Morgunblaðið - 07.04.2012, Page 31

Morgunblaðið - 07.04.2012, Page 31
31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012 Stæltir og stoltir Stærsta Íslandsmót, sem haldið hefur verið í fitness, módelfitness og vaxtarrækt, fór fram í Háskólabíói í gær og fyrradag. Keppendurnir voru alls um 160 að þessu sinni. Árni Sæberg Tillögur ríkisstjórn- arinnar um breytingar á lögum um stjórn fisk- veiða eru byggðar á vafasömum grundvelli. Annars vegar á land- lægum misskilningi um réttarstöðu lands- manna gagnvart fisk- stofnum sjávar um- hverfis Ísland. Hins vegar á varhugaverð- um hugmyndum um samþjöppun valds hjá hinu opinbera. Meinlokan um þjóðareign Fiskstofnarnir á Íslandsmiðum hafa aldrei verið í eigu neins frá því land byggðist. Þeir hafa farið um miðin, sem teljast enn almenningur í lagalegum skilningi, eigendalausir á meðan óveiddir. Viðurkennt hefur verið að þjóðarétti og landsrétti, m.a. í dómum Hæstaréttar, að Al- þingi hafi í skjóli fullveldisréttar síns heimild til að setja reglur um nýtingu þessarar auðlindar. Full- veldisréttur þessi, sem Alþingi fer með í umboði kjósenda, er ekki eign- arréttur. Hann felur ekki í sér sam- eignarrétt þjóðarinnar. Yfirlýsing 1. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006, um að nytja- stofnar sjávar séu sameign þjóð- arinnar, hefur enga eignarréttar- lega merkingu. Það hefur verið næsta óumdeilt meðal fræðimanna á sviði lögfræði. Stjórn- arskrártillögur svo- nefndrar stjórnlaga- nefndar ganga jafnframt út frá þess- um skilningi, sbr. t.d. grein Skúla Magn- ússonar, dósents við lagadeild Háskóla Ís- lands, í Fréttablaðinu 28. mars sl. en þar sagði: „Í ákvæði stjórn- laganefndar felst að „þjóðareign“ vísar ekki til eignarréttar í laga- legum skilningi – hvorki ríkiseignar né sérstaks (nýs) eignarforms.“ Þjóðin á ekki rétt til leigugjalds Það fær ekki staðist nokkra lög- fræðilega skoðun, að þjóðin eigi rétt á leigugjaldi fyrir fiskveiðirétt, eins og t.d. fasteignareigandi fyrir leigu fasteignar sinnar, enda er hún hvorki eigandi nytjastofnanna né réttindanna til að veiða þá. Að sjálf- sögðu getur Alþingi eigi að síður, standi vilji til þess, lagt skatt eða aðrar kvaðir á þá sem eiga fiskveiði- réttindin, að virtum ákvæðum stjórnarskrár. En það er ekki á grundvelli eignarréttar þjóðarinnar, svo mikið er víst. Til eru þeir sem andæfa þessu og tala um „bókstafstrú“ lögfræðinga og „lagahyggju.“ Þá hina sömu verð- ur að spyrja: Á hverju verður þetta samfélag byggt ef ekki á lögum? Tískusveiflum í pólitík? Andúð á til- teknum hagsmunaaðilum? Tilfinn- ingasemi? Geðþótta einstakra stjórnmálamanna? Hinn raunverulegi grundvöllur Þegar takmarkanir voru gerðar á sókn á fiskimiðin á síðari hluta 20. aldar höfðu veiðar verið mönnum meira eða minna frjálsar. Alþingi setti þá reglur til að koma í veg fyrir algjört hrun fiskstofnanna. Upphaf- legir handhafar réttinda samkvæmt reglunum voru þeir sem höfðu veiði- reynslu yfir afmarkað tímabil. Þeir höfðu löghelgað sér atvinnuréttindi sem ekki urðu af þeim tekin bóta- laust. Ýmsir hafa svo eignast rétt- indi síðar, annaðhvort á grundvelli veiðireynslu (svo sem í sóknar- kerfum sem rekin voru samhliða) eða fyrir kaup. Hæstiréttur hefur staðfest í dómum sínum, að mál- efnalega hafi verið að því staðið að takmarka veiðar og að kerfi fram- seljanlegra réttinda fái staðist stjórnarskrá. Kerfið hefur fest sig smám saman í sessi á undanförnum 30 árum. Við- skipti með veiðiheimildir hafa farið fram á þessum raunverulega grund- velli um árabil í góðri trú. Sumir hafa selt veiðiréttindi sín varanlega út úr greininni. Aðrir hafa keypt þau í trausti þess að fjárfesting þeirra verði ekki að engu gerð. Lánastofn- anir hafa veitt lán gegn veði í rétt- indunum á sömu forsendum. Í lög- um og framkvæmd hefur almennt verið farið með réttindin sem eignir væru, s.s í skattamálum. Kerfið hef- ur reynst stuðla að meiri hag- kvæmni í sjávarútvegi en víðast hvar annars staðar. Þótt kerfið sé ekki gallalaust verður vart séð að málefnaleg rök hnígi að því að raska grundvelli þess. Þvert á móti mæla veigamikil rök með því að vernd réttindanna í kerfinu sé betur tryggð. Farsælast að byggja á eignarrétti einstaklinga Útgangspunkturinn í hinum fjöl- mörgu tillögum ríkisstjórnarinnar er að ríkið taki til sín hin verðmætu fiskveiðiréttindi og úthluti þeim gegn gjaldi. Þótt lagafrumvörp stjórnarinnar hafi almennt mælst illa fyrir virðist sú skoðun eiga lítt upp á pallborðið að einstaklingar eða einkafyrirtæki fari með fullan og óskoraðan eignarrétt yfir veiði- réttindum sem þeir hafa í lang- flestum tilvikum keypt fullu verði. Töluverð andstaða virðist við að hlutverk ríkisins einskorðist við að setja reglur um nýtinguna og hafa eftirlit. Þetta sætir furðu. Umræða um sjávarútvegsmál virðist komin á það stig, að fáir þori að verja hið eðlilega, skynsamlega og réttláta fyrirkomulag nema þá á einhvers konar dulmáli. Lýðskrumið virðist hafa náð yfirtökum. Ekkert skipulag sýnist heppilegra til verðmætasköpunar eða falla bet- ur að meginsjónarmiðum þeim sem íslenska stjórnarskráin byggir. Að einstaklingar og fyrirtæki þeirra fari með eignarrétt á gæðunum, nýti þau og ráðstafi. Ríkið setji regl- urnar og hafi eftirlit. Það að ríkið sé á hinn bóginn eigandi allra gæða, út- hluti þeim til nýtingar gegn him- inháu gjaldi, stýri svo takmörkuðum nýtingarrétti að auki með reglusetn- ingu og eftirliti er í anda róttækrar ríkisforsjárstefnu. Þetta sjá allir sem vilja. Slík stefna leiðir til mik- illar samþjöppunar valds hjá ríkinu, sem væri alls kostar óheppileg þró- un. Hún væri á skjön við anda þeirr- ar stjórnskipunar sem við höfum byggt á, sem gengur út frá því að vald ríkisins sé takmarkað og temprað, en réttindi einstaklinga tryggð, meðal annars til eigna sinna og atvinnufrelsis. Lagt hefur verið til að stigin séu óheillaskref sem fyllsta ástæða er til að leggjast eindregið gegn, umbúða- laust. Eftir Birgi Tjörva Pétursson » Það að ríkið sé á hinnbóginn eigandi allra gæða, úthluti þeim til nýtingar gegn himinháu gjaldi, stýri svo tak- mörkuðum nýting- arrétti að auki með reglusetningu og eftir- liti, er í anda róttækrar ríkisforsjárstefnu.Birgir Tjörvi Pétursson Höfundur er héraðsdómslögmaður. Til varnar eignarrétti í sjávarútvegi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.