SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 37

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 37
15. apríl 2012 37 mann sinn kalla til sín. Hún stóð upp í bátn- um og hrópaði að þau væru að koma til hans en sussað var á hana og engin tilraun var gerð til að snúa við. Um borð í Carpathia grét hin nítján ára gamla ekkja stöðugt. Fjórum mánuðum síðar fæddi hún son, John Jacob Astor VI. Fæðingin þótti stórfrétt og fjöl- miðlar fylgdust með hverju fótmáli ungu ekkjunnar. Árið 1916 ákvað Madeleine að giftast æsku- vini sínum William Karl Dick. Í erfðaskrá Astors var tekið fram að eiginkona hans yrði að afsala sér arfinum giftist hún aftur. Öllum var ljóst að Astor hafði örugglega ekki gert ráð fyrir að kona hans yrði ekkja svo ung, en ómögulegt var að breyta erfðaskránni. Madeleine var þó ekki á flæðiskeri stödd því nýi eiginmaðurinn var afar vel efnaður þótt ekki væri hægt að bera auð hans saman við auðæfi Astor-fjölskyldunnar. Hið nýja hjónaband var fréttaefni og almenningur dáðist að Madeleine og leit svo á að hún hefði tekið ástina fram yfir fjármuni. Madeleine eignaðist tvo syni með eiginmanni sínum og hamingja ríkti í hjónabandinu í byrjun, en svo fór Madeleine að leiðast. Árið 1932 fór Madeleine í siglingu þar sem hún kynntist ítalska hnefaleikarnum Enzo Fiermonte. Hún var 39 ára, hann 24 ára. Hann var kvæntur og átti son en það skipti hana engu máli. Þau giftust árið 1933 en eftir hálft ár fór hjónabandið að gliðna. Hann heimtaði peninga af henni og byrjaði að mis- þyrma henni, oft svo illa að hún varð rúm- liggjandi. Eftir skilnað þeirra skrifaði hann um hjónaband þeirra í tímaritið True Story Magazine, það var niðurlæging sem Made- leine átti erfitt með að þola. Hún varð æ háð- ari róandi lyfjum og lést árið 1940, 47 ára gömul. Opinber dánarorsök var sögð vera hjartaáfall en ættingja grunaði að hún hefði, viljandi eða óviljandi, tekið inn of stóran skammt af svefntöflum. Sonur hennar og Johns Jakobs Astors hafði lítið að gera við líf sitt annað en að eyða pen- ingum. Það er lýsandi fyrir lífsstíl hans að hann gekk með fjögur úr og átti tíu glæsibíla. Hann giftist þrisvar sinnum og dó árið 1992. Dóttir hans sagði að minningin um Tit- anic hefði haft áhrif á allt líf hans og bætti við: „Af hverju getur fólk ekki bara gleymt Titanic?“ Mútur eða ekki mútur Helen Dickinson var um borð í Titanic ásamt eiginmanni sínum Dick, en þau höfðu gift sig hálfu ári áður. Hjónin komust bæði í björgunarbát ásamt fleiri farþegum sem voru óttaslegnir. Helen reyndi að létta andrúmsloftið með því að segja þeim sanna sögu af heimsókn sinni til spákonu í Egyptalandi. Hún hafði spáð því að Helen myndi lifa af sjóslys og jarð- skjálfta en myndi síðan deyja í bílslysi. Helen sagði við farþegana að auðvitað myndi hún lifa af svo hinir spádómarnir tveir gætu ræst. Eftir björgun fluttu hjónin til Kaliforníu og þar varð jarð- skjálfti árið 1913. Nokkrum mánuðum síðar lenti Helen í bílslysi og slasaðist al- varlega, þar á meðal á höfði, og um tíma var hún í lífshættu. Til að vernda heilann fundu læknar upp á þeirri nýjung að festa silfurplötu á höfuð hennar. Eftir það bar Helen hárkollu. Hún hugsaði stundum til spádóms spákonunnar og hrósaði happi yfir að vera á lífi. En bílslysið hafði sínar afleiðingar, hegðun hennar varð með tímanum æ einkennilegri og hjónabandið leið fyrir það. Hjónin skildu árið 1916 og skömmu síðar missti Helen jafnvægið þegar fótur hennar flæktist í teppi. Hún rak höfuðið harkalega í harðan flöt og fékk heilablóðfall. Hún dó fimm dögum síðar, 23 ára gömul. Sir Cosmo Duff Gordon og lafði Duff Gordon tilheyrðu háaðlinum í London. Þau komust í borð um björgunarbát ásamt þremur öðrum farþegum og sjö áhafnarmeðlimum en báturinn hefði get- að rúmað fjörutíu farþega í viðbót. Alla ævi lágu hjónin undir ásökunum um að hafa mútað áhafnarmeðlimum til að sigla í átt frá fólki í sjónum. Hjónin sögðu aðra sögu. Þeirra frásögn var sú að áhafn- armeðlimir hefðu í bátnum harmað það að hafa misst allar eigur sínar í slysinu. Duff Gordon sagðist myndu bæta þeim skaðann og gefa þeim hverjum um sig fimm pund ef þeim yrði bjargað. Á Car- pathia stóð hann við loforð sitt. Al- mannarómur neitaði að trúa því að þar hefði verið um góðverk að ræða og sögu- sagnir um mútur voru stöðugar. Hjónin misstu mannorðið og Duff Gordon varð aldrei samur maður. Eiginkona hans var meiri harðhaus og lét ekki á sig fá þótt hvíslað væri í hvert sinn sem hún birtist: „Þarna er konan sem reri burt frá deyj- andi fólki.“ Lafði Duff Gordon var sérstök kona, ákaflega hégómleg og krafðist stöðugrar athygli. Hún byggði upp mikið veldi í fatahönnun. Hún trúði því að hún hefði í fyrra lífi verið kjólameistari Marie Antoinette. Þegar hún var eitt sinn á ferð í Versölum stansaði hún fyrir framan mynd af Marie Antoinette, benti á kjól- inn sem drottningin klæddist og sagði við félaga sinn að hún myndi vel eftir deginum þegar hún hefði lokið við kjól- inn og að það hefði legið einstaklega vel á drottningunni þann dag. Árið 1923 var lafðin lýst gjaldþrota. Árið 1931 lést eiginmaður hennar, en þau höfðu ekki búið saman í mörg ár, og sjálf lést hún árið 1935 af völdum krabba- meins. Guð veri með þér Um borð í Titanic var Renee Harris ásamt eiginmanni sínum, frægum Broadway- framleiðanda, Henry Harris. Þau höfðu verið tíu ár í hamingjuríku hjónabandi og Harris tók enga mikilvæga ákvörðun án þess að ræða við eiginkonu sína. Eftir að Titanic rakst á ísjakann fór Renee upp á þilfar með eiginmanni sínum. Þar reyndi Renee að fá Idu Strauss, eig- inkonu auðkýfingsins Isidors Strauss, meðeiganda Macy-verslunarkeðjunnar, til að fara í björgunarbát, en Ida neitaði að yfirgefa eiginmann sinn. Isidor sagði við Renee: „Við Ida höfum verið saman svo lengi og þegar okkur tími kemur þá förum við saman. Þú ert ung og átt allt lífið framundan. Farðu og megi Guð vera með þér.“ Smith skipstjóri gekk skömmu síðar að Renee og sagði: „Af hverju ertu ekki far- in í björgunarbát“ og benti á bát sem verið var að manna. Eiginmaður Renee tók hana í fangið og kastaði henni til skipverja sem setti hana í björgunarbátinn sem var síðasti báturinn sem fór frá Titanic. Þá var klukk- an 2.05, 1.500 manns voru enn um borð og skipið sökk 15 mínútum síðar. Renee sagði seinna að þegar til New York var komið hefði hún í tvo mánuði verið eins og svefngengill og ekkert vitað hvað hún gerði eða hvað væri að gerast í kring- um hana. Dag nokkurn, þegar hún var hjá lækni sínum, brast hún svo í ofsafenginn grát. Það var í fyrsta sinn frá slysinu sem hún grét. Hún þjáðist stöðugt vegna þess að hafa yfirgefið mann sinn og hugsaði um orð Isidors Strauss: „Guð veri með þér.“ Hún brá á það ráð að skrifa grein í tímarit og spyrja lesendur hvort hún hefði átt að vera eftir og deyja með manni sínum eða fara í björgunarbát. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem svöruðu grein hennar sagði hana hafa tekið rétta ákvörðun. Eftir lát manns síns giftist hún þrisvar. Sjálf sagði hún seinna: „Ég átti tíu dásam- leg, hamingjurík og ógleymanleg ár með fyrsta eiginmanni mínum. Ég hef gifst fjór- um sinnun en hef í rauninni bara átt einn eiginmann.“ Renee varð fyrsta konan í Bandaríkj- unum sem starfaði sem framleiðandi á Broadway. Hún lifði ríkmannlega og langt um efni fram. Í kjölfar kreppunnar miklu neyddist hún til að selja leikhús sitt og bjó síðustu árin í lítilli íbúð. Hún lést árið 1969, 93 ára. Á efri árum stöðvaði hóteldyravörð- ur hana og sagðist hafa séð mynd af henni í blöðunum. Hann bætti því við að hann hefði ekki vitað að hún hefði verið um borð í Titanic. Kona sem stóð þar hjá spurði: „Varstu í alvöru um borð í Titanic?“ Renee játti því. „Og bjargaðist þú?“ spurði konan. „Nei,“ sagði Renee og gekk burt. John Thayer var 17 ára þegar hann komst lífs af og ólíklegur til að fremja sjálfsmorð. Renee Harris hóf nýtt líf og tók við af eiginmanni sínum sem framleið- andi á Broadway. Lafði Duff Gordon var sökuð um að hafa ásamt eiginmanni sínum mútað áhöfn til að róa burt frá deyjandi fólki. Titanic-harmleikurinn breytti Bruce Ismay í lifandi lík. Honum var ekki fyr- irgefið að hafa farið í björgunarbát.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.