Morgunblaðið - 07.04.2012, Síða 49
áætlana- og hagdeildar og stjórn-
sýsludeildar Ríkisspítalanna 1994-95,
var félagsmálastjóri og for-
stöðumaður Fræðslu- og fjöl-
skylduskrifstofu Suðausturlands á
Hornafirði 1995-98 með yfirumsjón
yfir skóla-, félags- og heilbrigð-
ismálum þar.
Hallur starfaði sjálfstætt við ráð-
gjöf og sérverkefni 1998, sá þá um
móttöku flóttamanna til Blönduóss
og sinnti ráðgjöf og verkefn-
isstjórnun á vegum félagsmálaráðu-
neytisins, sinnti ráðgjöf vegna breyt-
inga á skipan stjórnsýslu fyrir
Hornafjarðarbæ og Hafnarfjarð-
arbæ, var yfirmaður gæða- og mark-
aðsmála Íbúðalánasjóðs 1999, var
verkefnisstjóri vegna undirbúnings
hækkunar lánshlutfalls og undirbún-
ings breytinga á skuldabréfaútgáfu
Íbúðalánasjóðs á vegum félagsmála-
ráðuneytisins 2003, var sviðsstjóri
þróunar- og almannatengslasviðs
Íbúðalánasjóðs 2004, sinnti sérverk-
efnum á sviði stefnumótunar og
áhættugreiningar fyrir Husbanken í
Noregi 2006, var sviðsstjóri þróun-
arsviðs Íbúðalánasjóðs 2007, er fram-
kvæmdastjóri Spesíu – alhliða ráð-
gjafafyrirtækis og hefur starfað við
ráðgjöf hér á landi sem erlendis.
Framsókn og fótboltinn
Hallur sat í stjórn fulltrúaráðs
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
1985-89, var formaður FUF í Reykja-
vík 1985-89, sat í stjórn Nordisk
Centerungdommens Förbund (NCF)
1985-90 og varaformaður þar 1988-
90, sat í stjórn SVR 1986-90, í blað-
stjórn Tímans 1986-91, í fræðsluráði
Reykjavíkur 1990-91, varaborg-
arfulltrúi Framsóknarflokksins í
Reykjavík 1986-91, sat í stjórn SUF
1986-94, formaður Nemenda-
sambands Samvinnuskólans og Sam-
vinnuháskólans 1995-96, sat í mið-
stjórn Framsóknarflokksins 1986-98,
í stjórn Leikfélags Hornafjarðar
1997-98, var ritari stjórnar starfs-
mannafélags Íbúðalánasjóðs 2000-
2001, fulltrúi í fulltrúaráði Málrækt-
arsjóðs 2002-2005, sat í aðalstjórn
Knattspyrnufélagsins Víkings 2003-
2004, formaður stjórnar Hollvina-
samtaka Bifrastar 2008, varafor-
maður Velferðarráðs Reykjavík-
urborgar 2008-2009, kosningastjóri
Framsóknarflokksins í Reykjavík
2009 og formaður Innkauparáðs
Reykjavíkurborgar 2009.
Hallur æfði og keppti í knatt-
spyrnu með Víkingi í öllum yngri
flokkum og er margfaldur Íslands- og
Reykjavíkurmeistari þar og æfði og
keppti í handbolta með meist-
araflokki Víkings og varð Íslands-
meistari og Reykjavíkurmeistari í
yngri flokkum og með meist-
araflokki.
Hallur sagði skilið við Framsókn-
arflokkinn árið 2010 og hefur hætt af-
skiptum af flokkspólitík, a.m.k. í bili.
Fjölskyldan
Hallur er kvæntur Ingibjörgu Ósk
Guðmundsdóttur, f. 9.12. 1969, hjúkr-
unarfræðingi. Hún er dóttir Guð-
mundar Borgars Gíslasonar og Grétu
Björnsdóttur.
Dóttir Halls og fyrri konu hans,
Bergljótar Njólu Jakobsdóttur, er
Álfrún Elsa, f. 25.4. 1990.
Börn þeirra Ingibjargar Óskar eru
Styrmir, f. 8.5. 1998, Magnús, f. 14.9.
2000, og Gréta, f. 27.7. 2004.
Hálfsystir Halls er Arnheiður
Magnúsdóttir, f. 14.6. 1957, sjúkrra-
liði í Reykjavík.
Alsystkini Halls eru Þóra, f. 12.1.
1964, þjóðfræðingur og kennari á
Kleppjárnsreykjum; Hrannar, f. 4.6.
1970, húsasmiður og viðskiptalög-
fræðingur, búsettur í Njarðvík; Júl-
íana, f. 22.2. 1982, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík.
Foreldrar Halls eru Magnús
Hallsson, f. 24.9. 1938, d. 29.9. 1991,
húsasmíðameistari, og Guðleif
Hrefna Vigfúsdóttir, f. 3.3. 1944,
hárgreiðslumeistari í Reykjavík.
Úr frændgarði Halls Magnússonar
Sigurjón Einarsson
skipstj, og fyrsti forstj. DAS
Rannveig Vigfúsdóttir
húsfr. í Hafnarfirði
Jón Pálsson
sjóm. í Rvík.
Guðleif Ólafsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Sigríður H. Hallsdóttir
húsfr. í Hallkelsstaðahlíð
Einar Magnússon
fyrsti aðalbókari SPRON
Júlíana Oddsdóttir
húsfr.
Hallur
Magnússon
Magnús Hallsson
húsasmíðam. í Rvík.
Guðleif H. Vigfúsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Þóra Sigríður Jónsdóttir
húsfr.
Vigfús Sigurjónsson
skipstj. í Hafnarf.
Hrafnhildur Einarsdóttir
húsfr. í Hallkelsstaðahlíð
Hallur Magnússon
b. í Hallkelsstaðahlíð
Magnús Magnússon
b. í Hallkelsstaðahlíð
Svandís Hallsd.
húsfr. í Rvík.
Sigrún Ólafsdóttir
form. Fél. tamingam.
Sigurður Jónsson
forstj. Breiðholts
Viggó Sigurðsson
handknattleikskappi
Einar Sigurjónsson
formaður SVFÍ
Bára Sigurjónsdóttir
kaupkona í Rvík.
ÍSLENDINGAR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
Laugardagur
90 ára
Tryggvina I. Steinsdóttir
80 ára
Eiður Vilhelmsson
Guðmundur Árnason
Hjördís Hjörleifsdóttir
Nicholína R. Magnúsdóttir
Ragnheiður B. Jónsdóttir
Tryggvi Helgason
Vilhjálmur Sigurðsson
70 ára
Guðbjörg Tómasdóttir
Guðmundur Guðmundsson
Marna Petersen
Sigrún S. Guðmundsdóttir
Svandís Jeremíasdóttir
Theódór Ingimarsson
60 ára
Helga Ingimundardóttir
Hrönn Kristjánsdóttir
Ingibjörg Gísladóttir
Steinunn Jóhannesdóttir
Svanfríður Sverrisdóttir
Vignir Sigurðsson
50 ára
Egill Daníel Sigurðsson
Elín Inga Garðarsdóttir
Gísli Guðfinnsson
Guðmundur P. Guðgeirsson
Hróðný Garðarsdóttir
Hulda Emilsdóttir
Kjartan Rögnvaldsson
Margrét Guðfinnsdóttir
Óðinn Viðar Grímsson
40 ára
Bjargþór Ingi Að-
alsteinsson
Bryndís Erla Birgisdóttir
Grétar Jón Elfarsson
Guðrún Arna Björnsdóttir
Högni Friðþjófsson
Linda Hersteinsdóttir
Óskar Gunnar Óskarsson
Rúnar Sigtryggsson
Sólveig Harpa Reynisdóttir
30 ára
Agnes Þrastardóttir
Egill Þór Valgeirsson
Guðrún T. Hrafnsdóttir
Hákon Davíð N. Björnsson
Hugrún Lísa Heimisdóttir
Jóhannes H. Jóhannesson
Marcin Jan Kosecki
Sigurður Þór Runólfsson
Sóley Gunnarsdóttir
Styrmir Grétarsson
Sunnudagur
90 ára
Elísabet Jónasdóttir
80 ára
Svanborg Ólafsdóttir
70 ára
Árni Kristján Sigurvinsson
Ásthildur Theódórsdóttir
Guðmundur Jónasson
Jón Guðmundsson
Kolbrún Sæmundsdóttir
Ólafía Pétursdóttir
Rósa Bergsdóttir
Sigurbergur Hansson
Sigurður R. Símonarson
60 ára
Edda Runólfsdóttir
Finnbogi Helgason
Ingi Þór Yngvason
Jón Guðni Arason
Pétur Vignir Yngvason
Reynir Jónsson
Sigríður Sæmundsdóttir
50 ára
Darren A Foreman
Guðveig Guðmundsdóttir
Hallur Magnússon
Hjördís Inga Bergsdóttir
Kolbrún Eiríksdóttir
María Kristjánsdóttir
Pétur Bjarni Gíslason
Róbert Þorsteinsson
Stefanía María Másdóttir
Sveinn Valdimar Ólafsson
Wieslaw Reduta
40 ára
Andrés Bragason
Berglind Þórðardóttir
Bjarni Már Svavarsson
Gróa Guðrún Magnúsdóttir
Guðjón Ingi Kristjánsson
Guðný Hrönn Úlfarsdóttir
Ingi Steinar Jensen
Lilja Kjartansdóttir
Ólafur Freyr Gunnarsson
Ragnhildur I. Guðbjartsd.
Svavar Hafþór Viðarsson
Unnur Björnsdóttir
30 ára
Agnar Freyr Helgason
Bára Magnúsdóttir
Björn Björnsson
Guðlaug Magnúsdóttir
Guðmundur H. Albertsson
Hrafnhildur Björnsdóttir
Róbert Ari Hafdísarson
Sigríður Huld Blöndal
Mánudagur
80 ára
Margrét Guðjónsdóttir
Richard Hannesson
Unnur Óskarsdóttir
70 ára
Ingvar J. Viktorsson
Magnús Þór Einarsson
Sævar Einarsson
Victoria Namono
Vilhjálmur K. Skaftason
Þráinn Traustason
60 ára
Ásta Ólafsdóttir
Bjarni Sveinsson
Guðbjörg Alfreðsdóttir
Jens Andrésson
Jóhann Þorsteinsson
Kristín Bjarnadóttir
Marteinn R. Guðmundsson
Sigurjóna Sigurðardóttir
Þorgeir Benediktsson
Þórkatla Þórisdóttir
50 ára
Anna Barbara Biadala
Ásta Laufey Þórarinsdóttir
Bergsteinn Helgi Helgason
Brynja S. Gísladóttir
Guðjón Birkir Helgason
Guðrún S. Gissurardóttir
Gunnlaugur Jónasson
Halldóra S. Finnbjörnsd.
Hallgrímur Hallsson
Hjördís H. Guðlaugsdóttir
Margrét Baldvina Aradóttir
Ragnar Ragnarsson
Tómas Jónsson
40 ára
Borgar Ævar Axelsson
Heiða Jóhannsdóttir
Melkorka Þ. Huldudóttir
Remigiusz Maciej Rabas
Susanne Therese Freuler
Þórunn Halldórsdóttir
Ölvir Karl Emilsson
30 ára
Coraline C Thory
Erlingur Grétar Einarsson
Eva Rún Snorradóttir
Eyjólfur Kristjánsson
Guðmundur David Terrazas
Gunnlaugur Úlfsson
Katrín H. Jóhannsdóttir
Lukasz Maciej Mrozowski
Sigríður S. Barðadóttir
Tobias Martin Oeckler
Vignir Már Bárðarson
Vignir Már Bárðarson
Til hamingju með daginn
Einar Bragi, skáld og rithöf-undur, fæddist á Eskifirði 7.apríl 1921 og ólst þar upp,
sonur Sigurðar Jóhannssonar, skip-
stjóra á Eskifirði, og k.h. Borghildar
Einarsdóttur húsmóður. Ættir hans
má rekja til ýmissa skálda og rithöf-
unda. Sigurður, faðir hans, var í
beinan karllegg af Friðriki Rasm-
unsson, bróður Rasmusar faktors,
föður Jóhannesar Lynge, langafa
Jakobs og Yngva Smára.
Borghildur, móðir Einars Braga,
var í beinan karllegg komin af Eiríki
Jónssyni á Hnappavöllum, bróður
Einars kúts Skálholtsrektors, lang-
afa Guðnýjar, móðurömmu Halldórs
Kiljans Laxness. Borghildur var
dóttir Guðnýjar Benediktsdóttur, b.
á Brunnum í Suðursveit Einars-
sonar, bróður Guðnýjar, ömmu Þór-
bergs Þórðarsonar. Bróðir Bene-
dikts var Sigurður, afi Gunnars
Benediktssonar rithöfundar, en hálf-
systir þeirra systkina var Steinunn,
amma Svavars Guðnasonar listmál-
ara.
Einar Bragi lauk stúdentsprófi
frá MA 1944 og stundaði nám í bók-
menntum, listasögu og leikhússögu
við Háskólann í Lundi og við Stokk-
hólmsháskóla.
Ljóðabækur Einars Braga eru
Eitt kvöld í júní, 1950; Svanur á
báru, 1951; Gestaboð um nótt, 1953;
Regn í maí, 1957; Hreintjarnir, 1960,
2. útg. 1962; Í ljósmálinu, 1970; Ljóð,
(úrval) 1983; Ljós í augum dagsins,
(úrval) 2000. Þá sendi hann frá sér
þjóðfræðiritin Eskja I-V bindi, á ár-
unum 1971-86, og Þá var öldin önnur
I-III bindi, 1973-75 og síðan bæk-
urnar Hrakfallabálkurinn, 1982, og
Af mönnum ertu kominn, 1985.
Einar Bragi var mjög afkastamik-
ill þýðandi ljóða, skáldsagna og leik-
rita. Hann þýddi m.a. 20 leikrit eftir
Strindberg og 12 leikrit eftir Henrik
Ibsen. Hann var mikill hernáms-
andstæðingur og starfaði á þeim
vettvangi. Eiginkona hans var Krist-
ín Jónsdóttir en börn hans Borghild-
ur, geðlæknir, og Jón Arnarr, innan-
hússhönnuður.
Einar Bragi lést 26.3. 2005.
Merkir Íslendingar
Einar Bragi