Morgunblaðið - 14.03.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ljóðabókin Nötur gömlu nú-tíðarinnar eftir tunglbú-ann Emmalyn Bee (em-malynbee.com), öðru
nafni Þórdísi Björnsdóttur ljóð- og
sagnaskáld, er heldur óhefðbundin.
En ljóðabálkinn skrifaði Þórdís með
aðstoð pendúls sem sá um að velja
stafina í bókina, einn í einu. Hún
föndraði síðan öll eintök bókarinnar
sem minnir einna helst á minnisbók
innbundna með svolitlum snær-
isspotta.
Seinlegt en skemmtilegt
„Það er seinlegt að búa til ljóð
með pendúl en líka gaman. Ég hafði
notað pendúlinn í dálítinn tíma og
það hafði virkað vel að nota spurn-
ingar og svör. En síðan datt mér í
hug að nota stafrófið þannig að
pendúllinn segði já eða nei við hverj-
um staf. Þetta var grunnurinn að
ljóðabálkinum en það var svolítil of-
notkun á orðum og svo kom hann all-
ur í rugli þannig að brotin komu ekki
alveg í réttri röð. Ég þurfti því að
laga þau og púsla þessu dálítið sam-
an. Nú er bók með sama sniði í smíð-
Ljóðabálkur varð til
með hjálp pendúls
Ljóðabókin Nötur gömlu nútíðarinnar hefur að geyma ljóðabálk sem skrifaður
var orð fyrir orð með hjálp pendúls. Orðin eru óvenjuleg og sum komu í belg og
biðu. Ljóðskáldið Þórdís Björnsdóttir, öðru nafni Emmalyn Bee, þurfti því að hag-
ræða þeim þannig að vel færi. Í ljóðunum má finna orð eins og gúglóþurft og gúgl-
óðamála sem vísar í lifnaðarhætti hins vestræna nútímamanns.
Morgunblaðið/Golli
Ljóðskáld Þórdís Björnsdóttir hefur mikinn áhuga á dulspeki og hefur nú skrifað ljóðabálk með hjálp pendúls.
Forsíða Nötur gömlu nútíðarinnar.
Fyrir þá sem vilja fylgjast vel með
tískunni og vita hvar þeir geta keypt
flíkur og fylgihluti sem þeir sjá í
tímaritum og blöðum þá er poly-
vore.com rétta vefsíðan. Þar eru sett-
ar inn síður úr ýmsum tísku-
tímaritum. Til hliðar má sjá fötin á
síðunni, hvað þau kosta og hvar þau
er hægt að kaupa. Sumt kemur vissu-
lega stundum fram í tískugreinunum
en ef ekki þá er þægilegt að hafa all-
ar upplýsingar á einum stað.
Á síðunni er líka veitt tískuráðgjöf
og getur fólk sent þar inn spurningar
eins og í hverju sé best að vera við
þröngar buxur í skærum lit? Eða
hvernig skór passi best við rósótta
kjólinn sem þú varst að kaupa þér?
Polyvore.com er skemmtileg og litrík
síða sem getur gefið manni ýmis góð
ráð varðandi tísku. Nú fara líka að
koma vor- og sumarföt sem er alltaf
jafnskemmtilegt eftir veturinn.
Vefsíðan www.polyvore.com
REUTERS
Útlit Tískan er oft á tíðum skemmtilega skrýtin og fer í hringi.
Tískuráðgjöf á vefnum
Málefni fatlaðs fólks í alþjóðlegu ljósi
verða rædd á málþingi um fyrstu
skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar og Alþjóðabankans um fötlun –
(World Report on Disability. Það er
velferðarráðuneytið sem býður til
málþingsins í samstarfi við forsæt-
isráðuneytið, innanríkisráðuneytið,
Embætti landlæknis, Mannréttinda-
skrifstofu Íslands, Öryrkjabandalag
Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp
og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum
við Háskóla Íslands. Málþingið hefst
klukkan 13:15 á morgun, fimmtudag
15. mars, á Grand hóteli. Nánari upp-
lýsingar má finna á Facebook.
Endilega …
… sækið alþjóð-
legt málþing
Morgunblaðið/Ernir
Málþing Málefni fatlaðra verða rædd.
Á Hólum í Hjaltadal verður boðið upp
á dagskrá í tengslum við dag Guð-
mundar biskups góða föstudaginn
16. mars. Þar mun Páll Skúlason pró-
fessor flytja erindi sem hann nefnir
Siðfræði og hlutverk háskóla.
Jón Már Héðinsson, skólameistari
MA, mun bregðast við erindinu og
síðan verða almennar umræður. Að
loknu málþinginu um 17:30 verða
tónleikar í Hóladómkirkju. Þá verður
veittur styrkur úr Áheitasjóði Guð-
mundar góða, sem varðveittur er við
Hóladómkirkju. Guðmundur Arason
var biskup á Hólum frá 1203 til 1237
og þótti hann góður til áheita og þyk-
ir enn því reglulega berast áheit í
sjóð Guðmundar góða. Að samkom-
unni standa Hóladómkirkja, Guð-
brandsstofnun og Menntaskólinn á
Akureyri. Dagskráin verður í Auð-
unarstofu og hefst kl. 16:00.
Hólar í Hjaltadal
Dagur Guðmundar biskups góða
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hóladómkirkja Tónleikar verða
haldnir í kirkjunni að loknu málþingi.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
FLOTTAR FERMINGARGJAFIR
HJÁ JÓNI OG ÓSKARI
Hekla silfurhálsmen
zirkonia-steinar
8.100 kr.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
Hekla silfurhálsmen
með zirkonia-steini
13.900 kr.
www.jonogoskar.is Laugavegi 61 / Smáralind / Kringlan
Hekla silfurhringur
með zirkonia-steini
14.500 kr.
Hekla silfurlokkar
8.000 kr.