SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Side 4
4 15. apríl 2012
Úkraínsk stjórnvöld hafa ekki lát-
ið sér nægja að setja stjórnarand-
stæðinginn Júlíu Tímósjenkó í
fangelsi frá því að Viktor Janúko-
vits varð forseti Úkraínu fyrir
tveimur árum. Þrír fyrrverandi ráð-
herrar úr stjórn hennar eru einnig
komnir bak við lás og slá.
Valerí Ívasjenkó, fyrrverandi
varnarmálaráðherra, var í liðinni
viku dæmdur í fimm ára fangelsi
fyrir að misnota embætti sitt í
jarðaviðskiptum.
Júrí Lutsenko, fyrrverandi inn-
anríkisráðherra, var dæmdur í
fjögurra ára fangelsi í febrúar fyrir
að hygla bílstjóra sínum. Þá var
Heorí Filiptsjúk, fyrrverandi ráð-
herra náttúruauðlinda, dæmdur í
þriggja ára fangelsi vegna samn-
ings við lögmannsstofu.
Öll hafa málin verið umdeild og
í sumum tilvikum mun vera um að
ræða sakargiftir, sem aldrei hefðu
orðið að sakamáli innan Evrópu-
sambandsins.
Janúkóvits hefur sagt að hann
sé að hreinsa til í stjórnkerfinu og
rjúfa tengsl ríkis og stórfyrir-
tækja.
Gagnrýnendur hans segja hins
vegar að hann beiti réttarkerfinu
sem valdatæki og hafi einfaldlega
komið nýjum auðjöfrum, sem
tengjast honum frá fornu fari, að
við kjötkatlana.
Fyrrverandi ráðherrar fylla fangelsi Úkraínu
Júrí Lútsenko, fyrrverandi ráðherra, sem dæmdur var í fjögurra ára fang-
elsi í febrúar, var hafður í búri á meðan á réttarhöldum hans stóð.
AP
Júlía Tímósjenkó, fyrr-verandi forsætisráðherraÚkraínu, mun verameðal þeirra einstak-
linga, sem tilnefndir hafa ver-
ið til friðarverðlauna Nóbels. Í
augum stjórnvalda í Úkraínu
er hún hins vegar glæpamað-
ur. Í október var hún dæmd í
sjö ára fangelsi fyrir að und-
irrita samning um kaup á gasi
við Rússa, sem að sögn
ákæruvaldsins leiddi til þess
að úkraínskir skattborgarar
voru sviknir um 200 milljónir
dollara (rúmlega 25 milljarða
króna). 19. apríl hefjast vænt-
anlega ný réttarhöld þar sem
hún verður sótt til saka fyrir
fjárdrátt og skattsvik.
Réttarhöldin yfir Tímósj-
enkó voru umdeild og hafa
gert verkum að samskipti
Úkraínu við Evrópusambandið
eru með stirðasta móti.
Evrópusambandið hefur
krafist þess að Tímósjenkó
verði látin laus og leyft að
taka þátt í þingkosningum,
sem fyrirhugaðar eru í októ-
ber.
Stjórn Úkraínu lætur hins
vegar engan bilbug á sér finna.
Míkóla Asarov, forsætisráð-
herra Úkraínu, sagði á
fimmtudag þar sem hann var
staddur í Vilnius að Tímósj-
enkó ætti að játa sekt sína.
Það væri skilyrði fyrir „laga-
legri lausn“ á máli hennar.
Hann útilokaði hins vegar að
hún yrði náðuð.
Viktor Janúkóvits, forseti
Úkraínu, leggur allt kapp á að
vængstýfa Föðurland, flokk
Tímósjenkó, sem kom í veg
fyrir að hann kæmist til valda
í appelsínugulu byltingunni
2004.
En hann er ekki laus við Tí-
mósjenkó þótt hún sitji bak
við rimla. Hún neitar öllum
sökum og segir að um sé að
ræða pólitíska aðför að sér.
Tímósjenkó er 51 árs gömul.
Hún hefur nú setið í Karko-
ver-kvennafangelsinu í sjö ár.
Hún er svo bakveik að hún
verður að liggja þegar hún
hittir lögmann sinn, sem segir
að Janúkóvits „ætli að drepa
Tímósjenkó“.
Meira að segja andstæðingar
hennar viðurkenna að hún sé
hörð af sér og hefur hún verið
sögð „eini karlmaðurinn í
úkraínskum stjórnmálum“.
Mál Tímósjenkó er dragbítur
á inngöngu Úkraínu í Evrópu-
sambandið. Hörðustu gagn-
rýnendur Janúkóvits segja að
geðþótti og pólitískt ábyrgð-
arleysi einkenni stjórnarfarið í
landinu.
Þeir, sem aðhyllast raunsæ-
ispólitík, segja hins vegar að
ekki sé hægt að láta sam-
skiptin við þetta stóra land
velta á örlögum einnar konu,
sem í þokkabót, eins og það
var orðað í fréttaskýringu í
Der Spiegel, er „enginn and-
ófsmaður heldur kvenleg út-
gáfa af Míkhaíl Kodorkovskí:
hún hafi einnig komist yfir
mikið af peningum eftir vafa-
sömum leiðum“.
Hinir fyrrnefndu hafa haft
betur og Janúkóvits er enginn
aufúsugestur í ríkjum Evrópu
um þessar mundir og sam-
kvæmt nýlegri skoðanakönn-
un er fylgi hans heimafyrir
komið niður í 13%.
Vandræðagangur
vegna Tímósjenkó
Janúkóvits leggur allt kapp á
að hrella stjórnarandstöðuna
Mómælandi í Kænugarði heldur á mynd af Júlíu Tímósjenkó, fyrrverandi
forsætisráðherra Úkraínu, og borða með orðunum „Ekki sek“.
AFP
Viktor Janúkovits, forseti Úkraínu,
og Michel Platini, forseti FIFA,
klippa á borða við vígslu nýrrar
flugvallarbyggingar í Lviv í tilefni
af EM í fótbolta, sem fer fram í
Úkraínu í sumar.
AFP
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Júlía Tímósjenkó hefur dvalið
sárkvalin með brjósklos í
fangelsinu og hefur farið fram
á að fá að leita sér lækninga í
þýskri læknamiðstöð. Stjórn-
völd hafa gert lítið úr vanda
hennar, en í vikunni sögðu
þau að hún mætti leita lækn-
inga utan fangelsins, en í
Úkraínu og að þeirra geð-
þótta.
Má leita læknis
utan fangelsis
Félags Rafeindavirkja