Morgunblaðið - 14.03.2012, Side 1

Morgunblaðið - 14.03.2012, Side 1
Morgunblaðið/Kristinn Dómur Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans. Til greina koma að Seðlabankinn hótaði bönkunum að upplýsa alþjóð- legu matsfyrirtækin um veika stöðu þeirra til þess að setja þrýsting á þá í aðdraganda bankahrunsins 2008. Þetta kom m.a. fram í máli Tryggva Pálssonar, framkvæmdastjóra fjár- málasviðs Seðlabankans, fyrir Landsdómi í gær. Tryggvi sagði að bankarnir hefðu á hinn bóginn verið mjög háðir mats- fyrirtækjunum og hefði orðið af þessum hótunum hefðu stjórnvöld orðið völd að falli þeirra. Spurður um starf samráðshóps um fjármálastöðugleika á vegum stjórnvalda, sem starfandi var í að- draganda hrunsins, sagði Tryggvi hópinn hafa verið settan upp sem vettvang fyrir skoðana- og upplýs- ingaskipti og hafi hann virkað vel sem slíkur. „Það bjargaðist“ Tryggvi sagðist hins vegar hafa lýst þeirri skoðun sinni 2008 að þörf væri á aðgerðahópi. „Ég taldi að það þyrfti að setja upp aðgerðahóp og orðaði það oftar en einu sinni að það þyrfti herforingja til þess að stjórna honum. Þessi hópur væri góður sem ráðgefandi hópur en hann væri ekki byggður af þeim persónum sem hefði þurft í svona aðgerðahóp.“ Þegar á hólminn hefði verið komið sagðist Tryggvi þó telja að þær að- gerðir sem gripið hefði verið til hefðu reynst farsælar. „Þegar komið er að krísu þarf að taka snöggar ákvarð- anir undir álagi og það bjargaðist.“ Vildi aðgerðahóp stýrt af „herforingja“  Kom til greina að Seðlabankinn hótaði bönkunum  Aðgerðirnar farsælar þegar á hólminn kom MDeilt var um starf … »18 M I Ð V I K U D A G U R 1 4. M A R S 2 0 1 2  Stofnað 1913  62. tölublað  100. árgangur  BASTARD VERÐ- UR SÝNT Í ÞREM- UR LÖNDUM LJÓÐ MEÐ HJÁLP PENDÚLS KONGÓ ER DREIFINGAR- OG VIÐBURÐAFYRIRTÆKI ÓVENJULEGT 10 UMGJÖRÐ OG UPPLIFUN 40FJÖLÞJÓÐALEIKSÝNING 39 Morgunblaðið/Júlíus Úr Ránsfengurinn náðist. Einn maður hef- ur verið dæmdur fyrir aðild að málinu.  Embættismenn í innanríkisráðu- neyti vinna að gerð frumvarps um lögfestingu Íslands á evrópsku handtökutilskipuninni. Eftir inn- leiðingu hennar ber yfirvöldum í aðildarríkjum að handtaka saka- mann og framselja til þess ríkis þar sem brotið er framið, hvar sem hann er ríkisborgari. Í gær var einn þeirra þriggja Pól- verja sem hafa verið eftirlýstir vegna ránsins í úraverslun Michel- sen á Laugavegi fluttur til landsins en hann var handtekinn í Sviss. Maðurinn var úrskurðaður í gæslu- varðhald til 21. mars. »24 Undirbúa lögfest- ingu handtöku- tilskipunar Evrópu Gagnrýni Arion » Afnám hafta nú ótrúverðugt og framkvæmdin sýni það. » Ekki hægt að afnema höftin án verulegrar veikingar sem skili sér í verulegri kaupmáttar- og eigna- skerðingu. Sigrún Rósa Björnsdóttir Ágúst Ingi Jónsson Sérfræðingar sem rætt var við eru áhyggjufullir vegna óvissu um lang- tímaáhrif á gengi krónunar þegar spurt er um áhrif af lagasetningu Alþingis í gær sem felur í sér herð- ingu gjaldeyrishafta. Áhrifin komi helst fram í því að fjárfestar á skuldabréfamarkaði búist við minni verðbólgu til skamms tíma litið. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka lífeyrissjóða, hefur áhyggjur af þeim áhrifum sem veik- ing krónunnnar getur haft á bæði kjarasamninga og fjárfestingar sjóðanna. Agnar Tómas Möller hjá GAM Management segir að til lengri tíma litið sé nær óhjákvæmilegt að vænt- ingar um minni verðbólgu gangi til baka þar sem Seðlabankinn muni fyrr en seinna stíga stærri skref í að aflétta höftunum, eða þá að herðing haftanna muni smám saman grafa undan krónunni sem muni skila sér í veikingu hennar til lengri tíma. Orri Hauksson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, lýsir því yfir á vefsíðu samtakanna að hann óttist að traust fjárfesta á Íslandi rýrni enn frekar. Arnór Sighvatsson aðstoðarseðla- bankastjóri segir hins vegar að að- gerðirnar, sem hafi verið gerðar í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn miði að því draga úr áhættu og koma í veg fyrir að krónan veikist. Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, segir breytingarnar geta skilað sér í sterkari krónu, þar sem ekki verði af því útflæði í bráð sem lagasetningin eigi að stöðva. »Minnkandi|2 og 12 Óttast veikingu krónunnar  Segja áhrif hertra hafta geta skilað sér í minni verðbólgu til skemmri tíma  Miklar áhyggjur af óvissu og afleiðingum aðgerðanna til lengri tíma litið Björninn úr Grafarvogi varð í gærkvöld Íslands- meistari í í́shokkí í fyrsta skipti með því að sigra Skautafélag Reykjavíkur, 7:4, í fjórða úrslitaleik liðanna sem fram fór í Egilshöllinni. Þetta er fyrsti stóri titillinn sem karlalið úr Grafarvogi vinnur í hópíþrótt. Sergei Zak skoraði þrjú marka Bjarnarins og hafði ríka ástæðu til að fagna inni- lega í leikslok, enda verið við störf hjá félaginu í tólf ár sem leikmaður og þjálfari. » Íþróttir Björninn varð Íslandsmeistari í fyrsta skipti Morgunblaðið/Golli  BSRB telur að fyrrverandi deildarstjóri launadeildar Sel- tjarnarnesbæjar eigi rétt á miskabótum vegna brott- reksturs úr starfi í sept- ember á síðasta ári. Bandalagið hefur ráðið lögfræðing sem mælir með málshöfðun. Óánægja er hjá fleiri fyrrverandi starfsmönnum sem sagt hefur verið upp störfum. Fjallað verður um mál Ólafs Melsteð, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs, á bæjarstjórn- arfundi í dag. Hyggst hann höfða mál ef bærinn verður ekki við kröfum hans um bætur. »6 Fleiri undirbúa málshöfðun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.