SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 13

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 13
15. apríl 2012 13 Straumhvörf urðu í lífi Barbi-tvíburanna, Shane og Sia, árið1989 þegar flennistór auglýs-ingamynd af þeim var sett upp á Sunset Boulevard í Los Angeles. Þessi geð- þekku fljóð höfðu setið fyrir í tvo áratugi, frá sjö ára aldri, en nú voru þau skyndilega á allra vörum. Er þetta sama konan eða eru þær tvær? spurði fólk og klóraði sér í höfðinu. Engin leið var að greina þessar föngulegu stúlkur í sundur. Ferillinn fór á flug, Chanel, Mugler, Gaultier og Galliano settust um þær og Hugh gamli Hefner beið ekki boðanna eft- ir að hafa ekið framhjá skiltinu, dró syst- urnar á Evuklæðunum inn á síður hins víðlesna tímarits síns Sprelligosa (e. Playboy). Septemberheftið 1991, þar sem Barbi-tvíburarnir breiddu úr sér, sló öll fyrri sölumet, upplagið seldist upp á innan við tveimur vikum. Systurnar lauguðu sig í kampavíni og kavíar. Hvergi gat fólk kom saman í borg englanna án þess að þær væru á svæðinu. Fyrirsætuverkefnin komu á færibandi, svo sem hjá Cosmopolitan og Redbook, og gerðir voru um þær sjónvarpsþættir. Allir vildu vita allt um Barbi- tvíburana. Viðtölin voru ófá og eftir sum þeirra voru systurnar enn dul- arfyllri en áður, eins og þegar Shane setti New York Post stólinn fyrir dyrnar: „Þið megið spyrja okkur um skálastærð og uppáhaldsstellinguna en verið svo vinsamleg að bera ekki upp nein- ar persónulegar spurningar.“ Stuff Magazine valdi systurnar kyntákn ársins 1993 og fetuðu þær þar með í fótspor ekki minni kvenna en Marilyn Monroe, Farrah Fawcett, Madonnu og Sharon Stone, sem rétti þeim raunar keflið. Hermt er að Vilhjálmur Bretaprins, sem þá var barn að aldri, hafi verið bálskotinn í systrunum á þessum tíma og hafði dag- blaðið The Sun milligöngu um að koma áritaðri veggmynd til hans frá þeim. Eitt- hvað virðist smekkur hans hátignar hafa breyst með tímanum! Vinsældirnar voru miklar og dæmi eru um að legið hafi við uppþoti þegar æst al- þýðan kom auga á systurnar í myndatök- um á opinberum vettvangi. Systurnar sátu fyrir á sér- stökum dagatölum árlega frá 1993 til 2007. Eins og með annað fólk í þeirra stöðu voru systurnar ekki óum- deildar. Ýktar línurnar féllu ekki alls staðar í kramið. Sumum þótti þær „of kynþokkafullar“ og öðrum „of gervilegar“. Umtalið fór ekki vel í tví- burana og munu þeir hafa þjáðst af óöryggi um tíma. Óöryggið og eftirvænting- arnar leiddu til átröskunar og um tíma á tíunda ára- tugnum voru Barbi- systur býsna veikar. Þær rifu sig þó upp með hjálp Guðs og góðra manna og hafa meðal annars ritað bók um reynslu sína og sinnt ráðgjöf um næringu og heilbrigði undir kjörorðinu „borðum til að lifa en lifum ekki til að borða“. Shane og Sia Barbi fæddust 2. apríl 1963 og eru því orðnar 49 ára. Foreldrar þeirra skildu þegar systurnar voru tveggja ára og ólust þær upp hjá móður sinni, Mörshu Barbi, sem í eina tíð var kjörin ungfrú Ohio. Eftir misheppnað hjónabandið hneigðist Marsha til kvenna og bjó um tíma með söngkonunni Dusty Springfield sem söng systurnar í svefn á hverju kvöldi. Shane gekk að eiga leikarann og hjarta- knúsarann Ken Wahl árið 1997 en Sia hef- ur aldrei gifst. Barbi-systur eru að mestu hættar að sitja fyrir en helga tíma sinn nú að mestu baráttunni fyrir heilsusamlegu lífi og rétt- indum málleysingja. Á umliðnum árum hafa þær ferðast vítt og breitt um Banda- ríkin til að hlúa að dýrum í neyð, svo sem eftir fellibylji og aðrar náttúruhamfarir. orri@mbl.is Hvað varð um ... Barbi-systur? Barbi-systur á hátindi frægðar sinnar. Þær voru gríðarlega eft- irsóttar fyrirsætur. Systurnar hafa engu gleymt. Nú berjast þær fyrir réttindum málleysingja. OPIN DAGSKRÁ KL. 14-16 • Ávarp: Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins • Ávarp: Christoffer Taxell, forystumaður í finnsku atvinnulífi og fyrrverandi menntamálaráðherra Finnlands UPPFÆRUM STRAX • Sjöfn Sigurgísladóttir, einn stofnenda Íslenskrar Matorku • Edda Lilja Sveinsdóttir, sviðsstjóri verkfræðisviðs Actavis • Marín Magnúsdóttir, eigandi Practical • Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Íslands Netagerð og spjall • Vetur kvaddur og sumri fagnað. Létt uppfærð nútímatónlist. SKRÁNING Á WWW.SA.IS WWW.UPPFAERUMISLAND.IS Sjöfn Sigurgísladóttir Edda Lilja Sveinsdóttir Kjartan Ragnarsson Vilmundur Jósefsson Christoffer TaxellAri Edwald Marín Magnúsdóttir UPPFÆRUM ÍSLAND AÐALFUNDUR SAMTAKA ATVINNULÍFSINS 2012 MIÐVIKUDAGINN 18. APRÍL Á HILTON REYKJAVÍK NORDICA. Fundarstjóri er Ari Edwald, forstjóri 365 miðla.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.