SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 45
15. apríl 2012 45
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
RÚRÍ YFIRLITSSÝNING
3.3. - 6.5. 2012
BÓL, KAR OG HULIÐ HJARTA, verk Tinnu Gunnarsdóttur
vöruhönnuðar. Sýningunni lýkur sunnudaginn 15. apríl.
Í Safnbúð verk Áslaugar Katrínar Aðalsteinsdóttur vöruhönnuðar.
PanOra-fyrirlestur, laugardaginn 14. apríl kl. 13
Norski myndlistarmaðurinn, Jana Winderen flytur fyrirlestur og
tónlistargjörning.
SAFNBÚÐ, Fermingar- og útskriftartilboð á útgáfum safnsins.
SÚPUBARINN, 2. hæð. Hollt og gott allan daginn!
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600,
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands
frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar
um þróun íslenskrar myndlistar.
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“
Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar,
undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar.
Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri.
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
TILVIST – BEING HERE
Jón Axel Björnsson
24. mars – 6. maí
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Sunnudagsleiðsögn 15. apríl kl. 14:00:
Ágústa Kristófersdóttir leiðir gesti um sýninguna
TÍZKA – kjólar og korselett
Tveir fyrir einn af aðgangseyri sunnudaginn 15. apríl
Fjölbreyttar sýningar:
TÍZKA – kjólar og korselett
Handaverk frú Magneu Þorkelsdóttur
Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár
Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár
Spennandi safnbúð og Kaffitár
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum
Rætur
Samtímaskartgripahönnun
Laugardaginn 14. apríl kl. 15
– Leiðsögn
Tinna Gunnarsdóttir
Síðasta sýningarhelgi
Sýningunni lýkur þann 15. apríl
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
- Aðgangur ókeypis
Húsið á Eyrarbakka
Hveitipoki verður kjóll
Einstakar systur breyttu
hveitipokum í litríkar
hippamussur og -kjóla
Opið allar helgar
í apríl kl. 14-17
www.husid.com
14. apríl til 12 maí 2012
Núningur/Friction
Listin í borginni og borgin í
listinni
Sýningarstjórar
Einar Garibaldi Eríksson, Kristinn
E. Hrafnsson og Ólafur Gíslason
Opnun laugard. 14. apríl kl. 15:00
Opið 13-17, nema mánudaga.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Aðgangur ókeypis.
LISTASAFN ASÍ
SJÁLFSAGÐIR HLUTIR
(10.2.- 20.5. 2012)
FINGRAMÁL (21.3.–20.5.)
Mundi, Volki, Hrafnhildur Arnardóttir aka
Shoplifter, Erna Einarsdóttir,
Bergþóra Guðnadóttir, Aftur
Opið alla daga
nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í anddyri.
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÁSJÓNA
Verk úr safneign
Viltu teikna?
Katrín Briem leiðbeinir
laugard. 14. apr. kl. 14-16
Kaffistofa – Leskró – Barnakró
Opið fim.-sun. Kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
Kunningjakona mínhefur það fyrir sið aðþefa af þeim bókumsem hún les. Í ein-
feldni minni spurði ég, senni-
lega föst í hlutverki bók-
menntagagnrýnanda, hvort
góðar bækur hefðu aðra lykt en
vondar bækur. Henni fannst
spurningin greinilega heimsku-
leg en svaraði því til að lykt af
bókum væri óháð gæðum text-
ans. Síðan hófst löng og fremur
flókin útskýring á því að lyktin
færi eftir því hvers konar pappír
væri í bókum og gott ef lyktin
ætti ekki líka að vera mismun-
andi eftir því hvernig þær væru
bundnar
inn. Ég
skildi satt
að segja
ekki mik-
ið í þessu
en stund-
um er
maður
lotning-
arfullur
gagnvart
því sem
er manni
óskilj-
anlegt og
það átti
við í
þessu til-
viki.
Þessi
góða
kunningjakona sagðist stundum
klappa bókum. Mér fannst
fjarska eðlilegt að hún gerði það.
Maður á að dekra við bækur sem
manni þykir vænt um og klappa
þeim og strjúka og hrósa upp-
hátt. Hún sagði mér að hún
hefði nýlega klappað Bernsku-
bók Sigurðar Pálssonar af því að
henni þætti svo vænt um hana.
Síðan hóf hún langa lofrullu um
Sigurð.
Ég var ansi ánægð með þessa
góðu kunningjakonu mína og
viðhorf hennar til bóka. Hún
þefar af þeim í orðsins fyllstu
merkingu og klappar þeim og
strýkur. Svona eiga sannir
bókavinir að haga sér.
Frá því ég hitti kunningja-
konu mína hef ég þefað af
nokkrum bókum og komist að
því að bókalykt er góð. Ég get
vel hugsað mér að taka upp
þann sið að þefa af bók áður en
ég byrja að lesa hana. Það er
eitthvað vinalegt við þá gjörð.
Maður er þá reyndar dálítið eins
og hundur, en það er allt í lagi,
hundar eru svo góðlegar og
vinalegar skepnur að það er allt í
lagi að líkjast þeim.
Þefað
af
bókum
’
Ég var
ansi
ánægð
með þessa
góðu kunn-
ingjakonu
mína og við-
horf hennar
til bóka. Hún
þefar af þeim
í orðsins
fyllstu merk-
ingu og
klappar þeim
og strýkur.
Orðanna
hljóðan
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
C
amilla klikkar aldrei!
segir á kápu Engla-
smiðsins. Þessari full-
yrðingu er helst hægt
að svara með orðunum: Það fer
alveg eftir því hvernig á það er
litið. Nokkuð öruggt er að aðdá-
endur Camillu Läckberg, og þeir
eru fjölmargir, munu ekki verða
fyrir vonbrigðum með þessa bók.
Þeir eru einmitt mjög líklegir til
að verða hæstánægðir. Sagan er
spennandi og hún heldur athygli
allt til enda, meinið er að bókin
er klúðurslega skrifuð.
Läckberg fær fínar hugmyndir
en hún býr ekki yfir þeirri náð-
argáfu að skrifa vel. Hún skrifar
kæruleysislega, oft afar illa og er
orðmörg. Það er ekki hægt að
skella nokkurri skuld á íslenska
þýðandann, það er ekki hægt að
ætlast til að hann endurskrifi
verkið fyrir höfundinn.
Fagurkerar sem þjást við að
lesa illa skrifaðar bækur ættu að
láta bækur Läckberg vera því við
lestur þeirra myndu þeir örugg-
lega reka upp reglubundin gól.
En Läckberg er ekki alslæmur
höfundur og verður að fá að
njóta sannmælis. Hún er fundvís
á gott söguefni, henni tekst oft-
ast, en samt ekki alltaf, að skapa
ákveðna samúð með persónum
og lánast að skapa spennu.
Englasmiðurinn fjallar um
gamlan glæp. Fjölskylda hvarf
sporlaust árið 1974, en yngsta
dóttirin Ebba varð eftir. Mörgum
árum síðar, þá fullorðin kona
sem hefur upplifað sorg, snýr
Ebba aftur á fornar slóðir ásamt
manni sínum og reynt er að
brenna þau inni. Svo virðist sem
fortíðin sé að elta Ebbu uppi. Og
Patrik og félagar hans í lögregl-
unni hefja rannsókn. Erika, eig-
inkona Patriks, lætur svo ekki
sitt eftir liggja þegar kemur að
því að grafa upp sannleikann.
Läckberg skiptir ört á milli
tímabila í þessari bók og kaflar
sem gerast í fortíð eru skáletraðir
og ná allt aftur til 1908. Þessir
kaflar eru viðburðaríkir og há-
dramatískir og fjalla um meinleg
örlög barna og kvenna, þar sem
Hermann Göring hefur viðkomu.
Það er nokkur áhætta að setja
frægt fólk inn í skáldverk, en
Läckberg sleppur alveg þolanlega
frá því.
Lesendur Läckberg þekkja
lögreglumanninn Patrik, félaga
hans og eiginkonu úr fyrri bók-
um höfundar. Líf þessa fólks hef-
ur verið allsögulegt og ekki
áfallalaust. Á köflum verða þess-
ar persónur nokkuð þreytandi
því þær eru vælugjarnar. Það
fyrirgefst þeim þó þegar þær
lenda í mikilli hættu og spennan
tekur völdin. Enginn lesandi er
svo illa gerður að hann óski þess
að helstu persónur í spennubók
deyi.
Englasmiðurinn er þokkaleg
afþreying sem skilur ekki mikið
eftir, en hver ætlast svosem til
þess?
Spenna
og stílklúður
Bækur
Englasmiðurinn bbmnn
Eftir Camillu Läckberg. Sigurður Þór
Salvarsson þýddi. Undirheimar gefa
út. 472 bls., kilja.
Aðdáendur sænska rithöfundarins
Camillu Läckberg eru fjölmargir.
Kolbrún Bergþórsdóttir