SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Síða 6

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Síða 6
6 15. apríl 2012 Það hefur ekki verið nein lognmolla í kringum Bubba Watson undanfarin misseri. Síðasta sumar sló hann í gegn með kvartettnum Golf Boys sem gaf út tónlist- armyndbandið „Oh oh oh“ en hinir hljómsveitar- meðlimirnir eru kylfingarnir Rickie Fowler, Ben Crane og Hunter Mahan. Þar kemur Bubba m.a. fram ber að ofan í gallasmekkbuxum. Því minna sem sagt er um listræn gæði lagsins, því betra … Í febrúar mætti Bubba svo á mót í Phoenix á appelsínugulri Dodge Charger-bifreið frá 1969 úr bandarísku sjón- varpsþáttunum Dukes of Hazzard sem hann hafði keypt á uppboði á jafnvirði tæpra níu milljóna króna. Aðeins tveimur vikum fyrir sigurinn á Masters ætt- leiddu svo Bubba og kona hans Angie, eins mánaðar gamlan dreng sem hefur hlotið nafnið Caleb. Þakkar Watson föðurhlutverkinu m.a. þá hugarró sem hann hafði til að vinna á mótinu. Svo er spurning hvort barnabílstóllinn komist fyrir í Dodge-inum? Rokkstjarna, bíleigandi og nýbakaður faðir Bubba Watson í tryllitækinu úr Dukes of Hazzard. AP Geggjaður!“ svaraði Bubba Watsonþegar spjallþáttastjórnandinn DavidLetterman bað hann um að lýsagolfstíl sínum eftir sigurinn á Mast- ers-mótinu um síðustu helgi. Þegar Bubba tíar upp boltann á teig halda áhorfendur yfirleitt niðri í sér andanum af eftirvæntingu yfir því sem er í vændum. Ekki er nóg með að Watson sé högglengsti kylfingurinn á PGA-mótaröð- inni, með meðalupphafshögg upp á rúma 283 metra á þessu tímabili, heldur slær hann bolt- ann í svo ótrúlegum sveigum að aðrir en hann sjálfur vita oftast lítið hvernig hann ætlar sér að slá höggið. Ekki spillir svo skærbleikur dræver- inn fyrir sjónarspilinu í kringum hinn örvhenta Gerry Lester Watson eins og hann heitir réttu nafni. Það var því fátt meira viðeigandi en að höggið sem svo gott sem tryggði hinum 33 ára gamla Watson sigur á hinum sögufræga Augusta Nat- ional-velli, hans fyrsta sigur á risamóti á ferl- inum, hafi hann slegið í tæplega 40 metra krók í kringum tré áður en kúlan endaði nokkrum metrum frá holunni. Miðað við hversu óvenjuleg sveifla Watsons er þá þarf kannski ekki að koma á óvart að hann hefur aldrei farið til golfkennara heldur lærði hann sjálfur að slá létta plastbolta á æskustöðv- unum í Bagdad, Flórída. Þannig segist hann hafa lært að móta boltaflug sitt að vild. „Mér finnst best að læra á minn hátt upp á eigin spýt- ur. Það snýst allt um náttúrulega tilfinningu hjá mér,“ segir hann. Þá segist hann ekki hafa gaman af æfingum því þær líkist of mikið vinnu. Þegar hlé sé á golftímabilinu fari hann aldrei á æfingarsvæðið heldur fari hann bara og spili. Ástæðu þess segir hann vera þá að hann ólst upp í fátækt. „Æfing- arboltar kostuðu peninga þegar ég var að alast upp og við vildum ekki þurfa að borga fyrir þá. Þannig að ég varð að finna aðra leið.“ Áhorfendur dá alþýðlegan persónleika hans og frjálsan anda á golfvellinum en hann hefur einnig komið honum í bobba. Þegar Watson taldi að Steve Elkington, meðspilari sinn á móti í fyrra, væri á of mikilli hreyfingu þegar hann ætlaði að slá þá lét hann Elkington heyra það: „Ætlarðu að hætta að labba, maður? Fjandinn. Ég skal segja þér eitt, maður: Þið gömlu kemp- urnar getið kysst á mér rassinn,“ hreytti Bubba út úr sér í návist hljóðnema. Hann var síðar sektaður fyrir orðbragðið. Þá varð Watson frægur að endemum í Frakk- landi eftir þátttöku sína á móti á Evróputúrnum þar í landi síðasta sumar. Eftir að hafa kvartað undan öryggisgæslu og öðrum tittlingaskít á mótinu, þar sem hann komst ekki í gegnum niðurskurð, framdi hann þá höfuðsynd að gera lýðum ljósa yfirgripsmikla fákunnáttu sína um land og þjóð. Þegar hann var spurður um ferð- lag sitt um París sagðist hann hafa séð „þennan stóra turn“ [Eiffel-turninn], „bygginguna sem byrjar á L“ [Louvre-safnið] og „þennan boga sem ég ók hring í kringum“ [Sigurbogann]. Frökkum var ekki skemmt og því síður banda- rískum fjölmiðlum sem töldu hann hafa orðið Bandaríkjamönnum til skammar með því að gangast upp í neikvæðum staðalmyndum af þeim sem heimóttarlegum kjánum. Watson baðst síðan afsökunar á uppákomunni. Golfspekingar hafa um skeið talað um Bubba sem hugsanlegan sigurvegara á risamóti, þökk sé ótrúlegri högglengdinni og hugmyndaflug- inu í að móta högg. Hann komst raunar nálægt því að sigra á PGA-meistaramótinu á Whistling Straits-vellinum árið 2010 en tapaði á endanum í þriggja holu umspili gegn Þjóðverjanum Mart- in Kaymer eftir að hafa búið innáhöggi sínu á síðustu holunni vota gröf. Andlega hliðin var sú sem menn óttuðust að væri ekki nógu sterk hjá Watson til að hann næði þeim árangri sem hæfileikar hans verðskulduðu. „Hann er hvumpnasti náunginn á mótaröð- inni. Hann er taugaveiklaðri en köttur í her- bergi fullu af ruggustólum,“ segir Gary van Sickle, blaðamaður Sports Illustrated, um þennan veikleika Watsons. Hann þykir ör, til- finningasamur og talar áður en hann hugsar eins og faux pas hans í Frakklandi sýndi. „Bubba vill kýla á það í hverju höggi. Ég tala ekki um fyrir honum vegna þess að ég haldi að hann geti það ekki, því ég veit að hann getur það, heldur út af andlegu afleiðingunum ef honum tekst það ekki,“ sagði Tedd Scott, kylfusveinn Watsons til fimm ára, um vinnu- veitanda sinn á sínum tíma. Í viðtali í tímaritinu Golf Digest árið 2009 viðurkenndi Watson að hann þjáðist örugglega af athyglisbresti. Hjá Letterman í vikunni sagð- ist hann hins vegar hafa náð tökum á tilfinn- ingum sínum á vellinum. „Fyrir fjórum árum var þetta slæmt og ég reif sjálfan mig niður. Kylfusveinninn minn tók eftir því og hótaði að hætta ef ég breyttist ekki. Það tókst með mikilli vinnu og hjálp konunnar minnar, vina og kylfusveins. Ég reyndi að koma sjálfum mér í skilning um að það eru margir hlutir í lífinu betri en golf,“ sagði Bubba. Alþýðlegi sveim- huginn Bubba Hélt taugunum í skefjum og sigr- aði á Masters Bubba slær upphafshögg á Masters með bleika drævernum. Lengsta högg hans á tímabilinu er litlir 390 metrar. ReutersVikuspegill Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Watson lætur töluvert að sér kveða í góð- gerðarmálum og í ár virkjar hann högg- lengd sína til góðra verka. Verkefnið heit- ir „Bubba og vinir dræva á milljón“ og er markmiðið að safna milljón doll- urum sem renna eiga til góðgerðarsamtaka sem tengjast heil- brigðismálum. Golf- vöruframleiðandinn Ping, sem framleiðir bleika dræverinn, ætlar t.d. að gefa 300 dollara fyrir fyrstu 300 upphafs- höggin sem Bubba slær yfir 300 yarda. Slær til góðgerðar

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.