Morgunblaðið - 14.03.2012, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
Aðalmeðferð í landsdómsmálinu
Anna Lilja Þórisdóttir
Kjartan Kjartansson
Ágreiningur var um það innan sam-
ráðshóps um fjármálastöðugleika
hversu langt ætti að ganga í að taka
á spurningum um viðbrögð stjórn-
valda við hugsanlegu fjármálaáfalli.
Þetta kom fram í vitnisburði
Tryggva Pálssonar, framkvæmda-
stjóra fjármálasviðs Seðlabankans,
fyrir Landsdómi í gær.
„Auðvitað má alltaf gera betur.
Samráðshópurinn var settur upp
sem skoðana- og upplýsinga-
skiptahópur. Hann virkaði allvel
sem slíkur,“ sagði Tryggvi þegar
hann var spurður um störf hópsins.
Seðlabankamenn hafi viljað að
samráðshópurinn tæki afstöðu til
fleiri álitamála sem kæmu upp í fjár-
málaáfalli, t.d. hvort og hvernig ríkið
myndi styðja tryggingarsjóð inni-
stæðueigenda. Bolli Þór Bollason,
formaður hópsins, og Baldur Guð-
laugsson, þáverandi ráðuneytisstjóri
í fjármálaráðuneytinu, hafi hins veg-
ar ekki viljað ganga eins langt í und-
irbúningi.
Skort hafi upp á að stjórnvöld
veittu hópnum upplýsingar um
hversu langt væri hægt að ganga til
að afstýra fjármálaáfalli án þess að
ógna stöðu ríkissjóðs.
Upplýsingar bárust ekki áfram
Tryggvi sagðist oft hafa lýst þeirri
skoðun sinni á árinu 2008 að þörf
væri á aðgerðarhópi í stað samráðs-
hópsins.
„Ég taldi að það þyrfti að setja
upp aðgerðarhóp og orðaði það oftar
en einu sinni að það þyrfti herfor-
ingja til þess að stjórna honum.
Þessi hópur væri góður sem ráðgef-
andi hópur en hann væri ekki byggð-
ur af þeim persónum sem hefði
þurfti í svona aðgerðarhóp.“
Gengið hafi verið út frá því að um-
ræður í hópnum bærust til viðkom-
andi ráðherra en það virðist ekki
hafa gerst þrátt fyrir að þrír ráðu-
neytisstjórar hafi átt sæti í honum.
„Maður spyr sig, hversu marga
ráðuneytisstjóra þarf til þess að
koma þessum gögnum áleiðis,“ sagði
Tryggvi.
Gullin regla um ábyrgðina
Hann er þó þeirrar skoðunar að
þegar á hólminn var komið hafi þær
aðgerðir sem gripið var til verið far-
sældar.
„ Þegar komið er að krísu þarf að
taka snöggar ákvarðanir undir álagi
og það bjargaðist,“ sagði Tryggvi.
Andri Árnason, verjandi Geirs H.
Haarde, spurði Tryggva hvort at-
hugasemdir Seðlabankans við störf
samráðshópsins hefðu ekki aðeins
verið flótti bankans frá eigin skyld-
um til að grípa til aðgerða.
Því sagðist Tryggvi vera algerlega
ósammála og vísaði í það sem hann
nefndi gullna reglu í því sambandi.
„Sá sem hefur gullið setur regl-
urnar. Fjármálaráðuneytið réði rík-
iskassanum og það hefði verið á
kostnað hins opinbera og þjóðar-
innar ef farið væri út í aðgerðir,“
sagði Tryggvi.
Íhuguðu að hóta bönkunum
Helgi Magnús Gunnarsson, vara-
saksóknari, spurði Tryggva hvernig
Seðlabankinn hefði reynt að fá
stjórnendur bankanna til að draga
úr umsvifum þeirra. Svaraði
Tryggvi að það hafi verið inni í dæm-
inu að Seðlabankinn hótaði bönk-
unum að upplýsa matsfyrirtækin um
veika stöðu þeirra.
Á hinn bóginn sagði Tryggvi að
bankarnir hefðu verið mjög háðir
matsfyrirtækjunum og hefði Seðla-
bankinn látið verða af þessum hót-
unum hefðu stjórnvöld þar með orð-
ið völd að falli bankanna.
Þá spurði varasaksóknari hvort að
Tryggvi hefði talið aðgerðir stjórn-
valda til þess að bankarnir minnk-
uðu efnahagsreikninga sína eða
flyttu höfuðstöðvar sínar úr landi.
„Það er erfitt að segja hvort það
hefði breytt einhverju, hugsanlega
hefði tap kröfuhafa þá getað verið
minna. Ef menn hefðu virkilega ætl-
að að stoppa það sem gerðist hefði
þurft að bregðast við árið 2003 eða
2004,“ svaraði Tryggvi.
Deilt var um starf
samráðshópsins
Þurftu að bregðast við 2003 eða 2004 til að stöðva hrun
Morgunblaðið/Kristinn
Bar vitni Tryggvi telur að grípa hefði þurft til aðgerða þegar á árunum
2003 og 2004 ef sporna hefði átt gegn hraðri útþenslu bankanna.
Kröfur breska fjármálaeftirlitsins
(FSA) á hendur Landsbankanum
vegna Icesave-reikninganna í lok
sumars 2008 jafngiltu í raun
áhlaupi á bankann.
Þetta kom fram í vitnisburði Jóns
Þorsteins Oddleifssonar, fyrrver-
andi forstöðumanns fjárstýringar á
verðbréfasviði Landsbankans, fyrir
Landsdómi í gær.
Andri Árnason, verjandi Geirs H.
Haarde, spurði Jón Þorstein út í
bréf sem hann sendi Fjármálaeftir-
litinu í ágúst 2008 þar sem hann
reiknaði út áhrif krafna FSA, með-
al annars um frekari tryggingar á
innistæðum í Icesave. Spurði Andri
hvort hann hefði verið þeirrar
skoðunar að kröfurnar jafngiltu
áhlaupi á bankann. „Það liggur í
hlutarins eðli að það hefði átt að
lækka þetta um 50% og setja fé til
hliðar til viðbótar, þá kallaði það á
útstreymi. Ef ég man rétt átti þetta
að gerast fyrir áramótin 2008-09.
Þetta voru að minnsta kosti ósann-
gjarnar kröfur en það er erfitt að
segja hvort það hefði verið ómögu-
legt að uppfylla þær. Eins og staðan
var þarna var það erfitt,“ sagði Jón
sem vék að lausafjárvanda bankans
2008.
Morgunblaðið/Kristinn
Lausafé Jón Þorsteinn Oddleifsson smeygir sér inn í Landsdóm í gær.
Sagði hann m.a. að lausafjárvandi hefði verið aðalmál Landsbankans 2008.
Erfitt að uppfylla kröf-
ur FSA vegna Icesave
Útsölustaðir ELIZABETH ARDEN Ceramide:
Reykjavík og nágrenni: Debenhams, Lyfjaborg, Nana Hólagarði,
Snyrtivöruverslun Lyfja & heilsu Kringlunni, Reykjavíkur Apótek,
verslanir Hagkaups; Garðabæ, Holtagörðum, Kringlunni, Skeifunni
og Smáralind, verslanir Lyfju; Garðatorgi, Lágmúla og Smáratorgi.
Landið: Apótek Vesturlands (Akranes), Hagkaup Akureyri.
Ceramide Gold ambúlur
fyrir augnsvæðið, með
hjálp náttúrulegra efna
þéttist húðin og liftist.
Ceramide Gold ambúlurnar
gefa húðinni aukið „boost“.
Kröftug og áhrifarík meðferð
fyrir andlit og háls.
Byrjaðu strax í dag, gefðu húðinni aukið vítamín
og hún viðheldur æskuljóma sínum.
Ceramide ambúlurnar
„serum“ viðhalda
æskuljómanum og
fyrirbyggja öldrun
húðarinnar, þær eru
samansettar af einu
hreinasta og virkasta
efni sem til er.
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300
Opnunartími: 08:00 - 17:00 alla virka daga
www.ispan.is - ispan@ispan.is
CE-VOTTUN ER
OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
Að gefnu tilefni!
CE-merkið á byggingavöru er gæðamerki
í ákveðnum skilningi og tryggir að vara
hafi þá eiginleika sem framleiðandinn
lýsir yfir að hún hafi.
Óheimilt er lögum samkvæmt að hafa
vöru á markaði hérlendis, nema hún
sé CE-merkt (vottuð).
Okkar vottunaraðili er British Standard
(BSi) og er sá aðili viðurkenndur sem
slíkur innan ESB.
•
•
•