SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 8

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 8
8 15. apríl 2012 Daniel Jacob Radcliffe fæddist í Lundúnum 23. júlí 1989. Hann kom fyrst fram í kvikmyndinni The Tailor of Panama árið 2001 og sama ár kom fyrsta Harry Potter-myndin út. Þær urðu á endanum átta og gerðu Radcliffe að stór- stjörnu. Hægt er að festast, bágt mun úr að víkja, segir einhvers staðar, og Radcliffe byrjaði snemma að reyna fyrir sér í öðrum hlutverkum, einkum á sviði, til að skilja sig frá Potter. Frægt var þegar hann lék í nektarsenu í leikrit- inu Equus eftir Peter Shaffer í Lundúnum. Ýms- um brá í brún en yfirlýsing leikarans var skýr: Ég er ekkert barn lengur. Fróðlegt verður að sjá hvernig Radcliffe kemur til með að spjara sig nú þegar Potter-ævintýrið er á enda en fyrsta myndin eftir það, hrollvekjan The Woman in Black, sem frumsýnd var fyrr á þessu ári, hefur fallið í frjóa jörð. Næstu verkefni Radcliffes á hvíta tjaldinu eru gamanmyndin The Amateur Photographer í leik- stjórn Christophers Mongers og spennumyndin Kill Your Darlings í leikstjórn Johns Krokidas, þar sem hann mun leika bandaríska skáldið Al- len Ginsberg. Hvað nú, Daniel? Radcliffe í kunnuglegum stellingum með Rupert Grint og Emmu Watson í einni Harry Potter-myndanna. Reuters Fleiri hafa auðgast á Harry Potter-æðinu,sem rann á heiminn fyrir hálfum öðrumáratug, en höfundurinn, J.K. Rowling. Álista breska blaðsins The Sunday Times yfir ríkustu Bretana yngri en þrjátíu ára, sem birt- ur var í vikunni, sker leikarinn Daniel Radcliffe, sem fór með hlutverk galdrasnáðans í öllum kvik- myndunum, sig úr á sviði menningar og lista. Samkvæmt listanum hefur Radcliffe, sem er 22 ára, þénað hvorki meira né minna en 54 milljónir sterlingspunda á stuttum ferlinum, það eru um ellefu milljarðar íslenskra króna. Megnið af þess- um tekjum hefur Radcliffe haft af Potter- myndunum en hryllingsmyndin, The Woman in Black, sem hann lék í á síðasta ári, gekk einnig vel. Tekjur leikarans í fyrra munu hafa numið sex milljónum punda. Næsti maður á listanum er líka leikari, Robert Pattinson, sem meðal annars gerði garðinn frægan í Twilight-myndunum. Hann er metinn á 40 milljónir punda. Þess má til gamans geta að Patt- inson, sem er 25 ára, hóf einmitt leikferilinn í einni Harry Potter-myndanna. Leikarar í sérflokki Af listanum að dæma kemur meira en helmingur breskra auðkýfinga undir þrítugu úr skemmt- anabransanum, þegar búið er að skilja íþrótta- menn frá. Leikarar, einkum þeir sem hlotið hafa safarík aðalhlutverk í kvikmyndum, eru í nokkr- um sérflokki en á eftir Radcliffe og Pattinson koma Keira Knightley, 27 ára, með 30 milljónir punda; Kiera Chaplin, 29 ára, með 28 milljónir punda; Emma Watson, 21 árs, með 26 milljónir og Rupert Grint, 23 ára, með 24 milljónir. Tvö þau síðast- nefndu slógu vitaskuld í gegn sem vinir Harrys Potters í myndunum. Athygli vekur að Knightley, sem er sögð önnur launahæsta leikkonan í Hollywood um þessar mundir, jók ekki við auð sinn á árinu 2011 enda einbeitti hún sér þá að sviðsleik í Lundúnum. Langt er niður í næsta leikara á listanum. Það er Lily Cole, 23 ára, sem metin er á 8 milljónir punda. Hún hefur líka getið sér gott orð sem fyrirsæta. Ekki kemur á óvart að söngkonan Adele sé efst á lista yfir tekjuhæstu bresku tónlistarmennina undir þrítugu. Hún er aðeins 23 ára en hefur þegar þénað 20 milljónir punda, það eru um fjórir millj- arðar íslenskra króna. Hún hefur nú selt meira en 20 milljónir eintaka af tveimur fyrstu breiðskífum sínum, sem heita einfaldlega 19 og 21. Adele er í nokkrum sérflokki en á eftir henni koma fimm aðrar konur: Cheryl Cole; Leona Lew- is; Katie Melua; Joss Stone og Charlotte Church, með á bilinu 8-12 milljónir í uppsafnaðar tekjur á ferlinum. Efstu karlarnir á listanum eru Craig David og Paolo Nutini með 8 milljónir punda. Efstu nýliðarnir á lista The Sunday Times eru söngkonan Jessie J, sem kom eins og stormsveipur fram á sviðið í fyrra, og félagarnir fjórir í stráka- sveitinni JLS, ellegar Jack the Lad Swing, sem upphaflega sló í gegn í bresku útgáfunni af hæfi- leikakeppninni The X Factor. Hvert um sig var með fimm milljónir punda í tekjur á síðasta ári. Skyldi maður vera á rangri hillu? Leikarinn Daniel Radcliffe er sannarlega ekki á flæðiskeri staddur. Reuters Auðug ungmenni Daniel Radcliffe tekjuhæsti ungi breski listamaðurinn – Adele þénar best í tónlist Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Söngkonan Adele ætti að eiga fyrir salti í grautinn. AP Kiera Chaplin er hugsanlega ekki öllum kunn, þrátt fyrir vel- gengni í starfi. Hún er barna- barn Charlies heitins, fædd í Belfast árið 1982. Hún byrj- aði sem fyrirsæta á unglings- aldri en hefur einnig leikið í fjölda kvikmynda og á hlut í framleiðslufyrirtæki í Holly- wood. Chaplin býr í New York. Kiera Chaplin er fjölhæf ung kona. AP Barnabarn Chaplins – fyrst og fre mst ódýr! 2694kr.kg Verð áður 4898 kr. kg Ungnauta entrecote, erlent 45%afsláttur LAMBALÆRI– fyrir þig og þína! 1498kr.kg Lambalæri með kryddjurtum

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.