Morgunblaðið - 07.04.2012, Síða 12

Morgunblaðið - 07.04.2012, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012 Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Bétveir Bétveir, barnabókSigrúnar Eldjárn um tví-höfða furðuveru, komfyrst út árið 1986. Bókin hefur nú verið endurútgefin með spánnýjum myndum höfundarins. „Það er góð tilfinning að endur- vekja góðan vin og hressa upp á hann,“ segir Sigrún. „Þessi endur- útgáfa er þó eiginlega fremur endur- vinnsla því að ég gerði alveg nýjar myndir í bókina og lagaði textann að- eins til, stytti og gerði hnitmiðaðri. Þetta er bók sem fjallar um það hvað bækur eru merkilegar. Því þessi furðuvera, hann Bétveir, kemur utan úr geimnum til að kynna sér fyrir- bæri sem hann veit ekki til hvers er og hefur bara séð í gegnum stóran kíki á stjörnunni sinni. Fyrirbæri þar sem mörg blöð með táknum og myndum eru föst saman og fólk flett- ir af mikilli ánægju og virðist skemmta sér svo vel við að skoða. Bétveir er kominn til jarðarinnar til að kynna sér hvað þarna er á ferð- inni. Hann hittir krakka og konu sem skrifar stundum bækur, kynnist ull- arsokkum og kakói en aðallega þó bókum. Þetta er grímulaus bóka- áróður.“ Skipti þessi bók máli fyrir þinn feril? „Já, ég held það jafnvel. Ég hef allavega rekist á það núna þegar hún er að koma út aftur að margir muna vel eftir henni og að fólk sem er orðið fullorðið núna las hana í æsku og man vel eftir sögunni. Þegar bókin kom út á sínum tíma markaði hún á vissan hátt tímamót í barnabókaútgáfu því hún var prentuð í fjórlit, sem þótti mikið í lagt fyrir barnabók. Ég gerði svo síðar aðra bók um Bétvo sem heitir Axlabönd og bláberjasaft. Þar fer strákurinn Áki og heimsækir Bétvo á plánetuna hans og kynnir sér hans heim. Hittir meðal annars systkini hans sem heita Efimm og Kánía. Ég fór nýlega á bókamessuna í Leipzig meðal annars með bókina um Bétvo. Áður var ég búin að gera hekl- aða útgáfu af geimverunni sem er svona 60 cm á hæð með þreifurum. Þessi dúkka kom með mér til Þýsla- lands og gerði lukku. Heklaði Bétveir fékk svo að fara áfram þaðan á barna- bókamessuna í Bologna, án mín. Nú er hann kominn heill heim.“ Sigrún er í hópi 34 teiknara sem sýndu á sýningunni Phobophobia í Bíó Paradís. Þeir sem misstu af sýn- ingunni geta skoðað fóbíumyndirnar á vefsíðunni muses.is þar sem þær eru bæði til sýnis og sölu. Sýningin var gerð í tengslum við Hönnunar- mars og teiknararnir unnu vegg- spjöld sem sýna ógnvænlegan og stundum kómískan heim fóbíunnar. „Við völdum okkur þetta þema af því að það er til ógnarlangur listi yfir alls konar fóbíur sem fólk er haldið og margar hverjar kalla á skemmtilegt myndefni,“ segir Sigrún. „Allir gátu fundið eitthvað á listanum sem höfð- aði til þeirra og útkoman er stór- skemmtileg og fjölbreytt. Ég valdi mér fóbíu sem heitir hexakosioihex- ekontahexaphobia og er óttinn við töluna 666, sem er víst tala djöfulsins eða tala dýrsins. Ég veit að margir eru hræddir við þessa tölu en ég er það nú reyndar ekki. Það má segja að þetta val hafi gefið mér færi á að á búa til hálfgerða hryllingsmynd.“ Hvað ertu að gera þessa dag- ana? „Núna er ég að vinna í þriðju bókinni í Safnaseríunni svokölluðu. Fyrri bækurnar heita Forngripa- safnið og Náttúrugripasafnið og þessi á að heita Listasafnið. Þar gerist auð- vitað ýmislegt dularfullt og snúið sem tengist myndlist, gömlum listaverk- um og uppátækjasömum samtíma- listamönnum. Mér finnst gaman að skrifa seríubækur. Þegar maður hef- ur skapað persónur sem maður er sáttur við og ánægður með þá er gott að geta leyft þeim að lifa áfram og þróast og dafna.“ Þú myndskreytir bækur þínar sjálf. Þannig að þú vinnur fjölbreytta vinnu með því að vinna bæði með texta og myndir. „Það finnst mér einmitt svo skemmtilegt. Að geta gert hvort tveggja og láta það fléttast saman í sköpunarferlinu. Myndirnar skreyta textann og textinn skreytir mynd- irnar. Ég hef alltaf litið svo á að texti og myndir séu jafnrétthá í mínum bókum, að minnsta kosti í myndabók- um eins og Bétveim þar sem textinn er ekki mjög langur. Í Safnaseríunni og fleiri bókum sem ég hef gert er textinn hlutfallslega mun meiri en myndirnar en samt legg ég áherslu á að hafa mikið myndefni þar líka. Í Safnabókunum eru til dæmis fjöl- margar blýantsteikningar. Það hafa fjölmargir foreldrar sagt mér að börnin þeirra hafi náð tökum á lestr- arkúnstinni í mínum bókum og þar hafi myndirnar létt undir og haldið áhuganum á textanum lifandi. Fyrir utan alla þessa bókagerð er ég svo líka alltaf að vinna við ann- ars konar myndir, teikningar, mál- verk og annað, sem ekki tengjast bókum nokkurn skapaðan hlut heldur eru sjálfstæð myndverk.“ Það er stöðugt verið að ræða um börn og bækur. Hefurðu áhyggjur af því að börn lesi minna og skilji æ minna í því sem þau lesa? „Sem betur fer er mikið talað um þetta þessa dagana. Það hafa komið fram ískyggilegar tölur um minnk- andi lestur og við verðum sífellt að vera á varðbergi. Fullorðið fólk, for- eldrar og aðrir þurfa að vera af- skaplega vakandi fyrir þessu og sýna gott fordæmi. Ef fyrirmyndirnar lesa ekki þá er eins víst að krakkarnir lesi ekki heldur. Ég veit samt að það er til fullt af krökkum sem lesa alveg heil- mikið sér til gagns og gamans en svo eru líka aðrir sem ná aldrei almenni- lega tökum á að lesa sér til ánægju og fróðleiks sem er sorglegt, því góður lesskilningur er frábær og mik- ilvægur grundvöllur fyrir svo margt í lífinu. Við þurfum að gæta þess vel að vera góðar fyrirmyndir fyrir krakk- ana, lesa bækur, skrifa bækur og hvetja þau til að lesa.“ Grímulaus bókaáróður Barnabók Sigrúnar Eldjárn, Bétveir Bétveir, hefur verið endurútgefin. Sigrún gerði nýjar myndir fyrir þessa nýja útgáfu. Hún vinnur nú að bókinni Lista- safnið sem er þriðja bókin í Safnaseríu hennar. Það hafa fjölmargir for- eldrar sagt mér að börn- in þeirra hafi náð tökum á lestrarkúnstinni í mín- um bókum og þar hafi myndirnar létt undir og haldið áhuganum á text- anum lifandi. Sigrún Eldjárn Myndirnar skreyta textann og textinn skreytir myndirnar. Ég hef allt- af litið svo á að texti og myndir séu jafnrétthá í mínum bókum. Ótti Ég valdi mér fóbíu sem heitir hexakosioihexekontahexaphobia og er óttinn við töluna 666. Um páskana eru síðustu forvöð að sjá sýninguna Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu sem stendur í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands. Hjálmar var afkastamikill áhugaljósmyndari og gaf út fjölda bóka með myndum af landi og þjóð. Á sýningunni getur að líta svarthvítar myndir úr safni hans, bæði landslagsmyndir og listrænar myndir. Safnið er opið á skírdag, föstudaginn langa og laugardaginn 7. apríl kl. 11-17 en lokað er á páskadag og annan í páskum. Ljósmyndaferill Hjálmars R. Bárðarsonar, fyrrverandi siglingamálastjóra, spannaði tæp áttatíu ár. Hann lifði þrjú skeið í ljós- myndatækni; svarthvítar myndir, lit- myndir og stafrænar myndir. Í safni hans eru um 70 þúsund svarthvítar myndir frá tímabilinu 1932 til 1988 en nýjar eftirtökur hafa nú verið gerðar eftir úrvali þessara mynda. Samhliða sýningunni kom út sýningarskrá með úrvali mynda af sýningunni. Hjálmar R. Bárðarson í svarthvítu Afkastamikill áhugaljósmyndari Aska Þúsundir mynda eru í safni Hjálmars R. Bárðarsonar. Grindavíkurbær og Bláa lónið bjóða upp á menningar- og sögutengda gönguferð fyrir alla fjölskylduna mánudaginn 9. apríl, á annan í páskum. Gangan hefst kl. 11.00 á bílastæði Bláa lónsins. Í ferðinni er ætlunin að leiðsögu- maðurinn Guðbjörg Ásgeirsdóttir fari yfir náttúru og sögu svæðisins. Gengið verður frá Rauðhóli, fram með Skipstíg og haldið austur að norðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Margir hellar og skútar eru á þessari leið, þar á meðal Dýrfinnuhellir. Sagt er að Dýrfinna hafi falið sig þar með börn sín af ótta við Tyrki. Baðs- vellir eru í neðanverðu fjallinu Þor- birni og tengjast þeir sögu um þjófagengi sem þar baðaði sig og hélt til í Þjófagjá í fjallinu. Endar gangan í Bláa Lóninu. Menningar- og sögutengd gönguferð í Grindavík Morgunblaðið/Eggert Gönguferð Gott er að hvíla lúin bein í Bláa Lóninu eftir gönguferð. Gengið um söguslóðir Stundum flott stundum bara eitthvað rugl..... Taktu mynda- vélina alltaf með þér hvert sem þú ferð Lomo truflar ekki líf þitt, Lomo er hluti af lífinu Notaðu hana alltaf á nóttu sem degi Prófaðu að taka mynd frá mjöðminni Ekki hugsa rassgat um af hverju þú ert að taka mynd Ekki hafa áhyggjur af einhverjum reglum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.