Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012 V ið vorum víst fátæk þegar ég var barn en fundum aldrei fyrir því – fannst við þvert á móti rík. Við systkinin fengum til dæmis alltaf myndarleg páskaegg. Það kom nú einkum til af því að afi okkar, Guðmundur Rósinkar Magn- ússon, rak súkkulaðigerðina Fjólu á horni Vesturgötu og Ægisgötu í Reykjavík. Hann framleiddi konfekt, karamellur, kúlur og ýmislegt sæl- gæti – og ísinn hans var frægur,“ seg- ir Stefanía Hjartardóttir hjúkr- unarfræðingur. „Í jólagjöf fengum við jafnan „bland í poka“ í kram- arhúsi inni í jólapakkanum frá afa og ömmu. Afi var ættaður úr Æðey og af Ströndum. Föðuramma mín, Lilja Hjartardóttir, dó ung. Sú amma sem ég þekkti, stjúpmóðir pabba, var Svanhildur Gissurardóttir frá Hvoli í Ölfusi,“ segir Stefanía. „Ég fæddist á Sólvangi í Hafn- arfirði 1956, sjötta í röð níu systkina. Foreldrar mínir leigðu þá Barmahlíð, sumarbústað í Kópavogshlíðum. Þau höfðu kynnst í Alþýðukórnum. Pabbi var þá fráskilinn og átti einn dreng, og mamma átti líka einn dreng, sem var á Thorvaldsens-vöggustofu fyrstu mánuðina, þar sem hún vann. Þau hófu búskap þegar sá bróðir minn var ársgamall. Faðir minn ólst upp í Reykjavík en móðir mín var frá Hornströndum, fæddist í Hælavík en flutti sex ára að Hesteyri. Hún átti tólf systkini, tvær systur hennar eru þekktar í íslenskri bókmenntasögu, Jakobína í Garði og Fríða Á. Sigurð- ardóttir. Mamma flutti 15 ára gömul til Reykjavíkur. Þótt einangrunin væri töluverð á æskuheimili hennar var heimamenntunin mikil. Afi og amma í Hælavík, Sigurður Sigurðs- son og Stefanía Guðnadóttir, voru af- skaplega duglegt fólk sem bjargaði sér vel, líka eftir að þau fluttu til Keflavíkur.“ Við Stefanía Hjartardóttir sitjum við stórt borðstofuborð og drekkum jurtate í marsbirtunni og sólin gyllir sjóinn fyrir framan Norðurbakka í Hafnarfirði. Þangað á fjórðu hæð er Stefanía nýlega flutt ásamt Helga Hrafnssyni eiginmanni sínum en þau eru nú orðin tvö, erill mannmargs heimilis er að baki, börn þeirra hjóna uppkomin. Stefanía hefur rétt áður sýnt mér ýmislegt sem hún hefur haft á prjónunum undanfarið, svo sem fjöldann allan af ullarhúfum sem eiga að fara á höfuð barna í Rússlandi, peysur á barnabörnin fimm og ým- islegt fleira. Ekki merkilegt finnst kannski sumum, en þeir vita ekki hvaða baráttu hún þurfti að heyja til þess að læra að prjóna upp á nýtt eft- ir slys og heilaáfall. Lifað og leikið í suðurhlíðum Stefaníu er þó efst í huga að segja frá þeim tíma þegar hún var lítil og spræk stelpa í Kópavoginum að alast upp í þéttum og stórum systkinahópi. Við skulum hverfa með henni inn í litla sumarbústaðinn Barmahlíð, sem enn stendur rétt við Digraneskirkju, umlukinn þéttum trjágróðri. „Í trjánum kringum bústaðinn trúðum við krakkarni að Grýla og Leppalúði byggju. Margir sumarbú- staðir voru þarna í grenndinni og trjágóður í kringum þá flesta. For- eldrar mínir leigðu Barmahlíð af konu sem enn býr þar, orðin vel full- orðin, en meðan við bjuggum í bú- staðnum hafði hún til eigin nota lítið herbergi uppi í risi hans. Foreldrar mínir höfðu tvær stofur, eitt herbergi og eldhús fyrir sig og sex börn sín. Fyrst þegar ég man eftir mér var kamar en pabbi setti upp vatnssal- erni, kalt vatn hafði verið leitt inn, pabbi lagði og rafmagn í bústaðinn. Við áttum heima þarna í nokkur ár. Þess má geta að á sumrin bjó auk okkar í bústaðnum kona með tvö börn í annarri stofunni. Stutt er á milli okkar systkina í aldri og við lékum okkur af hjartans lyst í strjálbýlum suðurhlíðum Kópa- vogs og oft barst leikurinn að Skíta- læknum svokallaða, sem í reynd heit- ir Hvammkotslækur. Sá lækur rennur fyrir neðan bústaðinn og syst- ur mínar létu mig sigla í honum í bala og hentu mér á milli sín yfir hann. Ég lifði þetta allt saman af þótt í þennan læk væri þá veitt skólpi af ýmsu tagi úr bústöðunum í kring. Pabbi var verkamaður og vann í stálsmiðju í Reykjavík. Hann gekk á hverjum degi út á Hafnarfjarðarveg og tók strætó í vinnuna. Hann vann mikið. Í Kópavoginum hjálpuðust allir að. Í bústaðnum okkar var enginn sími. Þegar mamma gekk með næstyngstu systur mína var hún búin að semja við vinkonu sína í nágrenninu um að ein af eldri systrum mínum mætti láta hana vita ef fæðingin færi af stað og pabbi væri ekki heima. Stelpan var þá fimm ára. Svo missti mamma leg- vatnið og sagði telpunni að fara til vinkonunnar og segja henni að vatnið væri farið. Hún tölti af stað og barði að dyrum hjá vinkonunni, en fannst skilaboðin eitthvað asnaleg og sagði í staðinn að það væri orðið olíulaust hjá okkur. Vinkonan varð eitt spurning- armerki, en áttaði sig fljótt á hvað um væri að vera og flýtti sér á vettvang. Framúrstefnulegt heimilishald Mamma og pabbi þóttu framúr- stefnuleg í heimilishaldi sínu. Þegar pabbi kom heim úr vinnunni hjálpaði hann mömmu að sjóða bleiur sem höfðu safnast fyrir yfir daginn og hengdi þær svo út á snúru; það þótti ekki gott afspurnar að hann væri að sinna húsverkum – maður sem ynni svona mikið. Ég á mínar fyrstu minn- ingar frá Barmahlíð en svo fluttum við á Hlíðarveginn, til hennar Ágústu Björnsdóttur sem rak Gróðrarstöð- ina Rein. Mamma vann í mörg ár á vorin í gróðrarstöðinni hjá Gústu. Maður hennar hét Loftur Ámunda- son. Hjá þeim hjónum leigðum við í nokkur ár litla íbúð. Á meðan við bjuggum þar byggðu foreldrar mínir hús fyrir fjölskylduna við Löngu- brekku. Þegar pabbi var búinn að vinna á kvöldin labbaði öll halarófan frá Hlíðarveginum yfir í Löngu- brekku, allir í röð, til að vinna í hús- inu; hann fékk að vísu steypubíl til að steypa plötuna undir húsið en vegg- ina steypti hann upp sjálfur og við krakkarnir og mamma naglhreins- uðum og gerðum ýmislegt annað sem til féll. Pabbi fékk líka góða hjálp við bygginguna frá ýmsum ættingjum sínum og nágrönnum – því í Kópa- voginum hjálpuðust allir að. Kópa- vogsbær veitti lán fyrir efniskostnaði, sem var mikil og óvenjuleg hjálp fyrir frumbýlinga. Lítið var um heitt vatn þegar ég var að alast upp. Við systkinin fórum þó í bað oftast einu sinni í viku, en þá urðu tveir að fara í sama vatnið. Olíu- kynding var og það varð að spara ol- íuna. Fyrir jólin var stundum ekki hægt að baða alla á aðfangadag af því vatnið varð svo kalt, en þeir sem urðu útundan fóru þá í bað á jóladag. Þótt mamma ynni utan heimilis þegar hún gat, meðal annars í síld og loðnu, saumaði hún jafnan á okkur öll föt og var alltaf búin að sauma jólafötin áður en skólaskemmtunin var í desember. Við fengum mjög mikið gefins af gömlum fötum, því við vorum svo mörg systkinin, mamma saumaði upp úr þessu þannig að við vorum aldrei í fötum sem ekki pössuðu. Og auðvitað notuðum við líka föt hvert af öðru. Við keyptum inn í versluninni Kópi við Bröttubrekku, þar fékkst allt mögu- legt, líka efni – og sígarettur í lausu. Á heimili foreldra minna var menntun mikils metin. Pabbi hafði stundað nám í Verzlunarskólanum en mamma var í skóla hjá KFUK eftir að hún kom suður. Þau voru bæði af- ar söngvin og sungu lengi frameftir í kórum. Það var ríkt menningarlíf á æskuheimili mínu, mikið lesið og mik- ið sungið, pabbi spilaði á gítar og mamma söng með okkur. Við systk- inin vorum öll hvött til að læra á hljóðfæri og ég lærði um tíma á píanó. Einu sinni á ári var farið með okkur öll í leikhús og við vorum daglegir gestir á bókasafninu. Voru svæfð með söng Við systkinin vorum svæfð með söng lengi vel. Á Hlíðarveginum vor- um við allir krakkarnir saman í her- bergi og á kvöldin komu annaðhvort mamma eða pabbi og sungu. Stund- um var pabbi svo þreyttur að hann sofnaði, þá vöktum við hann bara til að fá hann til að syngja svolítið meira. Þegar yngsta systirin fæddist var mér og næstyngstu systur minni komið fyrir hjá mágkonu mömmu; þá var ég sex ára. Við vorum sendar inn um kvöldið til að hátta en svo kom enginn að syngja með okkur. Ég sendi systur mína fram til að athuga hvernig stæði á þessu. Hún kom aftur inn með þau skilaboð að við værum orðnar allt of stórar til að vera svæfð- ar. Þetta var mín fyrsta sorg í lífinu. Ég á skemmtilega gamla upptöku með söngstund fjölskyldunnar. Þar er mamma að syngja fyrir okkur systkinin og með okkur. Við sungum öll möguleg lög saman. Svo heyrist þegar við systurnar förum að rífast um að vera með yngstu systurina – þá fór mamma að syngja og við þögn- uðum strax. Mamma söng alltaf ef við vorum óþekk. Þótt plássið væri lítið og við værum svona mörg man ég ekki eftir að það væru stórvægilegir árekstrar á heim- ilinu. Samkomulagið á milli okkar systkinanna var auðvitað upp og ofan – en ef manni lenti saman við ein- hvern var bara skipt um og farið að leika við eitthvert annað systkini. Maður hafði alltaf einhvern til að leika við og var aldrei einn. Það var líka mikið af krökkum í nágrenninu og oft voru stórir barnahópar úti að leika sér. Við fórum gjarnan niður að Lundi að hjálpa til við beljurnar, fór- um í skógræktina á leynifélagsfundi og í hverfastríð, svo var maður þarna nálægt með gæsir og kalkúna sem við krakkarnir höfðum gaman af að fylgj- ast með. Á heimilinu hjá okkur voru alltaf kettir og oft kettlingar, því þá voru læður ekki komnar á pilluna. Einu sinni kom bróðir mömmu t.d. með fullan bala af fiski sem hann hafði veitt. Hann kom með þetta seint um kvöld og morguninn eftir átti að ganga frá fiskinum, en þegar mamma vaknaði var balinn tómur. Það þótti henni einkennilegt. Svo fór hún út í búð að kaupa mjólk. Þá hitti hún ýmsa nágranna sína sem þökkuðu henni kærlega fyrir fiskinn. Þá hafði yngri systir mín drifið sig á fætur eld- snemma um morguninn og gefið fólk- inu í kring allan fiskinn. Það var ekki hægt að skamma hana fyrir þetta, hún hafði jú verið stranglega áminnt um að vera hjálpsöm við nágrannana. Við systkinin vorum öll send í tíma- kennslu til að læra að lesa hjá konu á Bjarnhólastígnum. Svo fórum við í sjö ára bekk í Kópavogsskóla, þar réð ríkjum Magnús Kristinsson skóla- stjóri. Skólastarfið var alla tíð skemmtilegt og mikið leikið sér í frí- mínútum. Allt í kringum skólann voru móar og við lékum okkur þar og í hálfbyggðum byggingum. Oft fórum við líka í ferðir og höfðum þá nesti með okkur. Skólinn var stútfullur af krökkum og til að auðvelda heilsu- gæslu voru öll heimili skylduð til að gefa börnunum njálgmeðal á haustin. Ein eldri systir mín var einu sinni send í apótekið til að kaupa njálg- meðal fyrir tíu manns. Henni fannst það svolítið óþægilegt. Við okkur systkinin var aldrei rætt um peningamál eða annað, við vorum algerlega áhyggjulaus. Aðeins einu sinni, á kreppuárunum um 1968, man ég eftir að mamma sagði að við fengj- um engar jólagjafir. Þá var pabbi at- vinnulaus. Okkur fannst þetta leið- inlegt. En þegar til kom fengum við samt sem áður jólagjöf; mamma saumaði á okkur húfur úr kan- ínuskinni, laumaðist til þess og faldi húfurnar heima hjá vinkonu sinni. Ekki veit ég hvernig hún náði í þetta kanínuskinn. Aldrei man ég eftir öðru en við hefðum nóg að borða, en oft var slátur, hafragrautur og grjóna- grautur. Og snemma lærðum við systurnar að elda og vaska upp þegar mamma var að vinna og sjálf fórum við fljótt að vinna við það sem til féll, pökkuðum kringlum, seldum merki og bárum út blöð. Þannig liðu æskuárin við mikla fé- lagslega auðlegð. Þegar ég fór að heiman 21 árs með þriggja ára dóttur mína hafði ég aldrei verið ein. Og mér fannst ég mjög ein þótt ég væri með hana hjá mér. Ég eignaðist einka- dóttur mína 19 ára gömul, en var ekki í sambandi við barnsföður minn. Mamma veitti mér allan þann stuðn- ing sem mögulegt var en ég fann eigi að síður fyrir fordómum – ekki frá systkinum mínum, heldur umhverf- inu. Föðuramma mín sagði við mig þegar hún kom í fermingarveislu yngsta bróður míns: „Ertu trúlofuð?“ „Nei,“ sagði ég. Þá sagði amma: „Aumingja Hjörtur.“ Líklega hefur henni fundist pabbi hafa nóg á sinni könnu. Ég ákvað snemma að læra hjúkrun og var að byrja í hjúkrunarnáminu þegar ég varð ófrísk. Fyrstu fimm mánuði meðgöngunnar var ég í heimavist Hjúkrunarskólans. Skóla- stjóranum þótti ekki viðkunnanlegt að vera með óléttan hjúkrunarnema í skólanum og vildi að ég hætti í námi. En ég vildi halda áfram og fékk því Líklega er ég bara sannur Mikið er rætt og ritað um erfiðleika samtímans en það vill gleymast að á hverjum tíma hefur fólk háð lífsbaráttuna og hún hefur ekki alltaf verið mild þótt ekki kæmi til bankahrun. Stefanía Hjartardóttir hjúkrunarfræðingur fæddist og ólst upp í Kópavogi og má segja að uppvöxtur hennar og bæjarins hafi fylgst á vissan máta að. Viðtal: Guðrún Guðlaugsdóttir. Stefanía Hjartardóttir „Mér finnst verst að geta ekki farið meira í ferða- lög, mér fannst svo gaman að ferðast. Það er algerlega vonlaust fyrir mig.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.