Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 60
LAUGARDAGUR 7. APRÍL 98. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Hálf milljón „makka“ sýkt af vírus
2. Taldir hafa banað leikfélaga sínum
3. Öruggur íslenskur sigur
4. Líkunum víxlað í kistulagningu
KEXP-útvarpsstöðin frá Seattle var
að bæta við nokkrum myndböndum á
youtube-þráð sinn sem tekin voru
upp með íslenskum böndum í októ-
ber í fyrra. Alls eru myndböndin ís-
lensku þar því orðin 142.
KEXP gerir vel við
íslenska tónlist
Tónlistarheimildarmyndin Amma
Lo-fi, sem þau Orri Jónsson, Kristín
Björk Kristjánsdóttir og Ingibjörg
Birgisdóttir gerðu, verður sýnd á al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Buenos
Aires sem fram fer 11.-22. apríl. Kvik-
myndin er svipmynd af Sigríði Níels-
dóttur sem fór að taka upp og gefa út
sína eigin tónlist á áttræðisaldri.
Amma Lo-fi sýnd
í Buenos Aires
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg eða breytileg átt, yfirleitt á bilinu 3-8 m/s. Víða rigning
síðdegis. Hiti 5 til 10 stig.
Á sunnudag Vestan 8-13 m/s syðra, annars hægari vindur. Víða rigning og hiti 3 til 8 stig.
Gengur í norðaustan 8-15 norðantil um kvöldið með slyddu og kólnar, en styttir upp syðra.
Á mánudag Norðaustan 8-15 m/s með slyddu eða snjókomu, en bjart með köflum á Suð-
ur- og Vesturlandi. Hiti 0 til 5 stig sunnanlands, annars um frostmark.
Senegalinn Papiss Cissé hefur heldur
betur slegið í gegn í ensku knatt-
spyrnunni eftir að hann gekk til liðs
við Newcastle frá Freiburg í Þýska-
landi. Cissé hefur skorað níu mörk í
átta leikjum. Hann gerði m.a. gæfu-
muninn í gær þegar Newcastle vann
Gylfa Sigurðsson og samherja í
Swansea, 2:0. Cissé skoraði bæði
mörkin í leiknum. »2
Cissé gerði gæfumun-
inn fyrir Newcastle
Íslensku landsliðsstrákarnir
í handknattleik luku
ákveðnu skylduverkefni með
því að leggja slakt lið Síle að
velli í fyrsta leik sínum í for-
keppni Ólympíuleikanna í
Varazdin gær. 25:17 urðu
lokatölurnar í leik mikilla
mistaka, segir Guðmundur
Hilmarsson, sem er á ferð
með liðinu í Króatíu. Í dag
bíður hið lipra og snögga
japanska lið Íslendinga. »3
Öðru skylduverk-
efninu lokið
Bandaríski kylfingurinn og fyrirliði
bandarísku sveitarinnar í Ryder-
mótinu, Fred Couples, fór á kostum á
öðrum hring á Masters-golfmótinu á
Augusta-vellinum í gær. Hann lék
hringinn þá á fimm höggum undir
pari en lék fyrri hringinn á parinu.
Þetta færði hann upp um
heil 28 sæti. »1
Fred Couples sjóðandi
heitur á öðrum hring
Svein Björnsson langar að gera
einn disk í viðbót og koma honum
út eftir tvö til þrjú ár, „en fara að
taka upp lag og lag fljótlega til að
eiga, því við erum orðnir það full-
orðnir, ég og Sigurjón, að við gæt-
um dottið út af hvenær sem er, og
náttúrlega veit enginn sína ævina
fyrr en öll er, eins og þar segir,
hvort sem menn eru fimmtugir eða
áttræðir. Þetta er eina hljóm-
sveitin í bænum, í þeim skilningi
sem ég legg í orðið; við erum þeir
einu hér á Siglufirði sem geta
komið með fimm eða sex manna
band og troðið upp með litlum fyr-
irvara. Svo er ég svo heppinn að
Steini trommuleikari er mjög góð-
ur söngvari og það hvílir mig, ég
get þá raddað á móti honum og
svo öfugt. Þannig að þetta lítur
allt ljómandi út.“
Stefna á einn disk enn
HELDRIMENN HYGGJAST TAKA UPP LAG OG LAG
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Einn er vörubílstjóri, annar gamall
togarajaxl og verkstjóri, sá þriðji
fyrrverandi bóndi, sá fjórði endur-
skoðandi og sá fimmti tónlistar-
kennari og sjoppueigandi. Sam-
anlagður aldur þeirra er 326 ár,
meðalaldur 65,2 ár. Saman mynda
þeir eina bílskúrsbandið á Siglu-
firði og eru nýbúnir að gefa út
disk. Þetta eru Heldrimenn.
„Upphafið að þessu öllu var það,
að ég var í Lionsklúbbnum hér í
bænum og þar tróðum við upp, ég
og annar félagi, Júlíus Hraunberg,
til að skemmta, sungum raddað, og
það tókst svo vel að menn voru að
biðja okkur að syngja helst á
hverjum fundi eftir það; þetta var
veturinn 2006-2007,“ segir for-
sprakkinn og aðaldriffjöðrin í
hópnum, Sveinn Björnsson, að
verða 77 ára, þegar blaðamaður
spyr um tildrög að stofnun þess-
arar merkilegu og vinsælu hljóm-
sveitar.
Vorboðakórinn bætist við
„Við fórum svo að æfa okkur
saman, bara til að hafa gaman af
því, hann var undirleikarinn, spil-
aði á gítar. Litlu síðar bættist okk-
ur liðsauki í Vorboðakórinn, kór
aldraðra, þegar Hjálmar Jónsson,
fyrrverandi bóndi á Stóru-Brekku
í Fljótum, gekk þar inn, og ég
frétti að hann spilaði á harm-
onikku. Við Júlíus ákváðum að
reyna að fá hann til liðs við okkur
og það var auðsótt. Þannig varð
Bátsmannstríóið til.“
Vorið 2009 gáfu þremenning-
arnir út geisladisk. Sá nefndist
Hvað er lífið? og innihélt 14 lög og
texta eftir ýmsa höfunda. Þar á
meðal voru Þórður, Hún hring
minn ber, Undir dalanna sól og
Siglufjarðardraumur.
Það var svo árið 2011 að annar
diskur leit dagsins ljós. Geisladisk-
urinn, sem nefnist Boðið upp í
dans, hefur nánar tiltekið að
geyma mörg þekktustu lög fyrri
ára sem og önnur aðeins nær í
tíma. Þar á meðal eru Dansið þið,
sveinar (öðru nafni Húrra, nú ætti
að vera ball), Háskaför, Sauma-
konuvalsinn, Hlín Rósalín, Marina,
Lóa á Brú, Síldarstúlkan, Hafið
bláa, Vínarkrus (Laus og liðugur),
Þú ert mitt sólskin og Lífið á
Sigló. Í heildina 20, hvert öðru
betra.
Mottó Sveins er þetta, stutt og
laggott: Ef menn ætla sér að gera
hlutina, þá er það hægt.
MStuð að hætti »6-7
Samanlagður aldur er 326 ár
Heldrimenn eru
eina bílskúrs-
bandið á Siglufirði
Ljósmynd/Sveinn Þorsteinsson
Sveitin Síungir Heldrimenn á góðri stund. Talið frá vinstri: Hjálmar Jónsson, fæddur 1950, Sveinn Björnsson, fædd-
ur 1935, Ómar Hauksson, fæddur 1950, Þorsteinn Sveinsson, fæddur 1966, og Sigurjón Steinsson, fæddur 1929.
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 10. apríl. Frétta-
þjónusta verður um páskahelg-
ina á fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is. Hægt er að koma
ábendingum um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskrifta og aug-
lýsinga er opið í dag frá 08-13
en lokað er á páskadag og ann-
an dag páska. Sími þjón-
ustuvers er 569-1122 og net-
föngin eru askrift@mbl.is og
augl@mbl.is.
Blaðberaþjónusta er opin í
dag, laugardag, frá 5-11. Hægt
er að bóka dánartilkynningar á
mbl.is. Símanúmer Morgun-
blaðsins er 569-1100.
Fréttaþjón-
usta á mbl.is