Morgunblaðið - 07.04.2012, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
Texti: Helgi Bjarnason
Myndir: Ragnar Axelsson
G
rundartangi er vinnu-
staður hátt í þúsund
manna. Iðnaðar- og at-
hafnasvæðið hefur því
mikla þýðingu fyrir
fjölda heimila á Akranesi, í Hval-
fjarðarsveit og Borgarfirði og á höf-
uðborgarsvæðinu. Stóru framleiðslu-
fyrirtækin, Norðurál og Elkem, eru
grunnurinn en þar hafa byggst upp
og eru að koma nokkur fyrirtæki
sem þjóna stóriðjunni og önnur
minni framleiðslufyrirtæki. Unnið er
skipulega að enn frekari aukningu.
Kísiljárnverksmiðja Elkem var
byggð á Grundartanga undir lok átt-
unda áratugarins og samhliða var
fyrsti áfangi Grundartangahafnar
gerður. Síðan hefur mikið vatn runn-
ið til sjávar. Álver Norðuráls tók til
starfa fyrir fjórtán árum og er nú
langstærsta fyrirtækið á svæðinu.
Fyrsta skipið kom í höfnina 1978.
Þangað til álverið tók til starfa sigldu
þangað innan við 100 skip á ári.
Skipakomur hafa aukist ár frá ári og
á síðasta ári fóru yfir 300 skip um
höfnina.
Grundartangahöfn var upphaflega
í eigu sveitarfélaga og sýslunefnda í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslum og
Akraneskaupstaðar. Höfnin er nú
hluti af Faxaflóahöfnum þar sem
Reykjavíkurborg á meirihluta.
Nýjum fyrirtækjum vel tekið
Nokkrar vélsmiðjur og önnur fyr-
irtæki sem þjóna Norðuráli og El-
kem hafa komið sér upp aðstöðu á
Grundartanga, sérstaklega vél-
smiðjur. Nefna má Héðin, Stálsmiðj-
una, GTT, Meitil og Hamar. Hamar
er að ljúka smíði húss fyrir starfsemi
sína og þar verður glæsileg aðstaða.
Önnur fyrirtæki veita mikilvæga
þjónustu, til dæmis við löndun, ör-
yggisgæslu, rekstur mötuneytis.
Loks má nefna að eitt algerlega
óskylt fyrirtæki hóf þar framleiðslu á
árinu 2010, Lífland sem rekur fóð-
urverksmiðju á hafnarsvæðinu.
Starfsmenn fleiri fyrirtækja vinna
mikið á Grundartanga þótt þau hafi
þar ekki starfsstöðvar.
Stálsmiðjan áformar að koma
þarna upp slipp, þegar kemur að
endurnýjun Slippsins í Reykjavík-
urhöfn.
Nýjustu sprotarnir eru tvö endur-
vinnslufyrirtæki sem bæði tengjast
áliðnaði. Það eru GMR Endur-
vinnslan sem er að reisa verksmiðju
til að endurvinna stál frá álverum og
brotamálm frá söfnunarfyrirtækjum
og Kratus sem hyggst endurvinna
álgjall.
Miðað við þau áform sem þekkt
eru má áætla að fjárfest verði fyrir
20 milljarða króna á Grundartanga á
árunum 2007 til 2013.
„Þetta er besta iðnaðarsvæði
landsins. Hér er öflug grunnþjónusta
sem á eftir að aukast,“ segir Arthur
Garðar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri GMR, þegar hann er
spurður um ástæður þess að fyr-
irtækið ákvað að byggja endur-
vinnslustöðina þar. Hann bætir við
að á Grundartanga séu öflugir tengi-
möguleikar við raforkukerfið og góð
höfn með reglubundnum skipaflutn-
ingum. Afurðir úr stálinu sem unnið
er fyrir álverin er skilað aftur til fyr-
irtækjanna þar sem það er nýtt aft-
ur. Arthur segir að afurðir úr endur-
unnum brotamálum verði fluttar út.
Um 20 störf verða í endurvinnslu-
stöð GMR sem áætlað er að hefji
framleiðslu í byrjun næsta árs.
Fimm til sex starfsmenn til viðbótar
verða hjá Kratusi sem er að reisa
endurvinnslustöð fyrir álgjall
skammt frá lóð GMR og tekin verður
í notkun í sumar. Álendurvinnslan
vinnur fyrir álverksmiðjurnar og
skilar afurðunum þangað.
„Okkur hefur verið vel tekið og
gaman að sjá þessa uppbyggingu,“
segir Arnar Jónsson, verkefnisstjóri
við báðar endurvinnslustöðvarnar.
Stækkuð höfn og athafnasvæði
Hvalfjarðargöngin, sem tekin voru
í notkun 1998, gjörbreyttu aðstöðu til
uppbyggingar á Grundartanga. Iðn-
aðarsvæðið varð raunverulega hluti
af stærsta atvinnusvæði landsins.
Faxaflóahafnir eiga töluvert land-
rými til að stækka höfnina og at-
hafnasvæðið. Unnið hefur verið að
skipulagningu í nokkur ár.
Hafnargerð er hagkvæm við
Grundartanga, að sögn Gísla Gísla-
sonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna.
Dýpi er hæfilegt og auðvelt að koma
upp aðstöðu fyrir djúprist skip. Þá er
landið kjörið til framkvæmda.
Viðlegukantar hafnarinnar eru alls
650 metrar að lengd og möguleikar á
að tvöfalda þá og rúmlega það. Gísli
segir að ákveðið hafi verið að lengja
kantana nú um 120 til 130 metra.
Skipulagðar hafa verið 80-90 lóðir
á nýja iðnaðarsvæðinu. „Innviðirnir
eru nógu sterkir til að taka við frek-
ari uppbyggingu. Við erum komnir í
þá stöðu að við getum leitað eftir fyr-
irtækjum sem við teljum falla vel að
framtíðaráætlunum okkar. Það eru
minni framleiðslufyrirtæki sem hafa
þörf fyrir hafnarstöðu og skapa störf
og umsvif í kringum sig en valda lág-
marksröskun á umhverfinu,“ segir
Gísli og nefnir Lífland og endur-
vinnslufyrirtækin sem dæmi um það.
Hann tekur fram að stóriðjan
verði áfram kjölfestan á iðnaðar-
svæðinu en ekki sé áformað að fjölga
svo plássfrekum fyrirtækjum.
Ekki hefur tekist að landa mörg-
um samningum um erlenda fjárfest-
ingu hér á landi á undanförnum ár-
um. Gísli segir að athafnasvæðið sé
kynnt í samstarfi við Íslandsstofu.
Margir hafi komið til að skoða en
ekki sé verið að auglýsa það sér-
staklega. „Við reynum að velja þá
kosti sem við teljum henta okkur,“
segir hann.
„Stærsta breytingin fyrir okkur er
að við erum ekki lengur „sveitar-
félagið Grundartangi“ heldur hluti af
starfseminni hér,“ segir Einar Þor-
steinsson, forstjóri Elkem Ísland,
um fjölgun fyrirtækja á Grund-
artanga. Hann segir að unnt sé að
samnýta ákveðna þjónustu með öðr-
um fyrirtækjum og nýju fyrirtækin
bæti þjónustuna og auki lífið á svæð-
inu.
Tækifæri í orkunni
Einn af kostum Grundartanga-
svæðisins er að þar er öflugur tengi-
punktur við raforkukerfið og Lands-
net er að undirbúa styrkingu
háspennuvirkja sem auka munu
öryggi við afhendingu orku. „Raf-
orkan er grundvallaratriði. Hún þarf
að vera fyrir hendi,“ segir Gísli þegar
hann er spurður um ógnanir við upp-
byggingu á Grundartanga. Nokkuð
er af ónotaðri orku í kerfinu eins og
er en sífellt verið að fækka mögu-
leikum til að virkja til atvinnu-
uppbyggingar á Suðvesturlandi. Til-
lögur um að skipa rennslisvirkjunum
í neðrihluta Þjórsár í biðflokk í stað
nýtingarflokks eru dæmi um það.
„Í orkunni eru fólgin tækifæri til
atvinnusköpunar. Ég get vel skilið að
það þurfi að ganga af hófsemd um
orkuauðlindirnar en orkan er ígildi
atvinnu. Ef við viljum vinna á at-
vinnuleysinu þurfum við að virkja
þessa auðlind,“ segir Gísli.
Grundartangi er í Hvalfjarðarsveit
sem nýtur góðs af uppbyggingunni
þar. Akranes er þó kannski skýrasta
dæmið um stað sem byggir tilveru
sína að verulegu leyti á atvinnu sem
þangað er sótt. „Við eigum mikið
Fjölbreytt-
ari flóra á
Tanganum
Ný fyrirtæki byggja sig upp á Grundartanga í
skjóli stóriðjuveranna Hafnargarðurinn lengdur og
skipulagðar 80 til 90 lóðir Hafnarstjórinn vill fá
minni framleiðslufyrirtæki með hafnsækna starfsemi
sem valda lágmarksröskun á umhverfinu
Ný verksmiðja Hús GMR Endurvinnslunnar potast upp úr jörðinni. Hún á að taka til starfa með um 20 starfs-
mönnum í upphafi næsta árs. Unnið verður úr teinum úr álverum og brotamálmi frá söfnunarfyrirtækjum.
Faxaflóahafnir eru að undirbúa
endurheimt Katanestjarnar sem
var við Grundartanga. Hún var
ræst fram og hvarf að mestu um
miðja síðustu öld. Tjörnin er fræg
fyrir Katanesdýrið sem sást í tjörn-
inni á síðari hluta nítjándu aldar.
Vorið 1876 sögðu smaladrengir
frá bæjunum Katanesi og Galt-
arholti frá einkennilegu kvikindi
sem þeir urðu varir við og líktu við
stóran hund. Eftir því sem tíminn
leið og fleiri töldu sig sjá dýrið
breyttust lýsingar og dýrið varð að
einkennilegri ófreskju með marg-
breytt útlit. Það sást helst í ljósa-
skiptunum og þá í flóanum norðan
Katanestjarnar.
Fólk varð hrætt og vildi ekki fara
þarna um nema ríðandi. Bændur
óskuðu eftir stuðningi landshöfð-
ingja við að vinna á dýrinu og réðu
góðan skotmann, Andrés Fjeldsted
frá Hvítárvöllum, til þess. Ekkert
dýr fannst og lengi á eftir var leitað
að skýringum á því hvað þarna hafi
verið á ferðinni. Ekki er vitað til
þess að Katanesdýrið hafi hrellt
starfsmenn álvers Norðuráls sem
eru næstu nágrannar tjarnarinnar.
Katanestjörn var upphaflega 20
hektarar. Bændur grófu skurð til
sjávar í viðleitni sinni við að ná dýr-
inu og smám saman var tjörnin
ræst fram. Þar er nú deiglendi með
nokkrum litlum tjörnum.
Frárennslisskurðum verður lok-
að í þeim tilgangi að endurheimta
tjörnina. Vonast er til að það glæði
fuglalíf sem þarna er þó nokkurt.
Reynt að endurheimta
Katanesdýrið