Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012 SHS er byggðasamlag sem sinnir slökkvistarfi, sjúkraflutningum, viðbrögðum við mengunaróhöppum, forvörnum, almannavörnum og öðrum verkefnum sem stjórn SHS ákveður hverju sinni og varða velferð íbúa. Að rekstri SHS standa sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarneskaupstaður og Álftanes. Framkvæmdastjórar sveitarfélaganna skipa stjórn SHS. Skógarh l íð 14 105 Reyk jav ík s ími 528 3000 shs@shs . i s www.shs . i s Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) vill ráða sumarstarfsmenn til að sinna sjúkraflutningum á hefðbundnum orlofstíma. Sumarstörf við sjúkraflutninga Um er að ræða fullt starf á tólf tíma dagvöktum, einnig um helgar. Unnar eru tvær eða þrjár vaktir í röð og frí á milli. Starfið felst eingöngu í sjúkraflutningum nema umsækjandi uppfylli einnig öll skilyrði sem slökkviliðsmaður. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Hæfniskröfur: • Starfsleyfi sem sjúkraflutningamaður er skilyrði, þ.e. að hafa lokið grunnnámi sjúkraflutninga (EMT-B) og að lágmarki 60 ein. framhaldsnámi • Aukin réttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið nauðsynleg • Gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, góð sjón og heyrn • Reglusemi, þjónustulund og hæfni í samskiptum Umsókn þarf að fylgja: • Læknisvottorð um almennt heilbrigði • Prófskírteini • Nýlegt sakavottorð • Nýlegt ljósrit af ökuskírteini og ökuferilsskrá Þeir sem uppfylla inntökuskilyrði þurfa að vera reiðubúnir að gangast undir: • Læknisskoðun • Styrkleika- og göngupróf • Aksturspróf • Viðtal Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl nk. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð í þjónustuver SHS að Skógarhlíð 14 í Reykjavík og á heimasíðu SHS (www.shs.is) undir ,,Sumarstörf“. Frekari upplýsingar veita þau Ingibjörg Óðinsdóttir og Elías Níelsson í síma 528 3000 á skrifstofutíma. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum svarað. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Sölu- og markaðsfulltrúi Nánari upplýsingar: Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is Inga Steinunn Arnardóttir inga@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. GlaxoSmithKline ehf. óskar eftir að ráða starfsmann til að kynna líftæknilyf og nýjungar fyrirtækisins fyrir heilbrigðisstéttum. Starfssvið Starfið felst í markaðssetningu og kynningu á líftæknilyfjum og öðrum sérhæfðum sjúkrahúslyfjum. Viðkomandi skipuleggur og sækir fræðslufundi og ráðstefnur á þeim sjúkdómasviðum sem um ræðir og starfar náið með tengdum deildum innan GSK. Viðkomandi eflir þekkingu á vörum GSK og veitir vandaðar og áreiðanlegar upplýsingar sem byggðar eru á öflugum rannsóknum fyrirtækisins. Starfað er eftir starfs- og siðareglum GSK með heiðarleika og hagsmuni sjúklinga að leiðarljósi. Hæfniskröfur Háskólamenntun á heilbrigðissviði eða lífvísindum (lyfjafræði, líffræði, hjúkrunarfræði eða sambærileg menntun). • Færni í mannlegum samskiptum • Metnaðarfull vinnubrögð • Dugnaður • Góð kunnátta í íslensku og ensku • Góð almenn tölvuþekking • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur GlaxoSmithKline ehf. er dótturfyrirtæki GlaxoSmithKline plc, eins stærsta fyrirtækis heims á sviði rannsóknar og þróunar nýrra lyfja og bóluefna. Markmið okkar er að bæta lífsgæði fólks með því að gera því kleift að áorka meiru, líða betur og lifa lengur. Nánari upplýsingar um fyrirtækið er að finna á www.gsk.com. GIGTARFÉLAG ÍSLANDS Almennt skrifstofustarf Gigtarfélag Íslands óskar eftir að ráða starfs- kraft á skrifstofu félagsins til almennra skrifstofustarfa, s.s. umsjónar með félaga- kerfi, netpósti, afgreiðslu ýmiskonar og reikningagerð. Um er að ræða 70 til 80% fjölbreytt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hæfniskröfur:  Menntun og reynsla sem nýtist í starfi  Góð tölvukunnátta  Æskileg reynsla af launavinnslu og reikningagerð  Færni í mannlegum samskiptum  Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi Áhugasamir vinsamlega sendið umsókn og starfsferilsskrá á netpóstinn emilthor@gigt.is eða skili á skrifstofu félagsins að Ármúla 5. Umsóknarfrestur er til 16. apríl nk. Allar frekari upplýsingar veitir EmilThóroddsen framkvæmdarstjóri, í síma 530 3600 eða 863 9922. Störf í Noregi M-Group hefur mikla reynslu af Ráðningum, Greiningum, Þjálfun og styrkingu Starfsmanna og Leiðtoga/Stjórnenda Fyrir hönd viðskiptavinar í örum vexti leitar M-Group að eftirfarandi: Meiraprófsbílstjórar gjarnan með einhverja reynslu af akstri hópferðabíla/ strætisvagna. Góðir möguleikar á föstu starfi fyrir rétta aðila. Laun samkvæmt samningum. Góð starfsskilyrði hjá traustu fyrirtæki. Æskilegt er að umsækjendur hafi góð tök á Norsku eða öðru norðurlandamáli. Aukin ökuréttindi D skilyrði. Möguleiki á öflugu grunnnámskeiði í Norsku eða upprifjunarnámskeiði ef á þarf að halda. Vinnuveitandi getur mögulega aðstoðað við að finna húsnæði ef þörf er á. Vinsamlegast sendið Ferilskrá/CV sem fyrst til mm@mgroup.no Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við Marius Morin í síma +47 480 88 868 Viðtöl munu fara fram á Íslandi og í Noregi. Lausar stöður Grunnskóli Snæfellsbæjar: Grunnskóli Snæfellsbæjar var stofnaður árið 2004 og er í dag staðsettur á þremur stöðum, í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsuhóli í Staðarsveit. Við skólann eru lausar eftirfarandi stöður næsta skólaár: Heilar stöður kennara í textílmennt og heimilsfræði. Umsjónarkennsla á yngsta stigi og miðstigi. Kennsla ensku, dönsku, íslensku, samfélagsfræði og lífsleikni á unglingastigi auk upplýsinga- og tæknimenntar. Aðrir möguleikar fyrir hendi. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám og að efla sjálfstæði nemenda, samvinnu og árangursrík vinnubrögð með áherslu á vellíðan nemenda og virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum. Mikil áhersla er lögð á kennslu í átthagafræði og nærkennslu en allar starfsstöðvar skólans eru Grænfánaskólar. Skólinn miðar að því að auka verulega kennslu tengda náttúru, aðstæðum og sögu heimabyggðarinnar. Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir í 3. mgr. 11. gr: „Óheimilt er að ráða til starfa við grunnskóla ein- stakling sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Við ráðningu skal liggja fyrir sakavottorð eða heimild skólastjóra til að afla upplýsinga úr sakaskrá.“ Áhugasömum er bent á að hafa samband við Magnús Þór Jónsson, í símum 433- 9900 og 894-9903 eða senda tölvupóst á maggi@gsnb.is. Öllum umsóknum verður svarað. Nú er að grípa tækifærið og ganga til liðs við metnaðarfullan hóp sem leggur áherslu á að gera gott skólastarf í Snæfellsbæ enn betra. Öllum umsóknum verður svarað. Hafðu samband, þú tapar engu en gætir grætt mikið!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.