Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
Kauptúni og Kringlunni – www.tekk.is
Opið í dag, Skírdag, kl. 13–17 og laugardag kl. 10–17
20%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
HÚSGÖGNUM
Bjóðum
vaxtalausar
afborganir
til 12 mánaða
Rússneski vopnasalinn Viktor Bout,
sem einnig gengur undir nafninu
Merchant of Death eða sölumaður
dauðans, hefur verið dæmdur í 25
ára fangelsi í Bandaríkjunum. Síð-
astliðið haust var hann fundinn sek-
ur um að reyna að selja kólumb-
ískum skæruliðum vopnabúnað en
hann hefur einnig verið talinn hafa
útvegað hryðjuverkasamtökunum
al-Qaeda vopn.
Viktor Bout var handtekinn á
fimm stjörnu hóteli í Bangkok árið
2008 en þangað tældu bandarískir
útsendarar hann undir þeim for-
merkjum að þeir væru skæruliðar á
vegum hryðjuverkasamtakanna
FARC í Kólumbíu. Hann sat í fang-
elsi í Taílandi í tvö ár áður en hann
var framseldur til Bandaríkjanna og
hófust réttarhöld yfir honum í lok
árs 2010. Bout var síðan sakfelldur í
haust þegar kviðdómur taldi hann
sekan í fjórum stórum ákæruliðum.
Vildi lífstíð en fékk 25 ár
Bandaríski saksóknarinn í málinu
fór fram á að Viktor Bout yrði
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir
vopnasölu til hryðjuverkasamtaka
en þurfti að sætta sig við 25 ára
fangelsi. Í uppkvaðningu refsingar
sagði bandaríski dómarinn, Shira
Scheindlin, að ekki væri hægt að
dæma Bout í lífstíðarfangelsi þar
sem ekki hefði verið sýnt fram á að
viðskipti hans væru til þess fallin að
særa, meiða eða drepa Bandaríkja-
menn. Sölumaður dauðans, Viktor
Bout, slapp því með lágmarksrefs-
ingu fyrir brot sín. Lögmaður Bouts
segir að dómnum verði áfrýjað.
Rússar ósáttir vegna málsins
Utanríkisráðherra Rússlands,
Sergei Lavrov, sagði við rússneska
fjölmiðla að hann myndi ræða þetta
mál við utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, Hillary Rodham Clinton,
enda væru Rússar ekki sáttir við
meðferð eða upphaf málsins.
„Við látum ekki heift eða hefnd
leiða okkur í þessu máli heldur rétt-
vísina og réttindi þegna okkar hvar
sem þeir eru staddir. Við munum
styðja við áfrýjun málsins og vinna
að því að fá Viktor Bout heim,“ sagði
Sergei Lavrov. Þá segir í tilkynn-
ingu frá rússneskum stjórnvöldum
að þau muni leita allra leiða til að fá
Viktor Bout heim og verði við það
beitt bæði öllum alþjóðlegum tækj-
um og leiðum sem fyrir hendi eru.
Starfsemi Bouts er talin vera hug-
myndin á bak við myndina Lord of
War með Nicolas Cage en Bout hef-
ur byggt upp gífurlega starfsemi
með meira en 60 flutningavélum og
hundruðum fyrirtækja um allan
heim sem útvega þúsundum vopn á
átakasvæðum.
vilhjalmur@mbl.is
REUTERS
Vopnasali Rússneski vopnasalinn Voktor Bout var dæmdur í 25 ára fangelsi í Bandaríkjunum í gær en mun áfrýja.
Sölumaður dauðans fær 25 ára dóm
Rússnesk
stjórnvöld vilja að
Bandaríkin sleppi
Viktor Bout
Reuters
Endurfjármögnun skulda Spánverja
jókst nokkuð þegar vextir fóru upp á
spænskum ríkisskuldabréfum í vik-
unni. Ástæða hækkunar á ríkis-
skuldabréfunum er talin vera ótti
fjárfesta við lengri kreppu á evru-
svæðinu en vonast var eftir. Vand-
ræði í Portúgal og mikill endurfjár-
mögnunarkostnaður Ítalíu á þessu
ári spila þar eflaust inn í að mati sér-
fræðinga.
Luis de Guindos, fjármálaráðherra
Spánar, sagði í viðtali við Reuters að
stærsta verkefnið framundan væri að
sannfæra fjárfesta um að Spánn gæti
staðið undir skuldbindingum sínum
en margir óttast að Spánn sé á sömu
leið og Grikkir, Írar og Portúgalar
hafa verið á og þurfi á björgunar-
pakka að halda frá Evrópusamband-
inu. Stærð spænska hagkerfisins
myndi hins vegar gera allar björg-
unaraðgerðir erfiðar. Í björgunar-
sjóði ESB eru 700 milljarðar evra.
Reuters
Efnahagskreppa Skuldavandi ríkja á evrusvæðinu er gífurlegur og hægir á
öllum efnahagslegum bata.
Dýpri kreppa í Evrópu
gerir Spáni erfitt fyrir