Morgunblaðið - 07.04.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
Í frétt frá Reykjavíkurborg segirfrá því að kjörsókn í rafrænni
íbúakosningu í borginni sem fram
fór á dögunum hafi verið að meðal-
tali 8%. Þá kemur fram að kjör-
sóknin hafi ver-
ið misjöfn á
milli hverfa, frá
10% og niður í
5%.
Í fréttinni er einnig greint frá þvíað kosningin þyki hafa heppnast
vel, en að vísu er ekki sagt hverjum
þyki svo vera.
Loks er upplýst að kosningin sébindandi og að verkefnin sem
kosin voru verði framkvæmd í sum-
ar.
Nú á þetta síðastnefnda vænt-anlega ekki við um jóla-
skreytingarnar sem lítill hluti borg-
arbúa greiddi atkvæði að settar
yrðu upp fyrir næstu jól, en hitt
hlýtur að vera umhugsunarvert að
kosning með svo lítilli þátttöku
skuli vera bindandi.
Nú kann vel að vera að mörgverkefni og jafnvel flest séu
til bóta að flestra áliti, en vandinn
er sá að enginn veit hvort svo er.
Þátttakan í kosningunni var svo lítil
að engin leið er að fullyrða að raun-
verulegur vilji íbúanna hafi fengist
fram.
Vissulega má ætla að vilji þeirra8% sem kusu hafi í megin-
atriðum komið fram, en hvað með
hin 92%? Er endilega líklegt að þau
séu sömu skoðunar? Er ekki tals-
verð hætta á, þegar svo fáir taka
þátt, að úrtakið gefi skakka mynd?
Og þegar þátttaka í kosningu er8% og kosningin þykir heppn-
ast vel, hvað þarf þá til að hún þyki
illa heppnuð?
Vel heppnuð
kosning?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.4., kl. 18.00
Reykjavík 7 súld
Bolungarvík 7 alskýjað
Akureyri 4 skýjað
Kirkjubæjarkl. 12 léttskýjað
Vestmannaeyjar 6 súld
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 skúrir
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki 0 alskýjað
Lúxemborg 12 léttskýjað
Brussel 10 heiðskírt
Dublin 10 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 11 skýjað
París 13 heiðskírt
Amsterdam 7 skýjað
Hamborg 7 súld
Berlín 7 skýjað
Vín 9 skúrir
Moskva 2 heiðskírt
Algarve 13 léttskýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 6 léttskýjað
New York 10 heiðskírt
Chicago 7 léttskýjað
Orlando 22 skúrir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:22 20:38
ÍSAFJÖRÐUR 6:21 20:49
SIGLUFJÖRÐUR 6:04 20:33
DJÚPIVOGUR 5:50 20:09
Þetta er sannkölluð ævintýraferð um eyjaperlur Kvarner-víkur í Króatíu þar sem Krk
eyjan og Dalmatíuströndin taka á móti okkur í allri sinni dýrð. Ferðin hefst á flugi til
Mílanó og gist þar fyrstu nóttina. Höldum áfram inn til Króatíu, nánar tiltekið til hinnar
fögru eyju Krk, þar sem gist er í 6 nætur í Malinska, vinsælum ferðamannabæ á eyjunni.
Þaðan verður farið í skemmtilegar skoðunarferðir, m.a. ekið um Krk og siglt yfir til
eyjunnar Cres, sem er ásamt Krk stærsta eyja Adríahafsins. Við heimsækjum Hum,
fámennasta bæjarfélag í heimi og borðum saman hádegisverð hjá vínbónda í Pazin. Eftir
yndislega daga ökum við suður meðfram Dalmatíuströndinni til Biograd þar sem gist er
í 4 nætur. Þaðan verður farið til Split, sögufrægu borgarinnar sem telst með fallegustu
borgum landsins. Einnig skoðum við Krka þjóðgarðinn og hina frægu Krka fossa með
sinni ólýsanlegu náttúruleiksýningu og borgina Zadar. Eftir yndislega daga og afslöppun
í Króatíu verður ekið frá Biograd til Vicenza á Ítalíu og gist þar síðustu nóttina.
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Verð: 279.900 kr. á mann í tvíbýli
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, hálft fæði, allar skoðunarferðir með
rútu og íslensk fararstjórn.
www.baendaferdir.is
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
SUMAR 11
6. - 18. ágúst
Hálftfæðiogallarskoðunarferðirinnifaldar
Travel Agency
Authorised by
Icelandic Tourist Board
Eyjaperlur Króatíu
„Við vildum færa þennan kveðskap úr
hinu hefðbundna kirkjuumhverfi og
inn í hrárra rými,“ segir Þórhildur
Örvarsdóttir, söngkona og eigandi
Hlöðunnar á Akureyri, sem var um-
gjörðin utan um óvenjulegan upplest-
ur Passíusálmanna á föstudeginum
langa. Sálmarnir voru lesnir þar í
heild sinni á milli klukkan 13 og 18 í
gær. Hlaðan er gömul hlaða sem
breytt hefur verið í samkomuhús og
tónleikahöll. Hún tekur um 50 manns
í sæti en Hlöðuna rekur Þórhildur
ásamt manni sínum, Skúla Gautasyni
leikara.
Aðspurð hvort upplestur sálmanna
í hlöðu hafi farið fyrir brjóstið á ein-
hverjum segist Þórhildur ekki hafa
orðið vör við það. „Það fólk talar alla-
vega ekki við mig,“ segir hún hlæj-
andi, „það getur nú svo sem vel verið
að einhverjum finnist þetta ekki við-
eigandi, en ég held að sú hugsun sé
svolítið að breytast. Við erum farin að
bera meira skynbragð á hversu víða
okkar menningararfur liggur. Passíu-
sálmarnir eru auðvitað þar á meðal,
og þeir eru sameiginleg eign okkar
allra,“ segir Þórhildur. „Ef við lítum á
hverjir hafa notið sálmanna í gegnum
tíðina þá er það almúginn. Þeir voru
lesnir í hverju koti á Íslandi og það
var ekki bundið neinni stéttaskipt-
ingu. Sálmarnir voru lesnir jafnt í
fjósi sem höll og við erum að hverfa
svolítið aftur til þeirra tíma.“
Kveðskapurinn lifnar við
Upplesturinn gekk vonum framar
en alls lásu 40 manns upp úr sálm-
unum. „Þetta er fólk úr öllum áttum,
leikarar, prestar, kennarar og fleiri.“
Eins og gefur að skilja er heilmikið
vekefni að lesa sálmana upp í heild, en
þegar blaðamaður náði tali af Þórhildi
var lesturinn um það bil hálfnaður.
„Við erum á áætlun, sem okkur finnst
ákveðið afrek,“ segir hún og hlær.
„Það er gaman að sjá hvernig þessi
magnaði kveðskapur lifnar við í nýju
rými,“ segir Þórhildur að lokum.
gudrunsoley@mbl.is
Passíusálmar
Hallgríms lifn-
uðu við í hlöðu
Nýbreytni í umgjörð fyrir norðan
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Upp, upp mín sál Séra Hannes Örn Blandon var einn þeirra sem lásu upp úr
Passíusálmunum í Hlöðunni á Litla-Garði á föstudaginn langa.
Daníel H. Stefánsson var útnefndur
ársmeistari Íslands 2011 í svifflugi
af svifflugdeild Flugmálafélags Ís-
lands eftir að hafa flogið lengstu yf-
irlandsflugin á svifflugu það árið.
Þetta er annað árið í röð sem Daní-
el vinnur til þessara verðlauna en í
öðru sæti varð Steinþór Skúlason
sem hefur unnið átta sinnum.
Í árskeppninni eru gefin stig fyr-
ir tvö bestu yfirlandsflug kepp-
enda. Tvö lengstu flug Daníels voru
samtals rúmir 630 km í hitaupp-
streymi en það þykir mjög gott,
miðað við aðstæður hér.
Áhugi Daníel H. Stefánsson hefur
stundað svifflug frá barnsaldri.
Ársmeistari í svifflugi