Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 35

Morgunblaðið - 03.03.2012, Síða 35
lífsins og samferðamanna sinna hefur átt stóran þátt í því hversu vel hann vann úr sínum málum. Jón var mikill barnakarl og leiddist ekki að leiða barnabörnin sín um útihúsin hér í Laugardæl- um þar sem hann átti mörg spor og sýna þeim dýrin, var oft glatt á hjalla og mikið hlegið og spjall- að. Þegar við Ólafur bróðir minn og fjölskyldur hófum búskap hér árið 1987 var Jón fyrstur manna að bjóða fram hjálp sína við þau störf sem hér þurfti að vinna við búið, var hann t.d. fyrstur mætt- ur í baggana sem lágu hér um öll tún, þegar heyskapur stóð yfir, strax eftir sína vinnu og hætti ekki fyrr en síðasti baggi var í húsi. Þannig var Jón. Minningin um Jón er björt og hver maður sem honum kynntist var veru- lega ríkari eftir þau kynni. Hann var maður samvinnu og sam- hjálpar og tók virkan þátt í því að byggja sitt samfélag upp í víðum skilningi, slíkir einstaklingar eru dýrmætir í sínu samfélagi. Fyrir hönd foreldra minna og fjölskyldna okkar Óla vil ég þakka þau forréttindi að hafa átt Jón að vini og nágranna og votta Rósu, börnum, barnabörnum og fjölskyldu hans samúð okkar. Haraldur Laugardælum. Í dag er borinn til grafar frá Selfosskirkju Jón Ólafsson, eða Jón í Laugardælum eins og við flest, samferðamenn hans, nefnd- um og þekktum hann. Jóni kynntist ég fyrst þegar ég réð mig sem ráðunaut hjá Búnaðar- sambandi Suðurlands. Jón hafði þá verið sæðingamaður þar eða eins og það heitir í dag á fagmál- inu frjótæknir. Á þeim tíma sá ég Jón sem einstaklega prúðmann- legan mann sem vann sitt verk af samviskusemi. Jón var hesta- áhugamaður og var hann virkur félagi í hestamannafélaginu Sleipni. Þar átti hann góða félaga og leið vel í þeim félagsskap og kunni að meta samveru við hesta og menn. Þegar árin liðu fékk Jón áhuga á skjólbelta- og skóg- rækt og hóf framkvæmdir á skógrækt á landi við býli sitt. Í framhaldi af því fór Jón að taka þátt í starfi Skógræktarfélags Hraungerðishrepps og síðar í störfum Skógræktarfélags Ár- nesinga. Þar hófust kynni okkar Jóns í Laugardælum af alvöru. Það var ljóst að þar fór maður sem var í senn áhugasamur og einstaklega velviljaður þessu starfi. Jón var kjörinn í stjórn Skógræktar- félags Árnesinga og starfaði þar að alúð og áhuga til margra ára. Jón og hans góða kona Rósa sóttu marga aðalfundi Skógrækt- arfélags Íslands með okkur hin- um fulltrúum Skógræktarfélags Árnesinga, þar veit ég að þau hjón kynntust mörgu frábæru skógræktarfólki víðs vegar af landinu. Þar eignuðust þau marga góða vini sem nú hugsa til þeirra stunda sem þau áttu sam- an í gleði og ánægju. Fyrir síð- ustu jól kom Jón að Snæfoks- stöðum þar sem við skógræktarmenn í Árnessýslu höfum okkar höfuðstöðvar og sótti sitt jólatré eins og venja var til. Þar áttum við góðar samræð- ur um framtíðarstörf Skógrækt- arfélags Árnesinga. Þær ein- kenndust ekki einungis af hugsunum fyrir daginn í dag heldur hugsunum til framtíðar sem mörkuðu fimmtíu til hundr- að ár. Þannig hugsa skógrækt- armenn og sjá framtíð þeirrar áhuga- og atvinnugreinar. Við Jón vorum sammála því að Snæ- foksstaðir yrðu miðstöð úr- vinnslu skógarafurða næstu ára- tugi í Árnessýslu. Við hjá Skógræktarfélagi Árnesinga þökkum Jóni af heilum hug fyrir mikinn velvilja og áhuga á störf- um félagsins. Eftirlifandi eigin- konu og fjölskyldu allri votta ég mína dýpstu samúð. Kjartan Ólafsson, formaður Skógræktarfélags Árnesinga. MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2012 ✝ IngibjörgMagnúsdóttir fæddist í Feigsdal við Arnarfjörð 18. júní 1920. Hún lést 26. febrúar 2012. Ingibjörg ólst upp í Feigsdal til 17 ára aldurs. Hún flutti þá í Reykj- arfjörð við Arn- arfjörð. Foreldrar hennar voru Re- bekka Þiðriksdóttir kennari og Magnús Magnússon bóndi. Systkini hennar voru Páll f. 1921, d. 2009, Helgi f. 1923, d. 1961, Magnús f. 1927, d. 2010, Svanlaug f. 1930 og Skúli f. 1934. Ingibjörg tók kennarapróf frá Kennaraskólanum 1942, kenndi á Bíldudal og síðar sem farkenn- ari í Borgarfirði með hléum til ársins 1952. Maki hennar var Þiðrik Baldvinsson, bóndi á Grenjum í Álftaneshreppi, f. 16.3 1911, d. 26.9 1996. Þau giftust 10.7. 1946 og bjuggu á Grenjum til ársins 1960 er þau fluttu í Borgarnes þar sem þau bjuggu síðan. Dóttir þeirra Rebekka Björk f. 28.11. 1955, maki Viðar Pétursson. Börn þeirra eru; 1. Hjalti – maki Flora Josephine Hagen Liste, þeirra börn Jenný Björk og Jak- ob Hrafn, 2. Kári, hans dóttir Guðrún Ágústa, 3. Ingi- björg, sambýlis- maður Óli Ívarsson, þeirra börn Hjördís Lilja og Rebekka, barn Ingibjargar Birkir Snær Ax- elsson, 4. Þiðrik Örn, hans sam- býliskona Valgerður Hlín Krist- mannsdóttir. Ingibjörg vann ýmis störf í Borgarnesi, m.a. í Prjónastofu Borgarness og starf- rækti stafaskóla. Hún vann öt- ullega í félagsmálum um árabil, var gjaldkeri í Verkalýðsfélagi Borgarness, ritari Kvenfélags Borgarness, gjaldkeri í Félagi eldri borgara í Borgarnesi, í stjórn DAB og sat m.a. í Barna- verndarnefnd. Hún átti þátt í stofnun fyrsta leikskólans í Borgarnesi. Hún ritaði fjölda greina í héraðsfréttablöð. Útför Ingibjargar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, laug- ardaginn 3. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 11. Amma var að mörgu leyti ósköp venjuleg amma. Hún pass- aði okkur systkinin ótal oft og var snillingur í bakstri, bakaði m.a. bestu kleinur, vínarbrauð o.fl. í heimi. Hún lumaði líka alltaf á ýmsu aðkeyptu góðgæti. Hún bauð iðulega upp á nammimola „í nesti“ í kveðjuskyni enda óralöng leið á milli Þorsteinsgötu og Borg- arvíkur! Í ófáum sveitaferðum okkar fjölskyldunnar upp í t.a.m. Grenjadal skellti maður ávallt óspennandi ostasamlokunni frá mömmu í andlitið á sér af eintómri skyldurækni og beið svo í ofvæni eftir því að sjá hvaða góðgæti væri í boði í nestisboxinu hennar ömmu. Gjarnan var þar að finna eitthvað af fyrrnefndu ljúfmeti. Það var semsagt ýmislegt sem var betra hjá ömmu en mömmu og hún var því eins og sjá má dæmi- gerð yndisleg amma. Með auknum þroska sá maður að hún var ekki okkar eintak af verksmiðjuframleiddri ömmu. Hún hafði sína kosti og galla eins og aðrir. Ég hugsa að hún móðgist ekkert þó ég kalli hana brussu. Hún var kraftmikill dugnaðar- forkur. Að fylgjast með henni hreinsa ber var t.d. algert bíó. Því- líkan andskotans djöfulgang við jafn mikið nákvæmnisverk hef ég aldrei séð. Hún var sennilega 100 sinnum fljótari en ég við þá iðju. Oftast felast nú gallar í kostunum og mér til mikils léttis tók ég eftir því að stundum læddist eitt og annað, jafnvel grænn lyngormur, með í skálina með hreinsuðu berj- unum! Hún var yfirleitt þægileg í um- gengni en þó var hún skapstór og það fór ekkert á milli mála þegar henni mislíkaði eitthvað. Stundum gersamlega sauð á henni þegar henni fannst mikið liggja við. Hún átti til að bíta í sig einhverja vit- leysu og þrjóska hennar var sem áþreifanlegur ókleifur múr. Þrátt fyrir þetta fór aldrei á milli mála að hún elskaði fjölskylduna sína skilyrðislaust og studdi okkur öll með ráðum og dáð. Þetta kristall- aðist kannski í því þegar hún beit það í sig að ég hefði orðið fíkni- efnadjöflinum að bráð. Til að gera langa sögu stutta kom hún einn daginn auga á eina af tóbaksdoll- unum mínum og taldi sig á sama tíma sjá að ástand mitt andlega væri annarlegt mjög. Það var auð- vitað alger misskilningur en hún brást ekki við með neinum blíðleg- heitum. Hún bara trylltist! Gerði dolluna upptæka og tilkynnti mömmu að sonur hennar væri orðinn dópisti. Hún fylgdist vel með mér næstu vikur og það hætti smám saman að sjóða á henni. Aldrei vildi hún nú viðurkenna að það að væna mig um dópneyslu væri að lágmarki umtalsverðar ýkjur. Viðbrögð ömmu skýrast af persónuleika hennar og ofboðs- legri væntumþykju og verndunar- þörf. Hún ætlaði ekki að láta mig komast upp með svo eyðileggjandi og hættulega iðju! Það fór illa í þessa kraftmiklu konu að eldast og sem betur fer lá hún ekki í kör í langan tíma. Allt hefur sinn tíma, hringrás lífsins hefur sinn gang. Við skulum muna að við erum nú öll eins og eitt lítið sandkorn í fjöru eilífðarinnar. Hún getur verið stolt af sínu fram- lagi í lífinu eins og við þekkjum það og gerir ábyggilega góða hluti þar sem hún er stödd núna. Takk fyrir allt, amma mín. Kári Viðarsson. Meira: mbl.is/minningar Mig langar til að minnast góðr- ar vinkonu minnar sem nú er fallin frá. Ingibjörg Magnúsdóttir var ættuð af Vestfjörðum, hörkudug- leg, vel gefin, fróð og skemmtileg með alveg einstakan húmor. Ég kynntist henni 6 ára gömul í Borgarnesi þegar amma mín sem þá bjó efst í Þorsteinsgötunni sendi mig niðureftir til þess að kynna mig fyrir fjölskyldu sem hún þekkti og var nýflutt í bæinn. Húsið þeirra var neðst í götunni og ég átti að hitta einkadótturina sem var að flytjast á mölina og þekkti engan svo álitið var að sú stutta þyrfti á vini að halda. Ég skokkaði niður brekkuna og heils- aði upp á fólkið og eflaust hefur meðfædd nýjungagirni rekið mig áfram því það var ekki á hverjum degi sem nýtt fólk kom í bæinn. Inga minntist þess stundum við mig þegar ég birtist í fyrsta sinn, hef eflaust verið feimin og undir- leit en án efa var tekið vel á móti mér því í kjölfarið varð ég heima- gangur hjá fjölskyldunni og naut þeirra gæsku alla tíð. Þau hjónin Inga og Þiðrik höfðu búið á Grenjum á Mýrum, dóttir þeirra Rebekka var jafn- gömul mér og urðum við góðar vinkonur og svo skólasystur allan barnaskólann. Ég kom úr 5 systk- ina hópi þar sem mér fannst oft heldur þröngt um mig og óþarf- lega mikið af strákum sem þurfti að stjórnast með og naut því þess að eyða tímanum í rólegheitum hjá Bekku þar sem var fámennt og góðmennt en nóg pláss, ynd- islegt fólk og frábært atlæti. Húsið var stórt, leiksvæðið náði um það allt, lóðina og fjöruna. Í kjallara var stórt herbergi þar sem við settum upp verslun og lékum búðarkonur alla daga. Diddi smíðaði allt sem til þurfti til verslunarreksturs og stóran skáp höfðum við í búðinni þar sem við röðuðum umbúðum af vörum sem voru okkar söluvara. Seinna setti hann upp borðtennisborð sem við æfðum okkur á í mörg ár. Inga var á þessum árum heima- vinnandi, húsmóðir af gamla skól- anum sem vann allt heima og allt- af með kaffi, smurt og heimabakað á réttum tíma svo við, sem lékum okkur alla daga, þurft- um ekki annað að gera en koma þegar kallað var. Ég naut þess að vera vinkona Bekku og var ansi oft tekin með í sunnudagsbíltúra um sveitirnar, á Leirulæk, um Mýrarnar og Borgarfjörðinn og seinna var okkur skutlað á skauta á Skervötnin og meira að segja í Húsafell þar sem við fengum að eyða tíma á útihátíðinni frægu. Þau voru samhent hjón og milli þeirra ríkti gagnkvæm virðing en ákaflega létt og skemmtilegt sam- band, þau voru einstaklega sposk og stríðin hvort við annað en alltaf á góðlegan máta. Inga átti ein- staka spretti þegar hún blandaði leikrænum tilburðum við lifandi frásagnir og skellihló svo sínum smitandi hlátri. Jafnframt var hún mjög ákveðin í skoðunum með sterka réttlætiskennd og sagði hiklaust meiningu sína ef þannig bar við, hún var framsýn nútíma- kona í hugsun. Þó árin liðu milli heimsókna var alltaf jafn gaman að líta inn hjá þeim og svo henni eftir að hún var orðin ein, alltaf var eins og við hefðum sést í gær. Vinkonu minni Bekku, Viðari og börnum votta ég innilega sam- úð mína og Ingibjörgu þakka ég fyrir allt. Sigríður S. Helgadóttir. Ingibjörg Magnúsdóttir ✝ Eiríkur Ó. Þor-valdsson (Eddi í Nýjabæ) fæddist í Nýjabæ á Höfn í Hornafirði 12. nóv- ember 1947. Hann lést á Landspít- alanum 24. febrúar 2012. Foreldrar hans eru Sveinbjörg Ei- ríksdóttir, fædd í Bæ í Lóni 26. nóvember 1929, og Þorvaldur Kröyer Þor- geirsson, fæddur á Seyðisfirði 28. mars 1930, d. 1. maí 2009. Systkini Eiríks eru Elín Krist- jana, f. 30. september 1952, og Þorgeir Guðjón, f. 20. mars 1959. Eiríkur kvæntist Rannvá Di- driksen þann 31. desember 1968. Rannvá fæddist í Vestmanna í Færeyjum 12. september 1946. Foreldrar hennar voru Anna Di- driksen, f. 29. júní 1912, d. 5. júlí 1990, og Hans Didriksen, f. 9. nóvember 1903, d. 6. desember 1988. Eiríkur og Rannvá bjuggu á Höfn til 1978 er þau fluttust ásamt dótt- ur sinni til Færeyja þar sem þau hafa búið síðan. Þau eignuðust eina dóttur, Önnu, f. 10. nóvember 1966. Börn hennar eru Björgvin Annar Gústavsson, f. 16. júlí 1999, og Rannva Björk Jak- obsdóttir, f. 26. júlí 2006. Að loknu landsprófi á Norð- firði starfaði hann hjá Kaup- félagi Austur-Skaftfellinga (KASK), einkum við versl- unarstörf, og stefndi á Sam- vinnuskólann. Síðan var hann eitt ár á varðskipinu Óðni og þá í Mjólkursamlaginu á Höfn, 17 ára að aldri. Eiríkur fór til náms í Danmörku árið 1969 og lauk prófi við Dalum Mejeriskole á Fjóni 1970. Við heimkomuna hvarf hann aftur til starfa í mjólkursamlaginu, en þá var far- ið að huga að nýrri samlagsbygg- ingu, sem síðan varð starfhæf 1973. Það sama ár tók hann við starfi mjólkursamlagsstjóra. Því gegndi hann til hausts 1978 þeg- ar hann var ráðinn til Færeyja til að stýra þar nýju mjólkurbúi færeyskra bænda, sem þá var enn ófullgert. Þannig vann hann brautryðjandastarf í færeyskum mjólkuriðnaði sem fram- kvæmdastjóri Mjólkarvirki Bún- aðarmanna. Mjólkurbúsrekst- urinn vatt upp á sig; stofnað var til fleiri þjónustudeilda, slát- urhúss, fóðurvörudeildar, véla- deildar og innflutnings á drátt- arvélum og öðrum búskapartækjum, verkstæðis o.fl. Hið nýja félag fékk nafnið Meginfélag Búnaðarmanna eða MBM, sem fór undir forræði Ei- ríks. Hann starfaði sem forstjóri MBM til æviloka eða í 33 ár. Útför Eiríks fer fram frá Vest- mannakirkju í Færeyjum í dag, 3. mars. Elsku Eddi! Hetjulegri baráttu þinni við illvígan sjúkdóm er lokið. Ég trúi því að pabbi hafi tekið á móti þér og ummvafið þig ást sinni. Ég trúi að látinn lifir lífi þá lokið er. Alvald sem öllu er yfir ekki mun gleyma þér. Þessi vísa er eftir mömmu og við þessa trú ólumst við systk- inin upp. Myndir minninganna frá upp- vaxtarárunum í Nýjabæ streyma um hugann minn og eru bæði fallegar og ljúfar. Að alast upp með foreldrum sínum, bræðrum, afa og ömmu ásamt Rúnu er forréttindi sem ég er mjög þakklát fyrir. Þú hafðir áhuga á því að mennta þig og mjólkurfæði varð fyrir valinu. Þú varst kominn með fjöl- dskyldu, elskulega eiginkonu og litla dóttur og þær fylgdu þér til Danmerkur til náms. Bæði hafðir þrek og þor þekking varð til bóta. Eftir vetur, eftir vor ávöxt munt þú hljóta. (S.E.) Er heim var komið úr námi varst þú mjólkurbússtjóri á Höfn. Árið 1978 föluðust Færeying- ar eftir þínum starfskröftum til uppbyggingar á Mjólkarvirki Búnaðarmanna og fjölskyldan fluttist til Færeyja, þú tókst við stjórnartaumunum og stýrðir allar götur síðan uns þrek þitt var þrotið. Guð á himnum gæti þín og gefi allt hið besta. Ef á þér rætist óskin mín auðnu hljóttu mesta. Þó að leiðin virðist vönd vonin veg þinn greiði. Bið ég þess að heilög hönd hjálpi þér og leiði. Báðar þessar vísur orti mamma til þín þegar þú varst að byggja upp Mjólkarvirki Bún- aðarmanna. Aldrei er dauðinn neinn auðfús gestur en einstaka sinnum kærkominn þó. Þegar að hugur og þrekið allt brestur, þá horfum við flest öll himinsins til, hér verða oftast á lífinu skil. Þegar síðast þrautin er unnin, þráum við hvíld þá er ætluð oss var. Á þegar síðasti svefninn er runninn og sólin er hnigin í kvöldroðans mar. Þá gengur þú léttfættur, glaður í lund, gengur til himins á feðranna fund. Eftir er minningin ein til að ylja. Allt sem er gengið á líðandi stund. Minningar lifa og minningar skilja, myndirnar eftir á samverugrund. Þú fleyinu stýrir á frelsarans fund, þar fagna þér vinir í eilífðarfund. (Marie.) Guð geymi þig, elsku Eddi. Innilegar samúðarkveðju frá okkur Jóni til Rannva, Önnu, Björgvins, Rönnvu Bjarkar, mömmu, ættingja og vina. Elín og Jón Hafdal. Eiríkur Þorvaldsson er látinn, hann mátti láta undan í baráttu sinni við krabbamein, sem upp- götvaðist alltof seint. Fráfall Ei- ríks kom mörgum í opna skjöldu, þeim sem ekki voru í stöðugu sambandi við hann. Hann hafði verið búsettur í Færeyjum í meira en þrjá ára- tugi en hann kom reglulega til Íslands, ýmist í viðskiptaerind- um eða til að heimsækja ætt- ingja og vini, einkum eftir að Anna, hjartfólgið einkabarn hans, flutti til gamla föðurlands- ins og hóf hér búskap. Eiríkur átti hér marga vini, ekki sízt úr þeim mörgu ferða- hópum úr íslenzkum mjólkuriðn- aði sem heimsóttu Eirík og fyr- irtæki hans í gegnum árin og nutu ómældrar gestrisni hans og hlýlega viðmótsins, sem honum var svo tamt. Vinátta okkar Eiríks hófst fyrir alvöru um það leyti sem hann tók við starfi mjólkurbús- stjóra í nýrri stöðvarbyggingu KASK á Hornafirði, en þar hófst þá ostagerð. Gæðavandamál komu upp og reyndi ég að vera honum til aðstoðar við að leysa þau. Hann var óspar á að leita sér aðstoðar ef með þurfti og þannig hófst okkar langa sam- vinna bæði í leik og starfi. Sem stjórnandi af guðs náð fylgdi hann þeirri lífsspeki að vera ekki að vasast í öllu sjálfur, heldur finna þá til sem hann taldi að gætu gert hlutina jafn vel eða betur en hann sjálfur. Ýmislegt var það þó sem honum lét betur en flestum, þ.e. að halda saman hópnum sínum, samstarfsfólkinu, sem hann alla tíð sýndi fulla virðingu, og eiga gleðistundir með þeim og öðrum vinum. Við Eiríkur áttum marga gleðilega fundi saman og vinátta okkar, með gagnkvæmum heim- sóknum, stóð af sér fjarlægðir og aðrar hindranir allt til dauða hans. Eftir standa nú ættingjar hans og nánasta fjölskylda í sorg og harmi, sem ég deili einlægt með þeim, enda var vinátta okk- ar Eiríks á fjölskyldugrundvelli. Megi þær Rannvá og Anna finna nokkra huggun í minningunni um mann sinn og föður, sem var svo sérstakur og athyglisverður maður. Sævar Magnússon. Eiríkur Ó. Þorvaldsson erfidrykkjur Sigtúni 38, sími: 514 8000 erfidrykkjur@grand.is / grand.is Hlýlegt og gott viðmót Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum Næg bílastæði og gott aðgengi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.