SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Síða 14
14 15. apríl 2012
Þegar blaðamaður hittir HildiSesselju Aðalsteinsdóttur, ErluKristínu Árnadóttur og Borg-hildi Erlingsdóttur á Kaffitári
eru þær búnar að gæða sér á hafragraut
og eru að sötra te. Ekki er víst að aðrir
gestir kaffihússins geri sér grein fyrir að
þarna eru kraftakonur á ferð og að í hópi
þessara grannvöxnu og smekklega
klæddu kvenna sé meira að segja Ís-
landsmeistari í kraftlyfingum. Þær sam-
ræmast kannski ekki algengustu mynd-
inni sem fólk gerir sér af
kraftlyftingakonum eða íþróttinni al-
mennt. Þær eru allar fjölskyldukonur og
í annasömum störfum en gefa sér glaðar
tíma fyrir uppáhaldsíþróttina.
Þær þekktust allar áður en hafa orðið
mjög góðar vinkonur eftir að þær byrj-
uðu að æfa saman.
„Við byrjuðum allar að æfa í World
Class á Seltjarnarnesi,“ segir Borghildur
sem byrjaði fyrst. Markmiðið hjá henni
eins og þeim öllum var bara að koma sér
í gott form. „Þjálfarinn sem við byrj-
uðum að æfa hjá er mikill kraftlyft-
ingamaður og fór að koma manni út í
þetta án þess að maður áttaði sig á því.
Hann á heiðurinn af því að við þrjár
fórum að æfa saman,“ segir Borghildur
en maðurinn sem um ræðir er Ingi-
mundur Björgvinsson, einkaþjálfari og
kraftlyftingamaður.
Hundrað kílóa múrinn
„Áður en við vissum af vorum við
komnar með kraftlyftingabeltin og
magnesíumið,“ segir Erla og Hildur
tekur við: „Við vorum allt í einu farnar
að tala endalaust um þyngdir. Maður
fór að hugsa bara í tölum. Ég man það
var mikill múr að fara yfir hundrað
kílóin í réttstöðu.“
Keppnisgreinarnar í kraftlyftingum
eru þrjár; bekkpressa, hnébeygja og
réttstöðulyfta. Íslandsmeistaramótið í
kraftlyftingum fór fram í lok mars.
Hildur varð þar Íslandsmeistari með
323,5 kg í 52 kg flokki. Grótta var jafn-
framt stigahæsta liðið og fékk fullt hús
með 60 af 60 mögulegum stigum og jók
félagið þar með forskot sitt í stiga-
keppni liða.
„Við stofnuðum sérstaka kraftlyft-
ingadeild í Gróttu í félagi við nokkra
aðra og erum komnar með yfir 50 iðk-
Krafta-
konurnar
á Nesinu
Þrjár vinkonur af Seltjarnarnesinu ætluðu bara
að koma sér í form en „leiddust út í“ að keppa í
kraftlyftingum. Þær höfðu forgöngu um að stofna
kraftlyftingadeild í Gróttu og núna skartar ein
þeirra Íslandsmeistaratitlinum í íþróttinni.
Texti: Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Myndir: Ómar Óskarsson omar@mbl.is
„Áður en við vissum af vorum við komnar með kraftlyftingabeltin og magnesíumið,“ segir Erla Kristín Árnadóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Borghildur
Erlingsdóttir
Aldur: 42
Fjölskylduhagir: Gift og á
fjögur börn á aldrinum 3-19
ára
Starf: Forstjóri Einkaleyfa-
stofunnar
Þyngdarflokkur: -57 kg
Byrjaði að æfa kraftlyft-
ingar: 2010
Uppáhaldsgrein:
Réttstöðulyfta
Tekur í bekkpressu: 55 kg
Réttstöðulyftu: 140 kg
Hnébeygju: 121 kg