheilu fólki, þeim Þuríði, Guðjóni, Karvel, Svövu og börnum þeirra. Kýrunnarstaða- heimilið var um margt mótað af hefðum fyrri kynslóða og hafði Jón alla tíð sterkar taugar til þessa fólks. Jón gekk í Reykjaskóla og lauk bú- fræðinámi frá Hvanneyri 1955. Hann vann um tíma hjá Vega- gerðinni en réðst austur að Laugardælum árið 1956. Hann hóf störf hjá Búnaðarsambandi Suðurlands árið 1958 og gegndi því starfi til ársins 1998, síðustu sjö starfsárin vann hann hjá Mjólkurbúi Flóa- manna. Útför Jóns Hilmars fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 3. mars kl. 14, jarðsett verður í Laugardælakirkjugarði að út- för lokinni. þrúður Jónsdóttir f. 25.2. 1957, gift Ásgeiri Albertssyni f. 19.7. 1955. Þeirra börn eru: 1) Jón Davíð Ásgeirs- son f. 25.2. 1980, maki Guðný Vala Dýradóttir f. 13.2. 1982, þeirra börn: a) Hildur Jara Jónsdóttir f. 21.8. 2005, b) Dagur Jónsson f. 8.2. 2010 og c) Hel- ena Jónsdóttir f. 13.12. 2011. 2. Arnar Ásgeirsson f. 28.7. 1982 og 3. Íris Erna Ásgeirsdóttir f. 13.3. 1989. B) Ólafur Jónson f. 16.7. 1959, kvæntur Auði Ingi- marsdóttur f. 26.3. 1960. Þeirra börn eru: 1. Þorgerður Ólafs- dóttir f. 15.3. 1985, 2. Gunn- hildur Ólafsdóttir f. 14.7. 1991. C) Kristín Jónsdóttir f. 3.10. 1960, gift Jóhanni Róbertssyni f. 8.4. 1960. Þeirra börn: 1. Þór- hallur Andri Jóhannsson f. 14.7. 1982, 2. Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir f. 21.6. 1990 og 3. Selma Þóra Jóhannsdóttir f. 6.3. 1998. D) Haraldur Reynir Jónsson f. 20.12. 1963, kvæntur Helgu Ingunni Sturlaugsdóttur f. 5.10. 1963. Þeirra börn eru: Tengdafaðir minn, Jón Hilmar Ólafsson, er látinn eftir harða en skammvinna baráttu við illvígt mein. Ég kynntist honum og Rósu hans fyrir tæpum 30 árum þegar samband okkar Ólafs, eldri sonar þeirra, hófst. Jón og Rósa bjuggu allan sinn búskap í Laugardælum, áttu þar hlýlegt heimili og fagran garð sem þau sinntu af stakri alúð. Þangað komum við með dætur okkar í faðm afa og ömmu, í indælt bakk- elsi eða mat og spjall um lífið og tilveruna. Þar kynnti Jón barna- börnum sínum sveitalífið, fór með þau í fjós til að skoða kýr og kálfa, rölti út í heiði, niður að á eða lék með þeim í garðinum. Jón var sveitamaður og rækt- andi að innstu hjartarótum. Með- fram starfi stundaði hann lengi matjurtaræktun og um miðjan aldur hófu þau hjónin skógrækt í reit í Laugardælum enda ötulir þátttakendur í starfi Skógrækt- arfélags Árnesinga. Þar standa nú hávaxin tré sem bera áhuga og natni þeirra vitni. Önnur áhugamál voru hrossarækt og landið, hann hafði mikla ánægju af að ferðast um sveitir og há- lendi og skoða íslenska náttúru í allri sinni dýrð. Jón var einstaklega jákvæður og glaðsinna maður og ljúfur í lund. Hann hafði ákveðna skoðun á mönnum og málefnum en ræddi þau mál ætíð af hæglæti og gerði grín að þegar honum fannst vitleysan í pólitíkinni ganga úr hófi fram. Hann bar hag landbúnaðarins fyrir brjósti og varði sína menn í umræðu um innflutning, inngöngu í EB eða aðrar ráðstafanir sem á góma bar. Framsóknarmaður var hann alla tíð og hvikaði hvergi þótt hart væri að flokknum sótt í um- ræðu við eldhúsborðið. Jón tókst á við veikindi sín af rósemd og æðruleysi. Hann hafði skilað góðu dagsverki, átt ham- ingjuríkt líf með Rósu sinni og ást og virðingu afkomenda og vina. Ég mun minnast hans þeg- ar ég lít tré í skógi, heyri gleði og góðlátlegt grín en þó best er ég mæti fólki sem horfir björtum augum á lífið. Og birtan umvefur minningu hans. Auður Ingimarsdóttir. Þegar ég minnist tengdaföður míns streyma fram endalausar minningar, allar góðar og já- kvæðar, ljúfar og skemmtilegar. Yndislegar minningar sem end- urspegla einmitt hvernig maður Jón var. Maður sem alltaf sá eitt- hvað gott í öllu fólki, hallmælti aldrei neinum. Maður með hlýtt viðmót og góða nærveru, jákvæð- ur, glaður og hláturmildur. Þetta átti hann ekki langt að sækja þar sem móðir hans, hún „Jara amma“ eins og hún var jafnan kölluð, var alveg einstök mann- eskja. Mér finnst ég vera lán- samur að hafa fengið tækifæri til að kynnast þeim báðum. Að um- gangast slíkar manneskjur er mannbætandi og gefur manni aðra sýn á lífið og tilveruna, á til- gang lífsins. Mér er minnisstætt þegar ég hitti Jón í fyrsta skipti. Það var fyrir þrjátíu og sjö árum og kom- ið að þeim tímapunkti að hitta verðandi tengdaforeldra í fyrsta sinn. Á hlaðinu í Laugardælum tók á móti mér unglegur, glæsi- legur maður, sólbrúnn, útitekinn og hraustlegur. Brosandi út að eyrum tók hann í höndina á mér og tók ég sérstaklega eftir því hvað handtakið var þétt og hlý- legt. Þegar inn var komið beið krásum hlaðið borð að hætti Rósu. Undir borðhaldinu sat Hjödda í fanginu á pabba sínum, eins og límd við hann og þau bæði í óstöðvandi hláturskasti, svo miklu að þau áttu í vandræð- um með að borða. Hafi ég verið kvíðinn og svolítið taugaóstyrkur þá hvarf það eins og dögg fyrir sólu, mér fannst þetta stórsnið- ugt og skemmtilegt og fann strax að okkur átti eftir að koma vel saman. Hann hafði alltaf lag á að finna spaugilegu hliðar málanna. Hann „afi í sveitinni“ eins og krakkarnir kölluðu hann gjarnan var mikið náttúrubarn, undi sér vel úti í náttúrunni, að gróður- setja tré og rækta, það var hans líf og yndi. Það var alltaf til- hlökkun hjá krökkunum að heim- sækja afa og ömmu í sveitina, velja sér gulrót eða rófu úr garð- inum og borða á staðnum, fá að fara í fjósið og skoða kýrnar, klappa hestunum og jafnvel fá að fara á hestbak, klappa kisum og hundum. Jara mín hefur oft rifj- að upp, dreymin á svip, hversu góðar æskuminningar hún á vegna þess hve góður pabbi Jón var. Alltaf kátur og hress, alltaf til í að leika og gera eitthvað skemmtilegt, þolinmóður og hlýr og talaði fallega við börnin. Allt þetta skilaði sér síðan til barna- barnanna sem nutu þess að vera með honum. Hann naut þess að ferðast, skoða landið og dást að náttúru- fari og trjágróðri. Ekki síður hafði hann gaman af að ferðast til útlanda. Mér er sérstaklega minnisstæð ferð sem við fórum með honum og Rósu, ásamt Halla og Helgu og börnum þeirra til Flórída fyrir nokkrum árum. Sérlega vel heppnuð og skemmti- leg ferð þar sem margt spaugi- legt gerðist sem við erum oft bú- in að rifja upp og hlæja mikið að. Eftir snarpa og harða baráttu er komið að leiðarlokum. Ég þakka þér samfylgdina Jón minn og þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér. Það hafa verið forréttindi að eiga þig fyrir tengdaföður. Ásgeir. Elsku besti afi. Ég á svo marg- ar hlýjar og skemmtilegar minn- ingar um þig. Þegar ég var lítil hlakkaði ég alltaf til að fara til „afa í sveitinni“. Þú faðmaðir mig hlýlega og knúsaðir. Varst alltaf hress og skemmtilegur og til í eitthvert grín. Það var svo frið- sælt og gott að koma til ykkar ömmu í sveitina. Þú varst svo mikið náttúrubarn. Sýndir mér trén í skóginum sem þú hafðir gróðursett, grænmetið sem þú ræktaðir og dýrin. Ég man eftir göngutúrunum í kring um golf- völlinn þar sem við tíndum upp fullt af golfkúlum, þegar við fór- um í fjósið og þegar við fórum í garðinn og tókum upp gulrætur og borðuðum af bestu lyst. Síðan spiluðum við og ég dúllaði við að greiða á þér hárið. Þú varst alltaf til í að gera eitthvað skemmti- legt. Ég gleymi aldrei ferðinni sem við fórum til Flórída fyrir nokkrum árum með þér og ömmu, Halla og Helgu og krökk- unum og svo kom Gauja frænka og var með okkur. Það gerðist svo margt ótrúlega sniðugt og skemmtilegt í ferðinni. Það voru mörg hlátursköstin sem við feng- um þá. Elsku afi, ég sakna þín mikið og mun alltaf minnast þín. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Íris Erna. Draumur, það er algjör draumur að eiga þig fyrir afa og rækta með þér eplatré fram og til baka. Svo komum við til ömmu og við hliðina á henni var rabbari og sykur. Morguninn eftir fórum við að ganga upp í fjós og þar var Hringur og hestarnir fóru að dansa tangó. Svo fáum við okkur ömmusúpu á eftir. Hugsuðum um að þetta væri undrandi dagur. Elsku afi, mikið á ég eftir að sakna þín og ég skrifaði fyrir þig þetta ljoð þegar þú varst veikur á spítalanum. Ég veit að þú ert engill núna og vakir yfir okkur og verður alltaf hjá mér. Ingunn Rós Haraldsdóttir. Afi, ég mun muna þig í sveit- inni að rækta trén þín úti í stykki. Alltaf varst þú glaður og hress og tilbúinn að gera eitthvað skemmtilegt með okkur. Ég veit að þú munt alltaf vera hjá mér. Ég mun hugsa oft til þín. Allar góðu stundirnar sem við áttum saman, fjölskyldan, þú og amma. Sundlaugarpartíið og Disney- ferðin til Flórída, gæðastundirn- ar á nesinu, í Laugardælum og í Úthlíðinni. Ég elska þig afi minn og þú munt alltaf fylgja mér. Helga Kristín Haraldsdóttir. Í veskinu mínu eru nokkrar myndir af vinum og fjölskyldu sem hafa fylgt mér síðustu árin á ýmsum ferðalögum. Myndir sem sporna við heimþrá og hjálpa til við að halda í tengslin við heima- landið. Ein myndanna er af okk- ur afa frá jólunum 8́5. Þó að eng- inn muni eftir fyrstu jólunum sínum, þá hefur þessi mynd, þetta ákveðna augnablik, verið ljóslifandi minning svo lengi sem ég man. Afi heldur brosandi á mér sem held á dúkku. Það er eitthvað svo kunnuglegt í svipn- um á afa sem fær mig til þess að horfa aðeins lengur á myndina í hvert sinn sem ég lít á hana. Ég þekki þennan svip, þetta er ætt- gengi grallarasvipurinn og brosið er hans helsta einkenni, rétt áður en hann brýst fram í hlátri. Þetta var einnig brosið hennar Jöru langömmu og afi minnti oft á hana, í málrómnum og í samræð- um við annað fólk þegar það heyrðist kunnuglegt „jájá“ og lágur dillandi hlátur fylgdi með. Eins bera öll börn afa og ömmu ákveðin karakter-einkenni sem tengja okkur meira saman en genin og þau koma sterkt fram í barnabörnunum og barnabarna- börnunum. Það er mín von að ég hafi erft þessa kosti og ræktað gegnum stundirnar með afa. Þessum brosmilda og hlýja manni sem bjó yfir einstakri lund. Í dag finn ég huggun í þeirri tilhugsun að við minnum í sífellu á hvort annað, að horfnir ástvinir búa í endalausum minn- ingum og hlutum tengdum þeim, en mest af öllu fólkinu sem það elskaði og skapaði minningarnar með. Þorgerður Ólafsdóttir. Fyrsta endurminning mín er að Þórunn, systir okkar fæddist. Ég var þá þriggja ára og undr- aðist grátinn í nýfæddu barninu. „En það er gott veður“ voru við- brögð mín. Einkum man ég þó frá bernsku vel eftir Jóni bróður, sem var sex árum eldri en ég, og menn geta ímyndað sér hvað ég dáðist að þessum hávaxna, fríða pilti, sem gat allt sem ég ekki gat. Við vorum sendir í sveit á sumrum, báðir til Guðjóns Ás- geirssonar bónda á Kýrunnar- stöðum í Dalasýslu, en þeir pabbi voru vinir frá því að pabbi vann í leðurdeild VBK. Ég tók við af Nonna í sveitinni og fékk oft að heyra hve ólíkir við bræður vær- um. Hann væri svo einstaklega laginn við skepnur, og kynni vel á öll sveitastörf. Það væri nú eitt- hvað annað en ég. Enda fór hann á unglingsárum á Landbúnaðar- skólann á Hvanneyri, og vann alla ævi við landbúnaðarstörf. En ég forðaðist þau ævilangt. Við ól- umst upp í íhaldsfjölskyldu, en Nonni varð stækur framsóknar- maður, ég kommúnisti. Aldrei fékk ég út úr yngri systur okkar, Þórunni, hvar hún stæði. Líklega of sjálfstæð í hugsun til að bind- ast flokki. Nonni vann svo lengst- um við kynbætur á nautgripum á stóru tilraunabúi að Laugardæl- um rétt austan við Selfoss, og kvæntist ungur fríðri konu, Rósu Haraldsdóttur frá Neskaupstað. Þau eignuðust fimm myndarleg börn sem öll fóru ung í farsæl hjónabönd. Barnabörnin voru sautján og þrjú barnabarnabörn, síðast þegar ég taldi. Öll þessi stórfjölskylda var samrýnd og þau héldu t.d. öll jól saman, til skiptis hjá Jóni og Rósu og mis- munandi fjölskyldum barna þeirra. Nonni bróðir var ræktarsam- ur, heimsótti foreldra okkar oft, þótt fjarri byggi, einkum var hann hugulsamur við mömmu eftir að pabbi dó, 1968. Mamma lifði aldarfjórðung eftir það, til 1993. Ég bjó lengstum erlendis undanfarinn aldarþriðjung, svo samskipti okkar bræðra og fjöl- skyldu hans urðu takmörkuð. Við Peris heimsóttum Nonna og Rósu á þeirra fallega heimili nú í desember, þegar við fréttum af krabbameini bróður míns, annað nýrað hafði þá nýlega ver- ið fjarlægt og blettir sáust í öðru lunganu. En Jón var hinn hress- asti, átti að fara í skoðun í janúar. Hann hjálpaði meira að segja við að ýta bíl Helgu dóttur minnar úr snjóskafli, enda þótt við segðum honum öll að vera ekki að þessu, veikur maðurinn. Þegar kom að janúarskoðun- inni reyndist hann vera altekinn krabbameini, maður sem aldrei hafði reykt, og sjaldan smakkað áfengi, og þá í hófi. Hann hafði alla ævi stundað utanhússvinnu, og var afar vinnusamur, í frí- stundum ræktaði hann rófur sér til tekjuauka, skógrækt og hrossarækt sér til ánægju. Og vissulega bjó hann að líkams- þreki allt til hinstu stundar, 76 ára. Ég heimsótti hann á Land- spítala um mánaðamótin janúar- febrúar, þá var hann léttur í lund og gamansamur, enda voru kona hans, börn, tengdabörn og niðjar daglegir gestir. Það hefur greini- lega létt honum síðasta æviskeið- ið. Ég á ekki heimangengt í jarð- arför bróður míns en árna fjöl- skyldu hans allra heilla. Örn Ólafsson. Jón Ólafsson frjótæknir eða Jón sæðari eins og hann var allt- af kallaður er fallinn frá eftir erf- iða baráttu við sjúkdóm sem sigraði að lokum. Hér á árum áð- ur var ekkert internet og engin facebook. Hvernig fór fólk að? Jú, þá voru það mannlegu sam- skiptin sem voru í fullu gildi. Þegar sæðarinn flautaði á hlaðinu spratt pabbi gamli af stað út í fjós og eftir aðgerðina var oft tekið kaffi í eldhúsinu og heimsmálin krufin til mergjar. Jón var tíður gestur í sveitinni því hann varð að sinn kalli kúnna þegar þeirra rétti tími var og er ég ekki frá því að það hýrnaði yf- ir fjósinu þegar Jón gekk í salinn. Einstaka sinnum var gamli upp- tekinn og þá var ég stundum sendur út til að finna spjaldið og halda í halann og ekki þótti manni það leiðinlegt því það var talið vera svona fullorðinsmanna- verk. Jón sýndi manni alltaf virð- ingu og spjallaði við mann eins og alvöru sveitamann. Jón hafði ákaflega hlýja og notalega nærveru og gott var að leita ráða hjá honum, þegar ég var kúahirðir og ekki með þetta allt á hreinu um ræktunina. Þakklátur er ég þeim vinskap sem hann veitti föður mínum sem fór sjaldan af bæ. Því var við- koma manna eins og Jóns honum ákaflega dýrmæt og er ég viss um að einhvers staðar hafa orðið fagnaðarfundir þegar leiðir lágu saman á ný. Samúðarkveðja, Þorvaldur Guðmundsson. Mig langar með örfáum orðum að minnast vinar míns Jóns Ólafssonar. Það var haustið 1972 þá ég 15 ára gamall réð mig sem fjósa- maður í Laugardælum. Þá var Jón starfandi frjótæknir sem kom í vitjanir flesta daga. Fljót- lega tókust með okkur góð kynni sem var ekki sjálfsagt fyrir mig, ungan manninn úr Keflavík, en þegar tíminn leið áttaði ég mig á því að þarna hafði ég eignast góð- an vin, þrátt fyrir talsverðan ald- ursmun. Jón alltaf léttur, glettinn, hafði gaman af að stríða manni en um leið hafði hann áhuga á hvað ungi maðurinn hafði fram að færa, góður hlustandi og fræðandi. Þegar ég nú lít til baka eftir að ég frétti andlát Jóns og fer yfir farinn veg sé ég enn betur hvað þessi sanni vinskapur hefur hald- ist alla tíð og það er mér mikils virði. Alltaf þegar við hittumst fann ég að honum var umhugað um mig og mína, hvað á mína daga dreif og oftar en ekki spurði hann um hestamennsku mína og bílabrall. Jón leitaði oft til mín í sam- bandi við bílamál, ef bíllinn hans þurfti viðgerð, eða hann ætlaði að endurnýja bílinn en þá sagði ég honum að hann skyldi bara fá sér Toyota því þeir biluðu ekki. Þessu fór hann eftir, en að sjálf- sögðu bila allir bílar og þegar Jón hringdi í mig og sagði að nú þyrfti að kíkja á bílinn, en það væri bara eftirlit því ég segði að Toyota bilaði ekki. Þetta var ein- mitt Jón, bara hafa grín út úr þessu. Jón var mikill fjölskyldumað- ur, það fann ég oft þegar ég spurði hann frétta af fjölskyldu hans, eða eins og við ræddum einhvern tímann, fjölskyldan er nú það eina sem við eigum þegar upp er staðið. Mér finnst Laugardælir tóm- legir heim að líta þessa dagana og sakna vinar. Við Elsa sendum Rósu og allri fjölskyldunni dýpstu samúð okk- ar. Gunnar Björnsson. Í dag er til grafar borinn Jón Hilmar Ólafsson kenndur við Laugardæli. Jón var fæddur í Reykjavík og ólst upp við Tún- götuna. Eftir nám á Hvanneyri lágu leiðir hans til starfa hjá Búnaðarsambandi Suðurlands sem frjótæknir með aðsetur hér í Laugardælum, þar sem hann kynntist eftirlifandi konu sinni og settist hér að, stofnaði fjöl- skyldu og bjó alla tíð ásamt Rósu sinni í Rósubæ eins og við nefnd- um húsið þeirra. Jón starfaði einnig við Laugardælabúið um tíma og síðustu starfsárin hjá MBF á Selfossi. Frítíma sínum eyddi Jón með- al annars í hestana sína, hann hafði gaman af hestum og miðl- aði til okkar sem yngri vorum. Stundaði Jón hestamennsku af töluverðum krafti og tók virkan þátt í félagsstarfi hestamanna- félagsins Sleipnis, þar sat hann í stjórn um tíma. Jón var einnig mikill jarðræktarmaður, ræktaði kartöflur og rófur sér til ánægju og búdrýginda á fyrstu búskap- arárum sínum. Á seinni árum var það garðurinn þeirra Rósu sem átti hug hans, ásamt stórri land- spildu þar sem hann vann að því að koma skógrækt af stað með skipulögðum hætti. Bera þessir tveir reitir honum fagurt vitni í dag og um langa framtíð. Jón var einstakur maður, það lá nær undantekningarlaust vel á honum hvað sem á gekk á hans lífsleið. Þurfti hann eins og við mörg að takast á við áföll í sínu lífi sem hann vann vel úr og er ég sannfærður um að hið jákvæða og uppbyggilega viðhorf hans til Jón Hilmar Ólafsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.