SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Qupperneq 20

SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Qupperneq 20
20 15. apríl 2012 var á sínum tíma glæsilegasta íbúðarhús Reykjavíkur og ekkert til sparað við smíðina. Klassískar skreytingar eru áberandi að innan sem utan og við að- alinnganginn eru jónískar súlur. Þegar húsið var reist var að finna margar nýj- ungar í því, meðal annars fullkomna vatns- og rafmagnslögn þótt þá væri hvorki komin vatns- né rafmagnsveita í Reykjavík. Í útitröppurnar var notað granít sem flutt var inn frá Borgund- arhólmi og parket var lagt á gólf við- hafnarstofu hússins. Hefur húsið verið kallað íslensk Palladio-villa. Það er Tark Teiknistofan ehf sem sér um útfærslur á breytingum á húsinu og miða þær að því að gera húsið upp Nokkur styr hefur staðið umframkvæmdir á hinu sögu-fræga húsi við Fríkirkjuveg11. Í komandi viku er að vænta tíðinda um þær breytingar sem þar verða gerðar en Húsafriðunarnefnd mun þá funda um málið. Athafnamaðurinn Thor Jensen lét reisa húsið á árunum 1907-1908 en árið 2008 keypti Björgólfur Thor Björgólfs- son hús langafa síns af Reykjavíkurborg. Húsið hafði þá verið í eigu samtaka bindindismanna frá árinu 1939 til 1964 en þá eignaðist borgin húsið og var það notað sem aðalbækistöð Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Húsið er tvílyft timburhús í nýklassískum stíl og þannig að notagildi þess verði sem mest. Áformað er að á efri hæð hússins verði íbúð en á þeirri neðri og í kjallara aðstaða fyrir veislur og ráðstefnur með veislusölum, setustofu og eldhúsi. Hug- myndin er einnig sú að saga Thors Jen- sen og hússins verði rakin í máli og myndum á veggjum hússins. Þónokkrar breytingar áætlaðar Húsið var friðað í B-flokki af borg- arstjórn árið 1978 sem þýðir að húsið er alfriðað að utan en í raun ekki að innan. Þó eru allar breytingar á húsinu háðar lögum um húsafriðun vegna aldurs. Líkt og friðunin segir til um mun húsið halda upprunalegu útliti sínu að utan og er áætlað að hefja umfangs- miklar endurbætur á ytra byrði í sumar. Að innan eru þónokkrar breytingar áætlaðar. Veggpanell og málaður strigi og súlur verða til að mynda lagfærðar en áður hafa svipaðar breytingar verið gerðar. Öll loft verða hins vegar óhreyfð og verður slökkvikerfi í húsinu ekki sýnilegt. Með slíkum útfærslum verður reynt að hrófla sem minnst við upp- runalegu útliti hússins. Helsta breyt- ingin sem áætluð er er sú að flytja stiga af fyrstu hæð húsins niður í kjallara. Þetta segja arkitektarnir Ásgeir Ásgeirs- son og Halldór Eiríksson bestu lausnina til að nýta húsið sem skyldi og loka á milli íbúðarhúsnæðis og annarar að- Hús án lífs er einskis virði Fyrirhugaðar eru breytingar á hinu sögufræga húsi við Fríkirkjuveg 11 sem miða að auknu notagildi hússins. Húsið reisti athafnamaðurinn Thor Jensen á árunum 1907-1908 og var það á sínum tíma glæsilegasta íbúðarhús Reykjavíkur. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Hið glæsilega og sögufræga hús Fríkirkjuvegur 11 séð að utan, húsið er alfriðað að ut Morgunblaðið/Árni Sæberg Að ofan, stiginn eins og hann er nú, fyrir neðan eftir breytingar sem miða við að hann verði færður niður í kjallara. Arkitektarnir Halldór Eiríksson (t.v.) og Ásgeir Ásgeirsson vilja glæða húsið lífi.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.