SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 2
2 15. apríl 2012 Við mælum með Borgarleikhúsið Árið 2002 frumsýndi Vest- urport Rómeó og Júlíu á litla sviði Borgarleikhússins. Sýn- ingin sló í gegn og markaði upphafið að velgengni leik- hópsins. Í tilefni tíu ára afmæl- is uppfærslunnar er sýningin nú aftur á fjölum Borgarleik- hússins og verður næsta sýning föstudagskvöldið 20. apríl á stóra sviðinu. Morgunblaðið/Jim Smart Rómeó og Júlíu 18 Fríkirkjuvegur 11 Hugmyndir Björgólfs Thors að breytingum á húsinu. 28 Samkennd heimsins Stefán Ingi Stefánsson stofnaði fyrir átta árum skrifstofu UNICEF á Ís- landi, þá ekki orðinn þrítugur. Í viðtali ræðir hann um starf samtak- anna og þær framfarir sem hafa orðið í heiminum. 31 Sinna áhugamálinu … Tíu ár eru síðan vefsíðan fotbolti.net var sett á laggirnar. Hún nýtur sí- fellt aukinna vinsælda að sögn stofnandans. 34 Listin í lækningunni Á bak við hvíta læknasloppinn er ekki bara að finna hafsjó fróðleiks um mannslíkamann, lyf og sjúkdóma. Fjöldi íslenskra lækna syngur, semur og spilar tónlist í frístundum sínum. 36 Líf í skugga Titanic Af þeim rúmlega 2.200 manns sem voru um borð í Titanic var 705 bjargað þegar skipið Carpathia kom á vettvang. 40 Djúpsteiktur hrollur Að horfa á sjónvarpskokka sýna listir sínar er góð skemmtun. Oftast elda þeir eitthvað gómsætt þannig að maður fær vatn í munn- inn. Lesbók 42 Fjölmenntaður mannvinur Í næstu viku minnist Söngsveitin Fílharmónía Róberts Abrahams Ottóssonar í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli hans. 47 Ljósmyndir, minningar þjóð- arinnar Þankar Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar. 14 32 Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson af Of Monsters and Men. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson,Börkur Gunnarsson, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Silja Björk Huldudóttir, Skapti Hallgrímsson. Augnablikið Þessi litla fjöruga stelpa er föst í líkamasem hefur gjörsamlega svikið hana, segirmóðirin þegar hún horfir á dóttur sína ísjúkrarúmi á gjörgæsludeild. Hún er vöktuð öllum stundum, bæði af faglærðu starfs- fólki og elskandi foreldrum. Hún er nýkomin úr öndunarvél, vél sem sá um að anda fyrir hana í heila viku þar sem litli fallegi líkaminn var ger- samlega að gefast upp. Nú getur hún andað sjálf en öll orka sem hún á fer aðeins í það mikilvæga verkefni að huga að starfi lungnanna. Móðirin les fyrir hana sögur af böngsum og fað- irinn heldur í litlu naglalökkuðu höndina. Hún sem hafði verið svo fín í fermingu bróður síns fyrir aðeins tveimur vikum, deginum áður en heim- urinn hrundi. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem al- mættið leggur þungar byrðar á þessa hugrökku hetju. Eftir að hafa barist óaðfinnanlega við krabbamein tvo þriðju hluta ævi sinnar, alltaf með stríðnisbros á vör, ákvað vágesturinn að gera at- lögu af þvílíkum krafti að flestir hefðu fallið við fyrsta högg. En ekki þessi ofurhetja sem bráðum heldur upp á þriggja ára afmælið sitt. Hún berst áfram af þvílíku afli að aðdáun vaknar hjá hverjum er fylgist með. Um allt land og víðsvegar um heiminn er kveikt á kertum fyrir þetta litla ljós. Vanmáttugir ætt- ingjar og vinir geta ekkert gert nema hugsað til fjölskyldunnar, leitað í trúna, beðið og vonað að nú eigi allt eftir að fara vel. Nú er hverju hænuskrefi fagnað. Bara það að geta grátið er stór sigur, enn stærri sigur er þegar hún getur notað augun og hreyfir höfuðið örlítið. Það eru vissulega mörg hænuskrefin sem hún þarf að taka þessi litla stúlka en allir sem hana þekkja vita að hún er þess megnug. Rifrildi um forsetakosningar, öfgafeminisma, ESB, niðurfellingu skulda, bensínverð og hvaðeina skiptir þá sem elska þessa litlu stúlku engu máli og ef farið er út í það, skiptir það nokkurn tímann máli? Þurfum við ekki aðeins oftar að fjarlægja hismið utan af kjarnanum og sjá að það sem skipt- ir okkur alltaf mestu máli er fólkið sem við elsk- um, að við fáum að hafa það hjá okkur eins lengi og mögulegt er og ekki er verra að það haldi heilsu. Hvaða markmiðum í lífinu skiptir okkur raunverulega máli að ná? Að eignast stærra hús, meiri peninga, fleiri fyrirtæki? Það vita allir hversu hjákátlegt það er að einblína eingöngu á veraldleg gæði. Þegar öllu er á botninn hvolft þá vitum við líka öll hvað við viljum og það merkilega er að við sameinumst í þeim vilja. Við viljum öll elska og vera elskuð. Segðu fólkinu sem þér þykir vænt um að þú elskir það. Faðmaðu, elskaðu, knúsaðu og kysstu og ef þú hefur tök á, kveiktu á litlu kerti fyrir lítil ljós sem þurfa á fallegum hugs- unum að halda. Signý Gunnarsdóttir signy@mbl.is Sá sem er hjálparlaus gagnvart þjáningum lítils barns getur lítið annað gert en að senda fallegar hugsanir. Morgunblaðið/Sverrir Lífsbarátta og ást Freddie Mercury tónleikum Tvennir tón- leikar til heið- urs Freddie heitnum Mercury, söngvara rokkhljómsveitarinnar Queen, verða haldnir í Eldborg Hörpu miðvikudaginn 18. apríl kl. 19.30 og 22. Um er að ræða sömu dagskrá og flutt var við miklar vinsældir í nóvember sl. Kvennakór Kópavogs Kvennakór Kópavogs heldur upp á tíu ára starfsafmæli sitt með veglegum tónleikum í Salnum í Kópavogi á sumardaginn fyrsta, 19. apríl, kl. 20.00. Ástin og sumarið munu svífa yfir vötn- um. Sýningar á sunnudaginn kl. 13:30 og 15:00

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.