SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 4
4 15. apríl 2012 Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki lát- ið sér nægja að setja stjórnarand- stæðinginn Júlíu Tímósjenkó í fangelsi frá því að Viktor Janúko- vits varð forseti Úkraínu fyrir tveimur árum. Þrír fyrrverandi ráð- herrar úr stjórn hennar eru einnig komnir bak við lás og slá. Valerí Ívasjenkó, fyrrverandi varnarmálaráðherra, var í liðinni viku dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að misnota embætti sitt í jarðaviðskiptum. Júrí Lutsenko, fyrrverandi inn- anríkisráðherra, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í febrúar fyrir að hygla bílstjóra sínum. Þá var Heorí Filiptsjúk, fyrrverandi ráð- herra náttúruauðlinda, dæmdur í þriggja ára fangelsi vegna samn- ings við lögmannsstofu. Öll hafa málin verið umdeild og í sumum tilvikum mun vera um að ræða sakargiftir, sem aldrei hefðu orðið að sakamáli innan Evrópu- sambandsins. Janúkóvits hefur sagt að hann sé að hreinsa til í stjórnkerfinu og rjúfa tengsl ríkis og stórfyrir- tækja. Gagnrýnendur hans segja hins vegar að hann beiti réttarkerfinu sem valdatæki og hafi einfaldlega komið nýjum auðjöfrum, sem tengjast honum frá fornu fari, að við kjötkatlana. Fyrrverandi ráðherrar fylla fangelsi Úkraínu Júrí Lútsenko, fyrrverandi ráðherra, sem dæmdur var í fjögurra ára fang- elsi í febrúar, var hafður í búri á meðan á réttarhöldum hans stóð. AP Júlía Tímósjenkó, fyrr-verandi forsætisráðherraÚkraínu, mun verameðal þeirra einstak- linga, sem tilnefndir hafa ver- ið til friðarverðlauna Nóbels. Í augum stjórnvalda í Úkraínu er hún hins vegar glæpamað- ur. Í október var hún dæmd í sjö ára fangelsi fyrir að und- irrita samning um kaup á gasi við Rússa, sem að sögn ákæruvaldsins leiddi til þess að úkraínskir skattborgarar voru sviknir um 200 milljónir dollara (rúmlega 25 milljarða króna). 19. apríl hefjast vænt- anlega ný réttarhöld þar sem hún verður sótt til saka fyrir fjárdrátt og skattsvik. Réttarhöldin yfir Tímósj- enkó voru umdeild og hafa gert verkum að samskipti Úkraínu við Evrópusambandið eru með stirðasta móti. Evrópusambandið hefur krafist þess að Tímósjenkó verði látin laus og leyft að taka þátt í þingkosningum, sem fyrirhugaðar eru í októ- ber. Stjórn Úkraínu lætur hins vegar engan bilbug á sér finna. Míkóla Asarov, forsætisráð- herra Úkraínu, sagði á fimmtudag þar sem hann var staddur í Vilnius að Tímósj- enkó ætti að játa sekt sína. Það væri skilyrði fyrir „laga- legri lausn“ á máli hennar. Hann útilokaði hins vegar að hún yrði náðuð. Viktor Janúkóvits, forseti Úkraínu, leggur allt kapp á að vængstýfa Föðurland, flokk Tímósjenkó, sem kom í veg fyrir að hann kæmist til valda í appelsínugulu byltingunni 2004. En hann er ekki laus við Tí- mósjenkó þótt hún sitji bak við rimla. Hún neitar öllum sökum og segir að um sé að ræða pólitíska aðför að sér. Tímósjenkó er 51 árs gömul. Hún hefur nú setið í Karko- ver-kvennafangelsinu í sjö ár. Hún er svo bakveik að hún verður að liggja þegar hún hittir lögmann sinn, sem segir að Janúkóvits „ætli að drepa Tímósjenkó“. Meira að segja andstæðingar hennar viðurkenna að hún sé hörð af sér og hefur hún verið sögð „eini karlmaðurinn í úkraínskum stjórnmálum“. Mál Tímósjenkó er dragbítur á inngöngu Úkraínu í Evrópu- sambandið. Hörðustu gagn- rýnendur Janúkóvits segja að geðþótti og pólitískt ábyrgð- arleysi einkenni stjórnarfarið í landinu. Þeir, sem aðhyllast raunsæ- ispólitík, segja hins vegar að ekki sé hægt að láta sam- skiptin við þetta stóra land velta á örlögum einnar konu, sem í þokkabót, eins og það var orðað í fréttaskýringu í Der Spiegel, er „enginn and- ófsmaður heldur kvenleg út- gáfa af Míkhaíl Kodorkovskí: hún hafi einnig komist yfir mikið af peningum eftir vafa- sömum leiðum“. Hinir fyrrnefndu hafa haft betur og Janúkóvits er enginn aufúsugestur í ríkjum Evrópu um þessar mundir og sam- kvæmt nýlegri skoðanakönn- un er fylgi hans heimafyrir komið niður í 13%. Vandræðagangur vegna Tímósjenkó Janúkóvits leggur allt kapp á að hrella stjórnarandstöðuna Mómælandi í Kænugarði heldur á mynd af Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, og borða með orðunum „Ekki sek“. AFP Viktor Janúkovits, forseti Úkraínu, og Michel Platini, forseti FIFA, klippa á borða við vígslu nýrrar flugvallarbyggingar í Lviv í tilefni af EM í fótbolta, sem fer fram í Úkraínu í sumar. AFP Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Júlía Tímósjenkó hefur dvalið sárkvalin með brjósklos í fangelsinu og hefur farið fram á að fá að leita sér lækninga í þýskri læknamiðstöð. Stjórn- völd hafa gert lítið úr vanda hennar, en í vikunni sögðu þau að hún mætti leita lækn- inga utan fangelsins, en í Úkraínu og að þeirra geð- þótta. Má leita læknis utan fangelsis Félags Rafeindavirkja

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.