SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Page 21
15. apríl 2012 21
stöðu í húsinu. Um þetta atriði hefur sátt
ekki náðst en Ásgeir segir upplifunina af
því að koma inn í húsið verða þá sömu
nema að hún færist einfaldlega til. Þá sé
breytingin afturkræf ef til þess kæmi síðar
meir.
Hluti af menningararfinum
„Við viljum gera breytingar í sátt hér og
það er sorglegt ef menn sjá ekki kosti þess.
Þetta hús sem er hluti af menningararfi
okkar Íslendinga getur með þessum breyt-
ingum opnast almenningi og öðlast líf á
nýjan leik,“ segir Ásgeir. Þá nefna arki-
tektarnir að húsið hafi verið friðað á sama
tíma og Höfði sem þegar hafi verið breytt á
ýmsan hátt. Hið sama eigi við Þjóðleik-
húsið þar sem aðgengi var bætt í aðalsal án
þess að það kæmi niður á heildarútliti
hans.
Eigandi hússins hefur sent erindi til
Húsafriðunarnefndar þar sem hann lýsir sig
reiðubúinn til að setja þá kvöð á húsið, að
stiginn verði færður til fyrra horfs ef til
sölu þess kemur síðar. Haft var samband
við Pál V. Bjarnason arkitekt og formann
Húsafriðunarnefndar sem sagði að litlu
væri við að bæta á þessu stigi málsins. Mál-
ið væri í ferli og Húsafriðunarnefnd hafi
óskað eftir því að húsið verði friðað að
innan til að nefndin geti haft meira um
breytingarnar að segja.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einn af veislusölum hússins fyrir að ofan og neðan eftir áætlaðar breytingar arkitekta á húsinu.
tan og verður gert upp samkvæmt því.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’
Það er Tark Teiknistof-
an ehf sem sér um út-
færslur á breytingum á
húsinu og miða þær að því að
gera húsið upp þannig að
notagildi þess verði sem mest.
Stundum flott stundum
bara eitthvað rugl.....
Taktu mynda-
vélina alltaf
með þér hvert
sem þú ferð
Lomo truflar
ekki líf þitt,
Lomo er hluti
af lífinu
Notaðu hana
alltaf á nóttu
sem degi
Prófaðu að
taka mynd frá
mjöðminni
Ekki hugsa
rassgat um af
hverju þú ert
að taka mynd
Ekki hafa
áhyggjur af
einhverjum
reglum