Morgunblaðið - 07.04.2012, Síða 4

Morgunblaðið - 07.04.2012, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gróður hefur tekið vel við sér að undanförnu. Tún eru orðin fagur- græn í sprettunni og farið er að nálgast slátt í görðum. „Það stendur allt í blóma. Öll tún hvanngræn og menn geta farið að keyra út skít og plægja,“ segir Björn Harðarson, bóndi í Holti í Flóa, og getur um einn vorboðann til viðbótar, álftina sem er áberandi í túnum bænda þessa dagana. Kristján Bj. Jónsson, jarðrækt- arráðunautur hjá Búnaðarsam- bandi Suðurlands, hefur verið tölu- vert á ferðinni undanfarna daga og telur að gróður sé fyrr á ferðinni um allt Suðurland en oftast áður. Það hefur mest áhrif að jörð er klakalaus. Snjór var yfir þegar kaldast var í vetur þannig að klak- inn náði ekki niður í jörðina. Þegar svo er sé jörð miklu fyrr að hitna og gróðurinn taki við sér um fjórar gráðurnar. Hann segist þó aðeins hafa orðið var við klaka í útjörð, í mosaþúfum. Kristján tekur fram að síðustu fimm vor hafi verið góð, fyrir utan bakslagið sem kom vegna þurrka snemmsumars í fyrra. Ástandið virðist svipað um stóran hluta landsins. „Það lítur vel út með gróður á Norður- og Norðaustur- landi. Það eru græn tún í Blöndu- hlíð í Skagafirði og farið að grænka frammi í firði,“ segir Ingvar Björnsson, jarðræktarráðunautur hjá Búgarði á Akureyri. Hann segir að öll svell hafi tekið upp og enginn klaki í jörðu. Því sé ekki hætta á kali í túnum. Ingvar hefur þó þann fyrirvara, eins og aðrir viðmælendur, að þótt tíð hafi verið hagstæð að undan- förnu geti gert hret í apríl og maí. Því sé of snemmt að fullyrða um uppskeru eftir sumarið. „Mönnum hér veitir ekki af því að fá gott sumar til að bæta á heyforðann eft- ir kuldann í fyrrasumar,“ segir hann. Páll Bergþórsson veðurfræðing- ur segir að spár geri ráð fyrir kóln- andi veðri í næstu viku, sérstaklega norðanlands. Það geti skaðað ný- græðinginn. Hann tekur fram að þótt hret geri í maí, eins og oft hef- ur gerst, séu líkur á að þau verði ekki hörð í því milda loftslagsskeiði sem nú ríkir. Bændur eru farnir að huga að vorverkunum og einstaka menn byrjaðir að plægja. Kristján segir ekki ráðlegt að bera áburð á tún fyrr en líður á mánuðinn en ef menn byrji fyrr sé ráðlegt að tví- skipta áburðargjöfinni. Páll telur að við núverandi skilyrði ættu bændur að geta sparað við sig áburðinn. Hvanngræn tún og vorverk hafin  Klakalaus jörð um allt land  Gróður fyrr á ferðinni en venjulega og kominn góður hýjungur á tún  Garðeigendur huga að slætti  Bændum veitir ekki af því að fá gott sumar, segir ráðunautur Ljósmynd/Þórdís Geirsdóttir Í gær Það vorar vel í Flóanum. Grasið sprettur vel í hlýindum og raka. „Það er yndislegt veður. Í norð- vestanáttinni er bongóblíða og grænkar þvílíkt vel,“ segir Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Hann segir að jörðin sé hæfi- lega rök fyrir gróðurinn. „Það lítur afskaplega vel út með all- an gróður.“ „Við erum í plægingum og að undirbúa kornsáningu. För- um í það eftir páska,“ segir Ólafur. Það er heldur fyrr en venjulega. Oft hefur verið byrj- að að sá korni upp úr 20. apríl. Nú verður byrjað á því að sá sumarafbrigði repju til að nýta sumarið sem best og viku síð- ar farið að sá byggi. „Sumarið er að lengjast og það felast tækifæri í því,“ segir Ólafur. Grænkar vel í bongóblíðu UNDIRBÚA KORNSÁNINGU Páskarnir eru tilvalinn tími til þess að skella sér á skíði og síðustu for- vöð að renna sér niður brekkurnar áður en Vetur konungur kveður og vorið tekur við í öllum sínum skrúða. Hlíðarfjall á Akureyri er eitt besta skíðasvæði landsins og þangað flykkjast hundruð Íslend- inga um hverja páska til að renna sér og njóta veðurblíðunnar í höf- uðborg Norðurlands. „Dagurinn var mjög góður og það voru um 2.000 manns á svæðinu í dag,“ sagði Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð- arfjalli, í gærkvöldi. Þrátt fyrir all- an fjöldann segir hann ekki marga hafa verið á skíðum. „Ég kalla þessa færð fitubrennslufærð því hún er þung og tekur vel í lærin. Fólk naut þess í stað tónlistarinnar og slakaði á í veðurblíðunni.“ Að sögn Guðmundar eru ekki bara Íslendingar á skíðum fyrir norðan heldur er þar fjöldinn allur af erlendum ferðamönnum einnig. Um 2.000 manns voru á Hlíðarfjalli á Akureyri á föstudaginn langa þrátt fyrir þungt skíðafæri Ung snót skemmtir sér á skíðum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson „Það gekk vel, á meðan aðstæður eru góðar þá gengur vel að sigla,“ segir Ívar Gunnlaugsson, skipstjóri Herj- ólfs, en fyrstu tvær ferðir ferjunnar til Landeyjahafnar í vetur voru farn- ar síðastliðinn fimmtudag. Vegna ónógs dýpis í Landeyjahöfn hefur reynst ómögulegt að sigla þangað í vetur. Í staðinn hefur verið siglt til Þorlákshafnar við lítinn fögnuð far- þega. „Fólki finnst auðvitað þægi- legra að fara bara hálftíma með Herjólfi heldur en að sitja í þrjá klukkutíma lengri leiðina,“ segir Ív- ar og bætir við að mikið sé kallað eft- ir siglingum í Landeyjahöfn. Að hans sögn vantaði eitthvað upp á að farþegarýmið í ferðunum tveimur væri fullnýtt, en hins vegar var bíla- dekkið næstum fullt í báðum ferðum Að mati Ívars er eitthvað í það að siglingar í Landeyjahöfn verði reglu- legar á ný. „Það er heljarinnar verk að dýpka höfnina og ekki fyrirséð hvenær því mun ljúka.“ Sanddæluskipið Skandia hefur unnið að dýpkun hafnarinnar dag- lega og langt fram á nætur. Unnið er að dýpkun bæði á rifinu fyrir utan höfnina sem og innan hafnar og er stefnt að því að koma höfninni í það ástand að hægt verði að sigla þangað á öllum tímum óháð sjávarföllum. Herjólfur fór eina ferð til Þorláks- hafnar á föstudaginn langa en óvíst er um siglingar til Landeyjahafnar næstu daga. Ákvörðun um það mið- ast við aðstæður svo sem ölduhæð og vind. Farþegar geta aflað sér nánari upplýsinga um ferðir skipsins á vef- og facebooksíðu Herjólfs. gudrunsoley@mbl.is Ferðir Herjólfs til Land- eyjahafnar gengu vel  Óvíst er um sigl- ingar í Landeyja- höfn næstu daga Morgunblaðið/Ómar Herjólfur Fyrstu siglingar í Land- eyjahöfn í vetur gengu vel. Undirbúningshópur fyrir mögulegt forsetaframboð Kristínar Ingólfs- dóttur, rektors Háskóla Íslands, lét gera skoðanakönnun um stöðu hennar og fylgi. Sjálf hefur Kristín ekki gefið það upp hvort hún muni bjóða sig fram en niðurstöður könnunarinnar munu liggja fyrir eftir helgi. Rúna Hauksdóttir lyfja- fræðingur, einn aðstandenda hóps- ins, segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það hvort nið- urstöður könnunarinnar verði birt- ar. Rúna segir hópinn á bak við Kristínu mjög breiðan og komi jafnt úr atvinnulífinu sem fræða- samfélaginu. Morgunblaðið/Kristinn Forsetaframboð Kristín Ingólfsdóttir hefur ekki enn gefið upp áform sín. Kanna fylgi Krist- ínar til forseta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.