Morgunblaðið - 07.04.2012, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 07.04.2012, Qupperneq 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Heimildarmyndin Walking on Sound, eða Gengið í hljóði, eftir leikstjórann Jacques Debs, verður frumsýnd í dag í Sal 1 í Háskólabíói kl. 17 og er að- gangur ókeypis en leikstjórinn mun sitja fyrir svörum að sýningu lokinni. Í myndinni er fylgst með gerð tónlist- arleikverksins The Void eftir kontra- tenórinn Sverri Guðjónsson og hinn þekkta, japanska slagverksleikara Stomu Yamash’ta. Yamash’ta hefur þróað sérstakan tónlistarheim í gegn- um syngjandi steina sem höggnir hafa verið til en Sverrir hefur á und- anförnum árum tekið þátt í spuna- kenndum verkefnum þar sem þanþol raddarinnar er kannað til hins ýtr- asta, eins og hann lýsir því sjálfur. Tökur fóru fram á Íslandi, í Japan og Frakklandi og spannar vinnan nokkur ár. Um verkið segir m.a. í til- kynningu að það byggist á „ferðalagi og þróun lífs í gegnum ímyndað völ- undarhús, sem tengir saman fortíð, nútíð og framtíð“. Verkið var frum- flutt í St. Eustach-kirkjunni í mið- borg Parísar, 9. nóvember árið 2009 og hefur myndin þegar verið sýnd á sjónvarpsstöðinni Arte og í kvik- myndahúsum í Frakklandi. Blaða- maður tók Sverri tali í vikunni og ræddi við hann um heimildarmyndina en hún er framleidd af sjónvarpsstöð- inni Arte, Seylan kvikmyndagerð, framleiðslufyrirtækinu Les Films d’ici og Sasakawa. Ofan í ræturnar Sverrir segir að fylgst sé m.a. með sköpunarferli verksins í myndinni og flutningi á því í París. „Það var franskt tökulið sem fylgdi okkur þá eftir og þegar við vorum að vinna verkið í Kyoto var tekið upp frá kl. 12 til 24 á hverjum degi í mánuð. Síðan er farið ofan í ræturnar, mínar rætur hér á Íslandi og rætur Stomu í Japan og það skoðað svolítið betur, hvernig það hefur áhrif á hvernig maður hugsar og hvernig maður hugsar um sköpun og fylgir því síðan eftir. Það má því segja að þetta hafi spilað svo- lítið saman en svo var náttúrlega sýn- ingin sjálf úti í París sem fór fram í stórri miðaldakirkju í miðborg Par- ísar, þar voru sex tökuvélar sem tóku upp alla sýninguna. Það er þá hægt að sítera í það, þegar við erum að vinna í Kyoto og erum á hugmynd- astigi, hvernig það sprettur síðan fram í sýningunni. Þannig að myndin er sett upp þannig, það er farið fram og til baka í tíma,“ segir Sverrir og bætir því við að hér sé um óvenju um- fangsmikið og kostnaðarsamt verk- efni að ræða og á sama tíma og frum- sýningin fari fram komi út fallega hannaður pakki með tveimur mynd- diskum. Hugleitt verkið út í gegn Sverrir segir The Void flokkast sem music theatre eða tónlistarleik- hús. Inn í verkið hafi komið klassískt menntuð söngkona frá Sýrlandi, Noma, og fjórir Zen-meistarar sem hafi kyrjað í upphafi sýningar, komið gangandi inn í kirkjuna og síðan setið á palli og hugleitt sýninguna út í gegn, í um eina og hálfa klukkustund. Japanskur Shakuhachi-flautuleikari tók einnig þátt í sýningunni sem og franskur sérfræðingur í yfirtónasöng. „Þannig að þetta var svolítið fjöl- breytt, en mjög vel úthugsað í allri samsetningu og svo er náttúrlega Stomu að vinna með syngjandi steina,“ segir Sverrir. Fyrir vikið hafi hljóðheimurinn orðið svolítið sér- stakur og með framsetningunni hafi verkið verið fært nær leikhúsi. -Þessi leikstjóri, Jacques Debs, hvaða verk á hann að baki? „Hann elst upp í Líbanon, ákveður að hann vilji verða kvikmyndagerð- armaður og fer 18 ára til Moskvu og kemst þar inn í þetta gamla meist- arakerfi, þar sem hann er hjá einum meistara í fimm ár. Eftir það fer hann til Parísar og hefur einbeitt sér sér- staklega að heimildarmyndagerð og hefur annaðhvort framleitt eða leik- stýrt yfir 100 þannig myndum, verið mjög aktífur. Það má segja að þessi mynd sé eins konar tónlistarheimildarmynd. Hann hefur oft unnið verkefni sem sjón- varpsstöðin Arte hefur tekið þátt í, sú franska og sú þýska, og er einmitt núna með annað verkefni sem hann er að setja í gang sem hann kallar Apocalypse, eða Ragnarök. Þar teng- ir hann saman ragnarökin í Völuspá og Opinberunarbók Biblíunnar. Þannig að þú færð þessa skoðun úr norðrinu og suðrinu og tengir það saman. Hann ætlar svo að vinna myndina í tengslum við sex borgir sem hafa einhverra hluta vegna skipst upp vegna átaka. Þannig að þetta er mjög sérstakt verkefni og hann ætlar að kynna það hérna líka því stór þáttur af Ragnarökum verð- ur tekinn hér á Íslandi.“ Ferðalag í gegnum ímyndað völundarhús Félagar Sverrir Guðjónsson með höfundi heimildarmyndarinnar, Jacques Debs, á góðri stundu. Fallegt Stomu Yamash’ta leikur á steina í hofi í Kyoto, Zen-meistarinn Sosho Yamada hlýðir á.  Heimildarmyndin Walking on Sound fjallar um gerð tónlistarleikverks Sverris Guðjónssonar og slagverksleikarans Stomu Yamash’ta, The Void  Kafað í rætur höfunda og sköpunarferlið LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar DV HHHH FBL HHHH FT HHHH MBL HHHH PRESSAN.IS HHHH KVIKMYNDIR.IS HHHH AMERICAN PIE: REUNION Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:20 LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 - 4 - 6 LORAX 2D ENSKT TAL Sýnd kl. 4 LORAX 2D ÍSL TAL Sýnd kl. 2 - 4 HUNGER GAMES Sýnd kl. 7 - 10 SVARTUR Á LEIK Sýnd kl. 8 - 10:15 STERK BYRJUN, MANN ÞYRSTIR Í MEIRA! T.V. - Vikan/Séð og Heyrt HHHH HEIMURINN FYLGIST AGNDOFA MEÐFór beint á toppinn í USA „ÁKAFLEGA VEL HEPPNUÐ ÆVINTÝRAMYND“ A.L.Þ - MBL HHHH Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN HHHH TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG BRÁÐSKEMMTILEG OG LITRÍK MYND FRÁ HÖFUNDUM AULINN ÉG Sýnd með íslensku og ensku tali TVÆR VIKUR Á TOPPNUM Miðasala og nánari upplýsingar DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR! GLEÐILEGA PÁSKA OPIÐ ALLA PÁSKANA Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU GLEÐILEGA PÁSKA - OPIÐ ALLA PÁSKANA TÍMAR OG TILBOÐ GILDA 7. APRÍL TIL OG MEÐ 9. APRÍL MBL DVPRESSAN.IS KVIKMYNDIR.IS T.V. - VIKAN/SÉÐ OG HEYRTA.L.Þ - MBL Þ.Þ. FRÉTTATÍMINN SÉÐ OG HEYRT/KVIKMYNDIR.IS DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR! 52.000 MANNS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS AMERICAN PIE: REUNION KL. 5.50 - 8 - 10.10 12 HUNGER GAMES KL. 5.30 - 8 12 SVARTUR Á LEIK KL. 10.30 16 / LORAX 2D/3D KL. 2 - 3.50 L TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 4 - 8 10 TITANIC 3D ÓTEXTUÐ LÚXUS KL. 4 10 A.P.: REUNION KL. 1 (TILBOÐ) - 3.30 - 5.30 - 8 - 10.30 12 AMERICAN PIE: REUNION LÚXUS KL. 1 - 8 - 10.30 12 LORAX – ÍSLENSKT TAL 2D KL. 1 (TILBOÐ) - 3 L LORAX – ÍSLENSKT TAL 3D KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 6 L HUNGER GAMES KL. 1 (TILBOÐ) - 5 - 8 - 11* 12 SVARTUR Á LEIK KL. 8 - 10.30 16 *ATH: EKKI SUNNUDAGINN 8. APRÍL OPIÐ ALLA PÁSKANA - GLEÐILEGA PÁSKA TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 - 9 10 AMERICAN REUNION KL. 8 - 10.30 12 LORAX – 3D / 2D KL. 3 (TILBOÐ) / KL. 3 (TILBOÐ) L HUNGER GAMES KL. 3 (TILBOÐ) - 6 - 9 12 THE VOW KL. 5.30** L SVARTUR Á LEIK KL. 3** - 5.30 - 8 - 10.30 16 **ATH: EKKI LAUGARDAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.