SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Page 5
Bændur skapa verðmæti
allan ársins hring
Með vorkveðjum úr sveitinni
Íslenskir bændur
Íslenskur landbúnaður er fjölbreyttur og innlend matvælaframleiðsla skiptir
máli fyrir þjóðina. Á hverjum degi spara Íslendingar milljónir króna í
gjaldeyri vegna þess að við framleiðum sjálf kjöt, mjólk, grænmeti og fleira
góðgæti í sveitinni.
Fjöldi Íslendinga byggir lífsafkomu sína á störfum sem tengjast
landbúnaði. Um 11.000 störf tengjast atvinnuveginum, m.a. á bújörðum, í
kjötafurðastöðvum, mjólkurvinnslum, hjá þjónustufyrirtækjum og víðar.
Hluti af búvöruframleiðslu íslenskra bænda er fluttur á erlenda markaði.
Í fyrra voru tekjur af útflutningi búvara og sölu á gistingu og þjónustu
við erlenda ferðamenn í sveitum 8,3 milljarðar króna. Með því tekst
landbúnaðinum að leggja sitt lóð á vogarskálarnar í uppbyggingu
atvinnulífsins.