Morgunblaðið - 14.03.2012, Page 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
Milli Eskifjarðar og
Norðfjarðar hefur bor-
ið á því að bílstjórar
sjúkrabifreiða sem
leggja sig í mikla hættu
við að koma barnshaf-
andi konum á Fjórð-
ungssjúkrahúsið í Nes-
kaupstað hafi oft
neyðst til að snúa við
sunnan einbreiðu
slysagildrunnar og á
Fagradal vegna mikils
blindbyls þegar starfsmenn Vega-
gerðarinnar verða að hætta snjó-
mokstri upp að Oddsskarðsgöng-
unum í 620 m hæð. Mörg dæmi eru til
um að barnshafandi konur á suður-
fjörðunum og norðan Fagradals sem
hafa lent í sjálfheldu af þessum sök-
um hafi verið fluttar frá Egilsstöðum
og Hornafirði til Akureyrar og
Reykjavíkur.
Fljótlegra er að bregðast við þessu
vandamáli eins og gert hefur verið
með því að senda sjúkraflugvél frá
Akureyrarflugvelli til Þórshafnar,
Vopnafjarðar, Egilsstaða og Horna-
fjarðar vegna þess að vonlaust er fyr-
ir heimamenn búsetta norðan Fagra-
dals, Hellisheiðar eystri og á
suðurfjörðunum að leggja á sig meira
en 300 km báðar leiðir til að treysta á
stóra Fjórðungssjúkrahúsið sem
Norðfirðingar sleppa vel við án þess
að þeir þurfi að keyra yfir snjóþung
og illviðrasöm svæði í meira en 600 m
hæð. Þetta ástand réttlætir ekki stað-
setningu Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað sem er ótrúverðug og
getur aldrei orðið aðgengileg fyrir
Austfirðinga búsetta utan Norð-
fjarðar á meðan innanríkisráðherra
og stuðningsmenn Vaðlaheiðarganga
reyna allt til að afskrifa endanlega
tvíbreið jarðgöng í stað gömlu Odds-
skarðsganganna.
Óskynsamlegt var að flytja fæðing-
ardeildina frá Egilsstöðum til Nes-
kaupstaðar án þess að meirihluti
Austfirðinga væri spurður álits á
þessum vinnubrögðum. Það segir
ekki að Djúpavogsbúar taki því þegj-
andi að þurfa að keyra til Neskaup-
staðar og aftur heim til sín sem eru
400 km. Óhjákvæmilegt er að útboði
Norðfjarðarganga sem rjúfa ein-
angrun Fjórðungssjúkrahússins við
Eskifjörð, Reyðarfjörð og hluta suð-
urfjarðanna verði flýtt á meðan von-
laust er að kveða niður allar efasemd-
ir um fjármögnun Vaðlaheiðarganga í
formi vegtolla á hvert ökutæki.
Meira þarf til að allir íbúar fjórð-
ungsins fái greiðan aðgang að Fjórð-
ungssjúkrahúsinu til þess að þeir
losni við tvo erfiða fjallvegi í meira en
600 m hæð og einn sem stendur í
nærri 400 metra hæð milli Egilsstaða
og Reyðarfjarðar. Staðreyndina um
grjóthrunið í einbreiðu slysagildrunni
sem er á snjóflóðasvæði í 620 m hæð
fyrir ofan Eskifjörð hafa
stuðningsmenn Vaðla-
heiðarganga hjá Vega-
gerðinni reynt að af-
skræma í þeim tilgangi
að halda uppi tilefn-
islausum árásum á sam-
göngumál Norðfirðinga
og Seyðfirðinga sem
hafa alltof lengi verið af-
skiptir í samgöngu-
málum.
Á meðan Steingrímur
J. Sigfússon getur ekki
sannfært þingmenn
stjórnarflokkanna, fjárlaganefnd og
samgöngunefnd Alþingis um að 1.000
króna veggjald á hvern bíl standi
undir launum starfsmanns og fjár-
mögnun Vaðlaheiðarganga vakna
spurningar um hvort skárri kost-
urinn fyrir stjórnvöld og Vegagerðina
sé að flýta útboði Norðfjarðarganga
og síðar Dýrafjarðarganga sem hefðu
átt að koma strax á eftir Fáskrúðs-
fjarðargöngum. Óbreytt ástand í
samgöngumálum Fjarðabyggðar
kemur í veg fyrir að meirihluti Aust-
firðinga sem starfar í álverinu á
Reyðarfirði og býr utan Norðfjarðar
geti treyst á Fjórðungssjúkrahúsið í
Neskaupstað.
Ein forsendan fyrir því að allir
Austfirðingar fái greiðari aðgang að
Fjórðungssjúkrahúsinu er að útboði
Norðfjarðarganga verði flýtt þótt
meira þurfi til. Staðsetning Fjórð-
ungssjúkrahússins í Neskaupstað var
á sínum tíma ákveðin með þeim skila-
boðum að þá yrði fljótlegra fyrir sjó-
menn að treysta á Heilbrigðisþjón-
ustuna í fjórðungnum ef neyðartilfelli
kæmu upp. Fyrir það gjalda heima-
menn sunnan Oddsskarðsganganna,
á suðurfjörðunum, norðan Fagradals
og Hellisheiðar eystri þegar snjó-
mokstur frá Egilsstöðum til Reyð-
arfjarðar og upp að einbreiðu slysa-
gildrunni í Oddsskarðinu er
óframkvæmanlegur vegna illviðris og
snjóskafla sem geta náð meira en 5
metra dýpt.
Fyrrverandi ráðgjafi Spalar hf.
sem kom að undirbúningi Hvalfjarð-
arganganna fullyrti í viðtölum að þeir
sem tækju Vaðlaheiðargöng fram yfir
jarðgöngin á Mið-Austurlandi og
Vestfjörðum væru ekki með réttu
ráði. Ákveðum ný Norðfjarðargöng á
undan Vaðlaheiðargöngum.
Flýtum útboði
Norðfjarðarganga
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
» Óskynsamlegt var að
flytja fæðingardeild-
ina frá Egilsstöðum til
Neskaupstaðar án þess
að meirihluti Austfirð-
inga væri spurður álits á
þessum vinnubrögðum.
Höfundur er farandverkamaður.
Þessar vikurnar
taka nemendur 10.
bekkjar í grunn-
skólum landsins þátt
í PISA-könnun (Pro-
gramme for Int-
ernational Student
Assessment). PISA
er alþjóðleg könnun á
vegum OECD sem er
endurtekin á þriggja
ára fresti.
Könnun eins og
PISA skiptir miklu máli fyrir ís-
lenskt skólastarf.
Niðurstöðurnar eru notaðar til
að mæla hversu vel nemendur í
hverjum og einum skóla á Íslandi
eru undirbúnir fyrir áframhald-
andi starf og nám miðað við nem-
endur á sama tíma í öðrum lönd-
um.
Eitt af mikilvægum hlutverkum
grunnskólans er að búa nemendur
undir að takast á við verkefni í
daglegu lífi, starfi og námi eftir að
skyldunámi lýkur og með PISA
fær hver skóli niðurstöður sem
notaðar eru í áframhaldandi
skólaþróun.
Því hefur stundum
verið fleygt að einhver
hópur íslenskra ung-
menna leggi ekki nóg
á sig við að svara
könnuninni og ef til
vill er það vegna þess
að hver og einn fær
ekki niðurstöðu um
eigin hæfni.
Sem skólastjóri í
unglingaskóla hef ég
mikla trú á íslenskum
ungmennum. Mér
þykja þau skemmtileg,
skapandi, klár og þau
hafa sterka samfélagsvitund. Þeir
sem hafa áhyggjur af því að ung-
mennin muni ekki leggja sig fram
og að niðurstaða Íslands verði lak-
ari en ella ættu að ræða við börn-
in. Því auðvitað skiptir það máli
fyrir hvern og einn að leggja sig
fram og gera sitt allra besta. En
hvað get ég gert? Ég get hvatt
nemendur til þess að leggja metn-
að í þetta verkefni. Ég get sýnt
þeim fram á að góður árangur er
ánægjulegri en lakur. Ég get lagt
mig fram um að fylla þau áhuga og
eldmóði. Að sjálfsögðu vil ég að
nemendur mínir standi sig fram-
úrskarandi vel og geti stoltir sagt
frá því að þeir hafi verið nem-
endur tiltekins grunnskóla árið
2012 þegar árangur skólans var
framúrskarandi. Ég bið líka for-
eldra um að ræða við börnin um
PISA
Það skiptir máli fyrir nemendur
að geta tengt sig við góðan árang-
ur í alþjóðlegum könnunum, ekki
síst ef stefnt er á heimsóknir eða
nám í erlenda framhalds- eða há-
skóla.
Ekki þarf að læra sérstaklega
fyrir könnunina en mikilvægt er
að hver nemandi taki ákvörðun um
að gera eins vel og hann getur og
að hann fái hvatningu heima og í
skólanum.
Góð hvatning getur skipt máli
Eftir S. Ingibjörgu
Jósefsdóttur
S. Ingibjörg
Jósefsdóttir
» Sem skólastjóri í
unglingaskóla hef ég
mikla trú á íslenskum
ungmennum. Mér þykja
þau skemmtileg, skap-
andi, klár og þau hafa
sterka samfélagsvitund.
Höfundur er skólastjóri Hagaskóla.
Gylfaflöt 16-18 · 112 Reykjavik · Sími 553 5200 · solo.is
Halldór
Hjálmarsson
Skata (1959)
Skatan er fyrsti íslenski stóllin sem
framleiddur er úr formbeygðum kross-
við. Hönnuðurinn Halldór Hjálmarsson
húsgagna- og innanhússarkitekt er sá
sami og hannaði kaffihúsið Mokka. Við
hönnun stólsins leitaðist hann við að
þróa íslenskan stól byggðan á þessari
nýju tækni sem mjög var að ryðja sér
til rúms á þessum árum, ekki síst með
tilkomu „maursins“ fræga eftir Arne
Jacobsen, og hvað var eðlilegra en
þróa stól sem minnti á fisk ?
Í anda þess tíma var hann hafður eins
lítill og nettur og hægt var, enda naut
hann mikilla vinsælda á 7. áratugnum ,
jafnt í borðstofum, eldhúsum og skól-
um þar sem plássið skipti máli. Hann
varð auk þess vinsæll sem fermingar-
gjöf, enda hentar hann einstaklega vel
sem léttur skrifstofustóll, jafnt fyrir háa
sem lága.
Beyki
var 29.500 kr.
nú 22.125 kr.
Eik
var 35.600 kr.
nú 26.700 kr.
Tekk
var 38.200 kr.
nú 28.650 kr.
Sértilboð vegna Hönnunarmars
Dalvegi 4 - 201 Kópavogur
Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00
laugardaga frá 6:00 til 17:00
sunnudaga frá 7:00 til 17:00
Repjubrauð
Hollustubrauð sem inniheldur
m.a. íslenska repjuolíu, repjuhrat
sem og íslenskt bygg - enginn sykur
Ríkt af Omega 3
Góð brauð – betri heilsa