SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Síða 19
15. apríl 2012 19
lítið þreytt. En þetta er ekki leiðinleg
þreyta. Þetta er þægileg þreyta.“
Meðlimir Of Monsters and Men eða
OMAM eins og nafnið er stundum
skammstafað eru öll að upplifa tónleika-
ferðalag erlendis í fyrsta skipti. Og þetta
er langt frá því að vera einhver „klósett-
túr“ eins og stundum er sagt.
„Þetta er í fyrsta skipti hjá okkur öllum
og þetta er auðvitað mjög skrítið allt
saman, það er ekki hægt að neita því,“
segir Arnar.
„Dagarnir eru mjög langir. Við förum á
fætur eldsnemma á morgnana og förum í
útvarpssviðtöl og svona. Svo þarf að stilla
upp fyrir tónleika seinna um daginn og
koma sér á milli staða. Það er ekkert
stoppað. Stundum erum við að spila 2-3
tónleika á dag.“
Meiri nánd
Arnar er ekki á því að sveitin sé orðin
þreytt á lögunum þó að þau séu búin að
spila þau ansi oft á stuttum tíma.
„Jú jú, það er auðvitað dálítið fyndið að
vera að spila sömu lögin trekk í trekk. En
við erum að kynnast lögunum betur og
sveitin þéttist með hverjum degi. Það er
miklu meiri nánd í samspilinu núna.“
Vel er haldið utan um hljómsveitina og
starfsmenn á hverju strái.
„Ferðastjórinn heitir Eric og hann er
eins og pabbi okkar. Hann vakti mig t.d.
áðan, rak mig blíðlega úr rúminu. Rútu-
bílstjórinn David sefur á meðan við vök-
um og keyrir okkur svo á nóttunni á
meðan við hvílumst. Brian sér svo um
söluvarninginn: diska, boli og slíkt. Svo
erum við með Magnús Öder hljóðmann
með okkur. Hann er eini Íslendingurinn í
þessum utanumhaldshópi. Það er mjög
gott að hafa hann hérna.“
Viðtöl daginn út og daginn inn og það
er spurt um þetta hefðbundna samkvæmt
Arnari. Nafn plötunnar og hljómsveit-
arinnar. Af hverju þau séu svona upp-
tekin af ævintýrum. Hvort Ísland veiti
innblástur og hvernig það sé að vera frá
sama landi og Björk.
„Það er misdjúpt á þessu. En inn á milli
koma pælarar og vilja fara í djúpsjáv-
arköfun. Það er skemmtilegt.“
Arnar – og félagar hans – standa til-
tölulega utan við allt það fár sem geisar á
Íslandi núna í kringum sveitina.
„Mamma mín og systir mín hringdu í
mig í gær og voru að segja mér frá stemn-
ingunni. Þetta er út í hött! En frábært
náttúrlega!“
Við erum tilbúin
Arnar segir þéttan pakka framundan og
hann sjái ekki fyrir endann á þessu ári.
Sveitin stoppi nú heima við í nokkra daga
áður en haldið verður til Evrópu og m.a.
sé sveitin að fara að spila á tónleikum með
Coldplay og Incubus.
„Það er eitthvað,“ segir hann og hlær
að því hversu óraunverulega þetta hljómi.
En er Arnar – eins og Nanna var spurð að í
haust – tilbúinn? Eru þau öll tilbúin?
„Þetta er búið að gerast svo hratt að
maður þarf að klípa sig í handlegginn
þegar heim er komið,“ svarar hann hugsi.
„Við skrifuðum undir þennan samning
við Universal og vissum í sjálfu sér lítið
um það hvað við vorum að fara út í. Þetta
er búið að vera erfitt en alveg ótrúlega
gaman. Nú höfum við séð hvernig þetta
virkar og ég myndi segja að við séum
meira en tilbúin til að fara í þetta af full-
um krafti. Þetta er þegar öllu er á botninn
hvolft fyrst og fremst gaman – sérstak-
lega þegar maður sér alla þessa upp-
skeru.“
’
Mamma mín og systir
mín hringdu í mig í
gær og voru að segja
mér frá stemningunni.
Þetta er út í hött! En frábært
náttúrlega!
HVERN ÆTLAR ÞÚ AÐ GLEÐJA Í DAG?
Haraldur Leví Gunnarsson er eigandi Record Records en
hann gaf út plötu Of Monsters and Men á Íslandi í sept-
ember síðastliðnum.
– Jæja, Haraldur. Hvað segir þú um allt þetta havarí?
„Mér finnst þetta bara geðveikt. Vissi allan tímann að
þetta myndi gerast. Rosa-ánægður fyrir þeirra hönd.“
– Hver hefur þinn þáttur verið í þessari ótrúlegu farsæld?
„Hann hefur svosem ekki verið mikill utan Íslands. Þau
eru með gott teymi með sér í Bandaríkjunum og mikla fag-
menn.“
– Hvernig kom samstarf sveitarinnar við útgáfuna þína, Re-
cord Records, til?
„Ég var búinn að fylgjast vel með þeim eftir að þau sigr-
uðu Músíktilraunir og fljótlega kom í ljós að þetta væru til-
vonandi stórstjörnur. Þá veður maður auðvitað í málið.“
– Eitthvað sérstakt sem þú sást að því leitinu til í bandinu?
„Bara þetta sem svínvirkar í Bandaríkjunum í dag. Það var
alveg klárt að þau ættu að byrja þar en ekki endilega í Evr-
ópu.“
– Ókei …en þú og bandið hafið þá sest niður væntanlega
og gert einhverjar áætlanir? Hvernig var t.d. aðkoma Heather
Kolker, umboðskonu sveitarinnar, að þessu öllu saman?
„Heather hafði unnið sem tónleikabókari í Bandaríkjunum
en var að leita sér að sínu fyrsta bandi sem umboðsmaður.
Hún er gift íslenskum manni sem benti henni á OMAM. Þeg-
ar hún sá þau fyrst á tónleikum sá hún það sama og ég.
Þetta er bara pottþétt dæmi. Hún er að sjálfsögðu vel tengd
í bransanum enda séð um tónleikabókanir fyrir bönd eins og
MGMT og fleiri. Hún var búin að vinna ötullega að því að ná
rétta samningnum fyrir þetta
band og margir höfðu áhuga. Þau öll eru búin að eyða
þvílíkum tíma og metnaði í þetta svo að þetta er vel
áskilinn árangur.“
Hvernig finnst þér að eigi að halda á spöðunum
næstu mánuði og veistu eitthvað um það sem er að
fara að gerast?
„Þau verða bara að halda áfram að gera það sem
þau eru að gera. Spila og spila. Þetta er þvílík vinna og
ég hitti þau fyrr í vikunni og það er komin ágætis
þreyta í hópinn enda búinn að vera að spila tugi tón-
leika síðasta mánuðinn. Þau eru t.d. að fara að spila í
Jimmy Fallon núna í maí. Það er mjög stór áfangi fyrir
hvaða hljómsveit sem er. Og svo verða þau á tón-
leikahátíðum í sumar.“
„Fljótlega kom í ljós að þetta væru tilvonandi stórstjörnur“
Haraldur Leví, útgefandi Of Monsters and Men á Íslandi.
Íslenska útgáfan
Erlenda útgáfan