Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
V
ið vorum víst fátæk þegar
ég var barn en fundum
aldrei fyrir því – fannst
við þvert á móti rík. Við
systkinin fengum til
dæmis alltaf myndarleg páskaegg.
Það kom nú einkum til af því að afi
okkar, Guðmundur Rósinkar Magn-
ússon, rak súkkulaðigerðina Fjólu á
horni Vesturgötu og Ægisgötu í
Reykjavík. Hann framleiddi konfekt,
karamellur, kúlur og ýmislegt sæl-
gæti – og ísinn hans var frægur,“ seg-
ir Stefanía Hjartardóttir hjúkr-
unarfræðingur. „Í jólagjöf fengum
við jafnan „bland í poka“ í kram-
arhúsi inni í jólapakkanum frá afa og
ömmu. Afi var ættaður úr Æðey og af
Ströndum. Föðuramma mín, Lilja
Hjartardóttir, dó ung. Sú amma sem
ég þekkti, stjúpmóðir pabba, var
Svanhildur Gissurardóttir frá Hvoli í
Ölfusi,“ segir Stefanía.
„Ég fæddist á Sólvangi í Hafn-
arfirði 1956, sjötta í röð níu systkina.
Foreldrar mínir leigðu þá Barmahlíð,
sumarbústað í Kópavogshlíðum. Þau
höfðu kynnst í Alþýðukórnum. Pabbi
var þá fráskilinn og átti einn dreng,
og mamma átti líka einn dreng, sem
var á Thorvaldsens-vöggustofu
fyrstu mánuðina, þar sem hún vann.
Þau hófu búskap þegar sá bróðir
minn var ársgamall. Faðir minn ólst
upp í Reykjavík en móðir mín var frá
Hornströndum, fæddist í Hælavík en
flutti sex ára að Hesteyri. Hún átti
tólf systkini, tvær systur hennar eru
þekktar í íslenskri bókmenntasögu,
Jakobína í Garði og Fríða Á. Sigurð-
ardóttir. Mamma flutti 15 ára gömul
til Reykjavíkur. Þótt einangrunin
væri töluverð á æskuheimili hennar
var heimamenntunin mikil. Afi og
amma í Hælavík, Sigurður Sigurðs-
son og Stefanía Guðnadóttir, voru af-
skaplega duglegt fólk sem bjargaði
sér vel, líka eftir að þau fluttu til
Keflavíkur.“
Við Stefanía Hjartardóttir sitjum
við stórt borðstofuborð og drekkum
jurtate í marsbirtunni og sólin gyllir
sjóinn fyrir framan Norðurbakka í
Hafnarfirði. Þangað á fjórðu hæð er
Stefanía nýlega flutt ásamt Helga
Hrafnssyni eiginmanni sínum en þau
eru nú orðin tvö, erill mannmargs
heimilis er að baki, börn þeirra hjóna
uppkomin. Stefanía hefur rétt áður
sýnt mér ýmislegt sem hún hefur haft
á prjónunum undanfarið, svo sem
fjöldann allan af ullarhúfum sem eiga
að fara á höfuð barna í Rússlandi,
peysur á barnabörnin fimm og ým-
islegt fleira. Ekki merkilegt finnst
kannski sumum, en þeir vita ekki
hvaða baráttu hún þurfti að heyja til
þess að læra að prjóna upp á nýtt eft-
ir slys og heilaáfall.
Lifað og leikið í suðurhlíðum
Stefaníu er þó efst í huga að segja
frá þeim tíma þegar hún var lítil og
spræk stelpa í Kópavoginum að alast
upp í þéttum og stórum systkinahópi.
Við skulum hverfa með henni inn í
litla sumarbústaðinn Barmahlíð, sem
enn stendur rétt við Digraneskirkju,
umlukinn þéttum trjágróðri.
„Í trjánum kringum bústaðinn
trúðum við krakkarni að Grýla og
Leppalúði byggju. Margir sumarbú-
staðir voru þarna í grenndinni og
trjágóður í kringum þá flesta. For-
eldrar mínir leigðu Barmahlíð af
konu sem enn býr þar, orðin vel full-
orðin, en meðan við bjuggum í bú-
staðnum hafði hún til eigin nota lítið
herbergi uppi í risi hans. Foreldrar
mínir höfðu tvær stofur, eitt herbergi
og eldhús fyrir sig og sex börn sín.
Fyrst þegar ég man eftir mér var
kamar en pabbi setti upp vatnssal-
erni, kalt vatn hafði verið leitt inn,
pabbi lagði og rafmagn í bústaðinn.
Við áttum heima þarna í nokkur ár.
Þess má geta að á sumrin bjó auk
okkar í bústaðnum kona með tvö börn
í annarri stofunni.
Stutt er á milli okkar systkina í
aldri og við lékum okkur af hjartans
lyst í strjálbýlum suðurhlíðum Kópa-
vogs og oft barst leikurinn að Skíta-
læknum svokallaða, sem í reynd heit-
ir Hvammkotslækur. Sá lækur
rennur fyrir neðan bústaðinn og syst-
ur mínar létu mig sigla í honum í bala
og hentu mér á milli sín yfir hann. Ég
lifði þetta allt saman af þótt í þennan
læk væri þá veitt skólpi af ýmsu tagi
úr bústöðunum í kring. Pabbi var
verkamaður og vann í stálsmiðju í
Reykjavík. Hann gekk á hverjum
degi út á Hafnarfjarðarveg og tók
strætó í vinnuna. Hann vann mikið.
Í Kópavoginum hjálpuðust allir að.
Í bústaðnum okkar var enginn sími.
Þegar mamma gekk með næstyngstu
systur mína var hún búin að semja
við vinkonu sína í nágrenninu um að
ein af eldri systrum mínum mætti
láta hana vita ef fæðingin færi af stað
og pabbi væri ekki heima. Stelpan var
þá fimm ára. Svo missti mamma leg-
vatnið og sagði telpunni að fara til
vinkonunnar og segja henni að vatnið
væri farið. Hún tölti af stað og barði
að dyrum hjá vinkonunni, en fannst
skilaboðin eitthvað asnaleg og sagði í
staðinn að það væri orðið olíulaust hjá
okkur. Vinkonan varð eitt spurning-
armerki, en áttaði sig fljótt á hvað um
væri að vera og flýtti sér á vettvang.
Framúrstefnulegt heimilishald
Mamma og pabbi þóttu framúr-
stefnuleg í heimilishaldi sínu. Þegar
pabbi kom heim úr vinnunni hjálpaði
hann mömmu að sjóða bleiur sem
höfðu safnast fyrir yfir daginn og
hengdi þær svo út á snúru; það þótti
ekki gott afspurnar að hann væri að
sinna húsverkum – maður sem ynni
svona mikið. Ég á mínar fyrstu minn-
ingar frá Barmahlíð en svo fluttum
við á Hlíðarveginn, til hennar Ágústu
Björnsdóttur sem rak Gróðrarstöð-
ina Rein. Mamma vann í mörg ár á
vorin í gróðrarstöðinni hjá Gústu.
Maður hennar hét Loftur Ámunda-
son. Hjá þeim hjónum leigðum við í
nokkur ár litla íbúð. Á meðan við
bjuggum þar byggðu foreldrar mínir
hús fyrir fjölskylduna við Löngu-
brekku. Þegar pabbi var búinn að
vinna á kvöldin labbaði öll halarófan
frá Hlíðarveginum yfir í Löngu-
brekku, allir í röð, til að vinna í hús-
inu; hann fékk að vísu steypubíl til að
steypa plötuna undir húsið en vegg-
ina steypti hann upp sjálfur og við
krakkarnir og mamma naglhreins-
uðum og gerðum ýmislegt annað sem
til féll. Pabbi fékk líka góða hjálp við
bygginguna frá ýmsum ættingjum
sínum og nágrönnum – því í Kópa-
voginum hjálpuðust allir að. Kópa-
vogsbær veitti lán fyrir efniskostnaði,
sem var mikil og óvenjuleg hjálp fyrir
frumbýlinga.
Lítið var um heitt vatn þegar ég
var að alast upp. Við systkinin fórum
þó í bað oftast einu sinni í viku, en þá
urðu tveir að fara í sama vatnið. Olíu-
kynding var og það varð að spara ol-
íuna. Fyrir jólin var stundum ekki
hægt að baða alla á aðfangadag af því
vatnið varð svo kalt, en þeir sem urðu
útundan fóru þá í bað á jóladag. Þótt
mamma ynni utan heimilis þegar hún
gat, meðal annars í síld og loðnu,
saumaði hún jafnan á okkur öll föt og
var alltaf búin að sauma jólafötin áður
en skólaskemmtunin var í desember.
Við fengum mjög mikið gefins af
gömlum fötum, því við vorum svo
mörg systkinin, mamma saumaði upp
úr þessu þannig að við vorum aldrei í
fötum sem ekki pössuðu. Og auðvitað
notuðum við líka föt hvert af öðru. Við
keyptum inn í versluninni Kópi við
Bröttubrekku, þar fékkst allt mögu-
legt, líka efni – og sígarettur í lausu.
Á heimili foreldra minna var
menntun mikils metin. Pabbi hafði
stundað nám í Verzlunarskólanum en
mamma var í skóla hjá KFUK eftir
að hún kom suður. Þau voru bæði af-
ar söngvin og sungu lengi frameftir í
kórum. Það var ríkt menningarlíf á
æskuheimili mínu, mikið lesið og mik-
ið sungið, pabbi spilaði á gítar og
mamma söng með okkur. Við systk-
inin vorum öll hvött til að læra á
hljóðfæri og ég lærði um tíma á píanó.
Einu sinni á ári var farið með okkur
öll í leikhús og við vorum daglegir
gestir á bókasafninu.
Voru svæfð með söng
Við systkinin vorum svæfð með
söng lengi vel. Á Hlíðarveginum vor-
um við allir krakkarnir saman í her-
bergi og á kvöldin komu annaðhvort
mamma eða pabbi og sungu. Stund-
um var pabbi svo þreyttur að hann
sofnaði, þá vöktum við hann bara til
að fá hann til að syngja svolítið meira.
Þegar yngsta systirin fæddist var
mér og næstyngstu systur minni
komið fyrir hjá mágkonu mömmu; þá
var ég sex ára. Við vorum sendar inn
um kvöldið til að hátta en svo kom
enginn að syngja með okkur. Ég
sendi systur mína fram til að athuga
hvernig stæði á þessu. Hún kom aftur
inn með þau skilaboð að við værum
orðnar allt of stórar til að vera svæfð-
ar. Þetta var mín fyrsta sorg í lífinu.
Ég á skemmtilega gamla upptöku
með söngstund fjölskyldunnar. Þar
er mamma að syngja fyrir okkur
systkinin og með okkur. Við sungum
öll möguleg lög saman. Svo heyrist
þegar við systurnar förum að rífast
um að vera með yngstu systurina – þá
fór mamma að syngja og við þögn-
uðum strax. Mamma söng alltaf ef við
vorum óþekk.
Þótt plássið væri lítið og við værum
svona mörg man ég ekki eftir að það
væru stórvægilegir árekstrar á heim-
ilinu. Samkomulagið á milli okkar
systkinanna var auðvitað upp og ofan
– en ef manni lenti saman við ein-
hvern var bara skipt um og farið að
leika við eitthvert annað systkini.
Maður hafði alltaf einhvern til að
leika við og var aldrei einn. Það var
líka mikið af krökkum í nágrenninu
og oft voru stórir barnahópar úti að
leika sér. Við fórum gjarnan niður að
Lundi að hjálpa til við beljurnar, fór-
um í skógræktina á leynifélagsfundi
og í hverfastríð, svo var maður þarna
nálægt með gæsir og kalkúna sem við
krakkarnir höfðum gaman af að fylgj-
ast með. Á heimilinu hjá okkur voru
alltaf kettir og oft kettlingar, því þá
voru læður ekki komnar á pilluna.
Einu sinni kom bróðir mömmu t.d.
með fullan bala af fiski sem hann
hafði veitt. Hann kom með þetta seint
um kvöld og morguninn eftir átti að
ganga frá fiskinum, en þegar mamma
vaknaði var balinn tómur. Það þótti
henni einkennilegt. Svo fór hún út í
búð að kaupa mjólk. Þá hitti hún
ýmsa nágranna sína sem þökkuðu
henni kærlega fyrir fiskinn. Þá hafði
yngri systir mín drifið sig á fætur eld-
snemma um morguninn og gefið fólk-
inu í kring allan fiskinn. Það var ekki
hægt að skamma hana fyrir þetta,
hún hafði jú verið stranglega áminnt
um að vera hjálpsöm við nágrannana.
Við systkinin vorum öll send í tíma-
kennslu til að læra að lesa hjá konu á
Bjarnhólastígnum. Svo fórum við í sjö
ára bekk í Kópavogsskóla, þar réð
ríkjum Magnús Kristinsson skóla-
stjóri. Skólastarfið var alla tíð
skemmtilegt og mikið leikið sér í frí-
mínútum. Allt í kringum skólann voru
móar og við lékum okkur þar og í
hálfbyggðum byggingum. Oft fórum
við líka í ferðir og höfðum þá nesti
með okkur. Skólinn var stútfullur af
krökkum og til að auðvelda heilsu-
gæslu voru öll heimili skylduð til að
gefa börnunum njálgmeðal á haustin.
Ein eldri systir mín var einu sinni
send í apótekið til að kaupa njálg-
meðal fyrir tíu manns. Henni fannst
það svolítið óþægilegt.
Við okkur systkinin var aldrei rætt
um peningamál eða annað, við vorum
algerlega áhyggjulaus. Aðeins einu
sinni, á kreppuárunum um 1968, man
ég eftir að mamma sagði að við fengj-
um engar jólagjafir. Þá var pabbi at-
vinnulaus. Okkur fannst þetta leið-
inlegt. En þegar til kom fengum við
samt sem áður jólagjöf; mamma
saumaði á okkur húfur úr kan-
ínuskinni, laumaðist til þess og faldi
húfurnar heima hjá vinkonu sinni.
Ekki veit ég hvernig hún náði í þetta
kanínuskinn. Aldrei man ég eftir öðru
en við hefðum nóg að borða, en oft
var slátur, hafragrautur og grjóna-
grautur. Og snemma lærðum við
systurnar að elda og vaska upp þegar
mamma var að vinna og sjálf fórum
við fljótt að vinna við það sem til féll,
pökkuðum kringlum, seldum merki
og bárum út blöð.
Þannig liðu æskuárin við mikla fé-
lagslega auðlegð. Þegar ég fór að
heiman 21 árs með þriggja ára dóttur
mína hafði ég aldrei verið ein. Og mér
fannst ég mjög ein þótt ég væri með
hana hjá mér. Ég eignaðist einka-
dóttur mína 19 ára gömul, en var ekki
í sambandi við barnsföður minn.
Mamma veitti mér allan þann stuðn-
ing sem mögulegt var en ég fann eigi
að síður fyrir fordómum – ekki frá
systkinum mínum, heldur umhverf-
inu. Föðuramma mín sagði við mig
þegar hún kom í fermingarveislu
yngsta bróður míns: „Ertu trúlofuð?“
„Nei,“ sagði ég. Þá sagði amma:
„Aumingja Hjörtur.“ Líklega hefur
henni fundist pabbi hafa nóg á sinni
könnu.
Ég ákvað snemma að læra hjúkrun
og var að byrja í hjúkrunarnáminu
þegar ég varð ófrísk. Fyrstu fimm
mánuði meðgöngunnar var ég í
heimavist Hjúkrunarskólans. Skóla-
stjóranum þótti ekki viðkunnanlegt
að vera með óléttan hjúkrunarnema í
skólanum og vildi að ég hætti í námi.
En ég vildi halda áfram og fékk því
Líklega er ég bara sannur
Mikið er rætt og ritað um erfiðleika samtímans en
það vill gleymast að á hverjum tíma hefur fólk háð
lífsbaráttuna og hún hefur ekki alltaf verið mild þótt
ekki kæmi til bankahrun. Stefanía Hjartardóttir
hjúkrunarfræðingur fæddist og ólst upp í Kópavogi
og má segja að uppvöxtur hennar og bæjarins hafi
fylgst á vissan máta að.
Viðtal: Guðrún Guðlaugsdóttir.
Stefanía Hjartardóttir „Mér finnst
verst að geta ekki farið meira í ferða-
lög, mér fannst svo gaman að ferðast.
Það er algerlega vonlaust fyrir mig.“