Morgunblaðið - 07.04.2012, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
Tæki til verklegra
framkvæmda
Gštus—par VŽls—par Saltdreifarar
Umferaršryggisbœnaur Burstar ’ vŽls—pa Vatnsd¾lur
A. Wendel ehf - Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - Sími 551 5464 - wendel.is
Jarðvegsþjöppur - Vatnsdælur - Malbikunarvélar
Vinnustaðamerkingar - Vélsópar - Hellulagningatæki
Stofnað 1957
Hellulagning verkf¾ri
„Þetta er eins og klapp á bakið og
sýnir að maður er að gera eitthvað
rétt,“ segir Bjarni Jónasson sem
stóð uppi sem sigurvegari eftir æsi-
spennandi lokamót Meistaradeildar
Norðurlands – KS-deildarinnar.
Bjarni hafði eins stigs forystu á
Sölva Sigurðarson fyrir lokamótið.
Þeir voru jafnir eftir fyrri keppn-
isgreinina, slaktaumatölt, og ljóst
að úrslitin myndu ráðast í skeiði.
Bjarni náði góðum tíma í fyrri
sprettinum en hestur Sölva hljóp
upp. „Það voru allir farnir að óska
mér til hamingju en ég sagði að
keppnin væri ekki búin enda fór svo
að Sölvi jafnaði tíma minn. Ég vissi
að ef ég færi á öruggu skeiði í gegn
myndi ég vinna. Ég ætlaði að gera
það en hesturinn nennti því ekki og
fór á betri tíma en í fyrri umferð-
inni,“ segir Bjarni þegar hann rifj-
ar upp kvöldið. Hann er ánægður
með KS-deildina, segir að þar séu
sterkustu knaparnir og hestarnir
norðanlands og lyfti mótahaldi á
hærra plan.
Bjarni býr á Sauðárkróki en
starfar á Narfastöðum þar sem
hann rekur tamningastöð. Segist
aðallega þjálfa og sýna kynbóta-
hross en er einnig nokkuð í að
kaupa hesta og selja.
Hann kennir einnig töluvert í
Sviss og er staddur þar um
páskana, eins og oft áður. „Það þarf
að sinna þessu. Við getum ekki beð-
ið heima endalaust, þurfum að
huga meira að markaðsmálum, fara
út og standa með okkar hestum,“
segir Bjarni.
helgi@mbl.is
Ljósmynd/Rósberg Óttarsson
Sigur Bjarni Jónasson fékk peningaverðlaun og bikar fyrir frammistöðuna.
Nennti ekki að
fara öruggu leiðina